Prestsvígsla

2. maí 2021

Prestsvígsla

Dómkirkjan í morgun - frá vinstri: sr. Snævar Jón Andrjesson, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, sr. Elínborg Sturludóttir. Efri röð frá vinstri: sr. Arnór Bjarki Blomsterberg, sr. Hans Guðberg Alfreðsson, sr. Henning Emil Magnússon, og sr. Sigrún Óskarsdóttir

Í morgun fór fram prestsvígsla í Dómkirkjunni í Reykjavík. Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, vígði mag. theol., Snævar Jón Andrjesson, til prestsþjónustu í Dalaprestakalli.

Vígsluvottar voru auk sr. Elínborgar Sturludóttur, sem þjónaði fyrir altari, þau sr. Arnór Bjarki Blomsterberg, sr. Henning Emil Magnússon, og sr. Sigrún Óskarsdóttir. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson lýsti vígslu. 

Kári Þormar lék á orgel og Dómkórinn söng.

Athöfnin var hátíðleg og falleg.

Nýi presturinn
Snævar Jón Andrjesson er fæddur 22. janúar 1985 á Siglufirði og ólst þar upp. Að loknu grunnskólanámi í heimabyggð fór hann í Menntaskólann á Akureyri og lauk stúdentsprófi þaðan 2005. Síðan hóf hann nám í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði í háskólanum á Bifröst og lauk því árið 2012. Snævar Jón útskrifaðist í júní 2020 með mag. theol.- gráðu í guðfræði frá Háskóla Íslands.

Meðfram námi hefur Snævar Jón unnið við sunnudagaskóla Langholtskirkju, starfað á Útfararstofu kirkjugarðanna og nú síðast var hann kirkjuhaldari í Garðasókn.

Kona hans er Sólrún Ýr Guðbjartsdóttir, kennari, og eiga þau þrjár dætur.
Prestakallið
Í Dalaprestakalli eru sjö sóknir: Hjarðarholtssókn, Hvammsókn, Staðarfellssókn (nýsameinuð Staðarfellssókn og Dagverðarnessókn), Skarðssókn, Kvennabrekkusókn, Stóra-Vatnshornssókn og Snóksdalssókn.

Þann 1. desember 2019 var heildarfjöldi íbúa í prestakallinu 564 manns.

Dalaprestakall er í Vesturlandsprófastsdæmi. Starfinu fylgja þjónustuskyldur við Breiðafjarðar- og Strandaprestakall, en prestaköllin tvö eru einskonar samstarfssvæði.

Prestsetur er í Búðardal og þar með er búsetuskylda þar.

Prestakallið var auglýst með þeim fyrirvara að vera mætti að biskupafundur legði tillögur fyrir kirkjuþing er snertu m.a.

Dalaprestakall og sem kynnu að leiða til breytinga á skipan prestakalla í prófastsdæminu, hljóti þær samþykki kirkjuþings.

hsh

  • Frétt

  • Menning

  • Messa

  • Samfélag

  • Starf

  • Trúin

  • Viðburður

  • Biskup

garpsdalskirkja2.jpg - mynd

Kirkjuklukkum á Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hringt samtímis til stuðnings íbúum Gasa

05. ágú. 2025
Fimmtudaginn 7. ágúst kl. 13:00 verða kirkjuklukkum dómkirknanna þriggja á Íslandi hringt og hvetja biskupar Íslands til þess að öðrum kirkjuklukkum verði hringt samtímis. Systurkirkjur Þjóðkirkjunnar í Noregi, Svíþjóð...
Elísa Mjöll Sigurðardóttir

Elísa Mjöll ráðin

22. júl. 2025
...sóknarprestur við Breiðafjarðar og Strandaprestakall
Skálholtshátíð 2.jpg - mynd

Skálholtshátíð kallar með gleði í tali, göngu og tónum

18. júl. 2025
Framundan er þétt og glæsileg dagskrá Skálholtshátíðar sem stendur fram á sunnudag.