Verkin tala

17. ágúst 2021

Verkin tala

Innra-Hólmskirkja í gærkvöldi - framkvæmdir standa yfir - eftir á að saga út broddbogalagaða turngluggann og setja rósettuna með lárviðarsveignum yfir hann - fagurt einkenni kirkjunnar ásamt smárakrossi efst á turni - mynd: hsh

Þegar ekið er upp úr Hvalfjarðargöngunum og beygt í áttina að Akranesi sér í litla hvíta kirkju nokkru norðan vegarins. Hún vekur ekki mikla athygli hversdagslega en býr yfir sögu eins og aðrar kirkjur og mörg eru þau sem bera umhyggju fyrir henni. Gamlar kirkju eiga nefnilega vini og velunnara víðar en fólk hyggur. Þetta er kirkjan að Innra-Hólmi sem reist var árið 1891 eða fyrir 130 árum – vígð ári síðar. Og kirkjustaðurinn er ævaforn.

Nú er mikið að vera um þessar mundir að Innra-Hólmi.

Í aprílmánuði síðastliðnum ræddi kirkjan.is við Ragnheiði Guðmundsdóttur, sóknarnefndarformann og djákna, í Innra-Hólmssókn, og skoðaði kirkjuna með henni. Hún er ein af þeim mörgu kirkjukonum með stórt hjarta og góðan hug sem standa vörð um kirkjur landsins.

Legið hefur fyrir að taka þyrfti kirkjunni tak en fjárskortur hefur hamlað verki. Miklar steypuskemmdir hafa verið áberandi og ekki farið fram hjá neinum. Myndir sem kirkjan.is tók af henni í maí í fyrra sýna það ljóslega. Upphaflega var kirkjan timburkirkja en var síðan klædd járni. Þá var steypt utan um hana á sjötta áratug síðustu aldar og byggð forkirkja. Auk steypuskemmda var járn á þaki farið að gefa sig.

Lengi hefur fólk fundið til með þessu litla guðshúsi og þótt sárt að geta ekki hafið endurbætur á því. Sóknin er fámenn, innan við hundrað manns í henni – og er þjónað frá Akranesi. En fólk hefur ekki gefist upp. Fólkið hefur sjálft brett upp ermar og staðið sína vakt án þess að þeyta í lúðra.

Í mörg ár hafa konur haldið basar í félagsheimilinu Miðgarði við Akranes og safnað fyrir viðgerðum á kirkjunni. Þegar markaðurinn gengur vel kemur hátt í einn milljón króna inn í sjóðinn. Það er ekki lítið. Í þessar kirkjuforystu eru sóknarnefndarkonurnar Ragnheiður Guðmundsdóttir, Ingileif Daníelsdóttir og Guðrún Lára Ottesen. Þá hefur hópur velunnara kirkjunnar sem kennir sig við 1949 árganginn af Innnesinu ekki látið sitt eftir liggja. „Þetta eru fjögur fjögur fermingarsystkin sem fermdust 1963,“ segir Ragnheiður, „og höfðu samband við okkur og vilja styðja við verkið.“

Mikill velvilji
Ragnheiður segir finna fyrir miklum velvilja gagnvart verkinu. Sveitarfélagið styrkti þau með myndarlegum hætti og svo hafa einstaklingar látið fé af hendi rakna til verksins. Þegar hún er spurð hvað þessi áfangi muni kosta svarar hún með bros á vör að hann megi ekki kosta meira en þau eigi. Í næsta áfanga verði svo hugað að endurbótum innan dyra og mun söfnun hefjast fyrir því innan tíðar.

Kirkjan.is leit við í gærkvöldi á Innra-Hólmi og tók nokkrar myndir sem sýna að framkvæmdir eru langt komnar.

Búið er að skipta um járn á þaki, múra kirkjuna alla að utan. Þá verður skipt um glugga. Eftir á að saga út fyrir einu höfuðeinkenni kirkjunnar, broddbogalagaða turnglugganum og setja rósettuna með lárviðarsveignum yfir hann. Smárakrossinn efst á turni er nýviðgerður og sómir sér sem fyrr vel.

Góðir hlutir gerast hægt, er gjarnan sagt. Það á svo sannarlega við um starf sóknarnefndar Innra-Hólmskirkju í Garða- og Saurbæjarprestakalli.

hsh


Turn og stallur - kemur vel út - eftir á saga út fyrir turnglugga


Turninn og stallurinn voru illa farnir -maí 2020


Nýtt sáluhlið og forkirkja múruð


Svona leit þetta út í maí 2020


Vel að verki staðið og með myndarbrag


Hér sést hve kirkjan var illa farin - mynd frá maí 2020

  • Menning

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Sóknarnefndir

  • Trúin

  • Frétt

Hildur Björk Hörpudóttir

Sr. Hildur Björk ráðin

22. nóv. 2024
...prestur við Glerárkirkju
Halldór Bjarki Arnarson

Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma

22. nóv. 2024
... Halldór Bjarki Arnarson semballeikari
Kári Þormar og Hólmfríður Jóhannesdóttir

Heiðursgesturinn átti 80 ára fermingarafmæli

21. nóv. 2024
...fermingarafmælishátíð í Hafnarfjarðarkirkju