Prestsvígsla

27. september 2020

Prestsvígsla

Fremsta röð frá vinstri: sr. Guðrún Eggerts Þórudóttir, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, sr. Elínborg Sturludóttir og þá sr. Guðrún Karls Helgudóttir, sr. Sigurður Grétar Helgason, og sr. Arnfríður Guðmundsdóttir

Í morgun fór fram prestsvígsla í Dómkirkjunni í Reykjavík. Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, vígði mag. theol., Guðrúnu Eggerts Þórudóttur, til prestsþjónustu í Ólafsfjarðarprestakalli. Vígsluvottar voru séra Elínborg Sturludóttir, sem þjónaði fyrir altari, séra Sigurður Grétar Helgason, séra Guðrún Karls Helgudóttir, og séra Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor.

Kári Þormar lék á orgel og Dómkórinn söng. 

Allfjölmennt var við athöfnina sem var hátíðleg og falleg. 

Nýi presturinn þeirra Ólafsfirðinga 
Guðrún Eggerts Þórudóttir er fædd 12. janúar 1964 og ólst upp á Jörfa á Kjalarnesi, dóttir Eggerts Ólafssonar og Þóru Sigrúnar Gunnarsdóttur sem er látin. Hún lauk kennaraprófi frá Emerson Collage 2004, stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti vorið 2013 og mag.theol., prófi frá guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands 2020. Guðrún hefur gengt ýmsum störfum í gegnum tíðina. Hún var verslunarstjóri hjá Blómahafinu í átta ár, 1992-2000. Guðrún fór til náms til Bretlands og stundaði þar nám í fjögur ár, 2000-2004, til að öðlast réttindi sem Waldorf-kennari. Hún kom að loknu námi til Íslands og hóf störf sem Waldorf-kennari hjá Waldorf-skólanum Sólstöfum og kenndi þar til ársins 2015. Guðrún hóf nám við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands haustið 2014. Meðfram námi vann hún á sambýli við Vesturbrún í Reykjavík og allt til dagsins í dag. Hún starfaði í Grafarvogskirkju frá hausti 2018, og sá þar um eldriborgarastarf kirkjunnar og leysti af sem kirkjuvörður. Eiginmaður hennar er Jón Viðar Óskarsson, löggiltur rafverktaki. Eiga þau þrjú uppkomin börn auk sex barnabarna.

Prestakallið og fyrirvari
Í Ólafsfjarðarprestakalli er ein sókn, Ólafsfjarðarsókn. Í prestakallinu eru tvær kirkjur, Ólafsfjarðarkirkja og Kvíabekkjarkirkja. Áskilinn er réttur til að skilgreina viðbótarskyldur við prófastsdæmið og önnur prestaköll innan þess, sem og við Þjóðkirkjuna – Biskupsstofu og aðra kirkjulega aðila. 

Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall án fækkunar presta. 

Ofangreind þjónusta var auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera mætti að biskupafundur legði tillögur fyrir kirkjuþing er vörðuðu m.a. Ólafsfjarðarprestakall og sem kynnu að leiða til breytinga á skipan prestakalla í prófastsdæminu, hljóti þær samþykki kirkjuþings.

hsh

  • Frétt

  • Guðfræði

  • Menning

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Skipulag

  • Starf

  • Trúin

  • Viðburður

  • Biskup

Hildur Björk Hörpudóttir

Sr. Hildur Björk ráðin

22. nóv. 2024
...prestur við Glerárkirkju
Halldór Bjarki Arnarson

Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma

22. nóv. 2024
... Halldór Bjarki Arnarson semballeikari
Kári Þormar og Hólmfríður Jóhannesdóttir

Heiðursgesturinn átti 80 ára fermingarafmæli

21. nóv. 2024
...fermingarafmælishátíð í Hafnarfjarðarkirkju