Snævar Jón ráðinn

23. mars 2021

Snævar Jón ráðinn

Snævar Jón Andrjesson, mag. theol., verður vígður til Dalaprestakalls

Umsóknarfrestur um Dalaprestakall, Vesturlandsprófastsdæmi, rann út 8. febrúar s.l.

Auglýst var eftir sóknarpresti til þjónustu og miðað við að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst eða í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að ákvörðunum um ráðningu lægi fyrir.

Kjörnefnd kaus nýlega Snævar Jón Andrjesson, mag. theol., til starfans og hefur biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, staðfest ráðningu hans.

Nýi presturinn
Snævar Jón Andrjesson er fæddur 22. janúar 1985 á Siglufirði og ólst þar upp. Að loknu grunnskólanámi í heimabyggð fór hann í Menntaskólann á Akureyri og lauk stúdentsprófi þaðan 2005. Síðan hóf hann nám í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði í háskólanum á Bifröst og lauk því árið 2012. Snævar Jón útskrifaðist í júní 2020 með mag. theol.- gráðu í guðfræði frá Háskóla Íslands.

Meðfram námi hefur Snævar Jón unnið við sunnudagaskóla Langholtskirkju, starfað á Útfararstofu kirkjugarðanna og nú síðast var hann kirkjuhaldari í Garðasókn.

Kona hans er Sólrún Ýr Guðbjartsdóttir, kennari, og eiga þau þrjár dætur.
Prestakallið

Í Dalaprestakalli eru sjö sóknir: Hjarðarholtssókn, Hvammsókn, Staðarfellssókn (nýsameinuð Staðarfellssókn og Dagverðarnessókn), Skarðssókn, Kvennabrekkusókn, Stóra-Vatnshornssókn og Snóksdalssókn.

Þann 1. desember 2019 var heildarfjöldi íbúa í prestakallinu 564 manns.

Dalaprestakall er í Vesturlandsprófastsdæmi.

Starfinu fylgja þjónustuskyldur við Breiðafjarðar- og Strandaprestakall, en prestaköllin tvö eru einskonar samstarfssvæði. 

Prestsetur er í Búðardal og þar með er búsetuskylda þar.

Prestakallið var auglýst með þeim fyrirvara að vera mætti að biskupafundur legði tillögur fyrir kirkjuþing er snertu m.a. Dalaprestakall og sem kynnu að leiða til breytinga á skipan prestakalla í prófastsdæminu, hljóti þær samþykki kirkjuþings.

hsh


  • Frétt

  • Kosningar

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Starf

  • Trúin

  • Biskup

Hildur Björk Hörpudóttir

Sr. Hildur Björk ráðin

22. nóv. 2024
...prestur við Glerárkirkju
Halldór Bjarki Arnarson

Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma

22. nóv. 2024
... Halldór Bjarki Arnarson semballeikari
Kári Þormar og Hólmfríður Jóhannesdóttir

Heiðursgesturinn átti 80 ára fermingarafmæli

21. nóv. 2024
...fermingarafmælishátíð í Hafnarfjarðarkirkju