Auglýst eftir presti

12. maí 2021

Auglýst eftir presti

Í Akraneskirkju - mynd: hsh

Biskup Íslands óskar eftir presti til þjónustu í Garða- og Saurbæjarprestkalli, Vesturlandsprófastsdæmi.

Miðað er við að viðkomandi hefji störf þann 1. ágúst næstkomandi.

Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um ráðningu í prestsstörf og starfslok nr. 144/2016 og um presta nr. 1011/2011, svo og leiðbeinandi reglna biskups Íslands fyrir umsækjendur um laus prestsembætti frá 2017.

Prestakallið
Garða- og Saurbæjarprestakall samanstendur af fjórum sóknum, Akranessókn með um 7.800 íbúa, Saurbæjarsókn á Hvalfjarðarströnd með rúmlega 140 íbúa, Leirársókn með rúmlega 300 íbúa og Innra-Hólmssókn með rúmlega 150 íbúa. Fjórar kirkjur eru í prestakallinu, Akraneskirkja, Hallgrímskirkja í Saurbæ, Leirárkirkja og Innra- Hólmskirkja.

Vísað er til þarfagreiningar fyrir prestakallið varðandi frekari upplýsingar um starfið og starfsumhverfið. Auglýsing þessi og þarfagreining er birt á vef kirkjunnar, undir laus störf. Þá er bent á vef  Akranessóknar.

Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna – Biskupsstofu og önnur kirkjuleg stjórnvöld.

Allar gildar umsóknir fara til þriggja manna matsnefndar sem metur hæfni umsækjenda, sbr. 5. og 6. gr. starfsreglna um ráðningu í prestsstörf og starfslok.

Matsnefnd velur að jafnaði fjóra hæfustu umsækjendurna en þó aldrei fleiri en fimm og skilar skýrslu þar að lútandi til biskups.

Kjörnefnd Garða- og Saurbæjarprestakalls kýs prest úr hópi umsækjenda, að loknu valferli kjörnefndar, sbr. fyrrgreindar starfsreglur um ráðningu í prestsstörf og starfslok. .

Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 13. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf og starfslok.

Um starfið gilda lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, kjara- og ráðningarsamningar, siðareglur, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar. Er einkum vísað til starfsreglna um presta.

Fyrirvari
Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall. Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla, hljóti þær samþykki kirkjuþings.

Sr. Þráinn Haraldsson sóknarprestur í prestakallinu veitir nánari upplýsingar um umfang og eðli starfsins í síma 433-1500 eða á netfangið thrainnh@kirkjan.is.

Einnig er hægt að leita nánari upplýsinga, t.d. hvað varðar starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, hjá Þjóðkirkjunni - Biskupsstofu, s. 528-4000, eða á netfangið mannaudur@biskup.is.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 25. maí 2021.

Sækja ber rafrænt um starfið á hér á kirkjan.is og leggja fram tilskilin fylgigögn í rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram.

Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.

Vakin er athygli á því að hafi umsækjandi ekki óskað nafnleyndar verður nafn hans sem umsækjanda um starfið birt á vef kirkjunnar www.kirkjan.is að liðnum umsóknarfresti. Hér er að finna eyðublað þar sem umsækjendur geta óskað nafnleyndar.

hsh
  • Biskup

  • Frétt

  • Starf

  • Starfsumsókn

  • Auglýsing

Hildur Björk Hörpudóttir

Sr. Hildur Björk ráðin

22. nóv. 2024
...prestur við Glerárkirkju
Halldór Bjarki Arnarson

Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma

22. nóv. 2024
... Halldór Bjarki Arnarson semballeikari
Kári Þormar og Hólmfríður Jóhannesdóttir

Heiðursgesturinn átti 80 ára fermingarafmæli

21. nóv. 2024
...fermingarafmælishátíð í Hafnarfjarðarkirkju