Kirkjuþingi 2020 lokið

13. mars 2021

Kirkjuþingi 2020 lokið

Forseti kirkjuþings, Drífa Hjartardóttir, sleit kirkjuþingi 2020 í dag

Kirkjuþingi 2020 lauk síðdegis í dag. Það var sett í gær við hátíðlega athöfn og hófst á tónistarflutningi þar sem Benedikt Kristjánsson, tenórsöngvari, söng við undirleik Susana Budai. Síðan leiddi sr. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup, þingheim í bæn og að því búnu setti forseti kirkjuþings, Drífa Hjartardóttir, 9. fund þingsins. Í dag var svo 10. fundur þingsins. 

Þrjú mál voru kynnt sérstaklega á þinginu:

Sr. Gísli Jónasson, prófastur í Reykjavíkurprófastdæmi eystra, kynnti á föstudeginum drög að starfsreglum um prófasta.

Þá kynnti Margrét Eggertsdóttir starf nefndar sem vann að endurskoðun starfsreglna um kjör til kirkjuþings, og starfsreglur um kosningu biskups Íslands sem og vígslubiskupa.

Þriðja kynningin var á dagskrá í dag en þá kynnti dr. Bjarni Snæbjörn Jónsson, ráðgjafi, stefnumótunarvinnu þjóðkirkjunnar.

Þessi mál voru samþykkt

9. mál     
Till. að starfsreglum um breytingar á ýmsum starfsreglum kirkjuþings - með breytingartillögu 
15. mál    
Till. til þingsályktunar um breytingu fasteignastefnu þjóðkirkjunnar - með breytingartillögu
19. mál    
Till. að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um val og veitingu prestsembætta - með breytingartillögu
25. mál   
Till. til þingsályktunar um mótun stefnu þjóðkirkjunnar í málum fólks á flótta og umsækjenda um alþjóðlega vernd
40. mál   
Till. að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um prestssetur og aðrar fasteignir kirkjunnar
41. mál   
Till.til þingsályktunar um ársreikninga kirkjumálasjóðs 2019 og Þjóðkirkjunnar-Biskupsstofu 2020.
42. mál   
Till. til þingsályktunar um skipun starfskostnaðarnefndar kirkjuþings vegna prests- og prófastsþjónustu
43. mál   
Till. að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um val og veitingu prestsembætta 
44. mál  
Till að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um þingsköp kirkjuþings
45. mál  
Till. að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um starfskostnað vegna prestsþjónustu og prófastsstarfa 
46. mál  
Till. til þingsályktunar um frekari stefnumótun þjóðkirkjunnar
47. mál  
Till. til þingsályktunar um breytingu á heiti Fjölskylduþjónustu kirkjunnar
48. mál   
Till. að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um Fjölskylduþjónustu kirkjunnar
49. mál  
Till. til þingsályktunar um innra eftirlit og áhættugreiningu

Dregið til baka

28. mál   
Till. til þingsályktunar um heimasíðu og aðra miðla
34. mál   
Till. að starfsreglum um starfskostnað vegna prestsþjónustu og prófastsstarfa

Óafgreidd mál og komu ekki til umræðu að þessu sinni – bíða næsta þings

4. mál     
Till. til þingsályktunar um samskipta- og siðareglur þjóðkirkjunnar
13. mál   
Till. til þingsályktunar um kaup og sölu fasteigna
17. mál   
Till. að starfsreglum um ráðningu í prestsstörf
22. mál   
Till. að starfsreglum um Skálholtsstað

Kirkjuþing skipaði í kjölfar samþykktar 42. máls þriggja manna nefnd til að endurskoða starfsreglur um starfskostnað vegna prestsþjónustu og prófastsstarfa. Einar Már Sigurðarson, var kjörinn formaður, og með honum í nefndinni eru þau Anna Guðrún Sigurvinsdóttir og sr. Gísli Jónasson.

Forseti kirkjuþings sleit kirkjuþingi 2020 um kl. 16.00 og biskup flutti að því búnu fararblessun. 

hsh
  • Menning

  • Samfélag

  • Þing

  • Trúin

  • Frétt

Hildur Björk Hörpudóttir

Sr. Hildur Björk ráðin

22. nóv. 2024
...prestur við Glerárkirkju
Halldór Bjarki Arnarson

Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma

22. nóv. 2024
... Halldór Bjarki Arnarson semballeikari
Kári Þormar og Hólmfríður Jóhannesdóttir

Heiðursgesturinn átti 80 ára fermingarafmæli

21. nóv. 2024
...fermingarafmælishátíð í Hafnarfjarðarkirkju