Árni Þór ráðinn

10. febrúar 2022

Árni Þór ráðinn

Árni Þór Þórsson verðandi prestur í Víkurprestakalli - mynd: Signý Bjarnadóttir

Biskup Íslands auglýsti eftir sóknarpresti til þjónustu í Víkurprestakalli, Suðurprófastsdæmi, og rann umsóknarfrestur út hinn 24. janúar s.l.

Valnefnd kaus Árna Þór Þórsson, mag. theol., til starfans og hefur biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, staðfest ráðningu hans.

Nýi presturinn
Árni Þór Þórsson er fæddur í Reykjavík 13. október 1995. Hann ólst upp í Grafarvogi og hóf skólagöngu sína í Foldaskóla. Þaðan fór hann í Tækniskólann – nánar til tekið á fjölmiðlabraut. Þar lauk hann námi á sviði grafískar miðlunar vorið 2014 og prentunar haustið 2014 og var dúx Tækniskólans það haust. Síðan lauk hann stúdentsprófi frá Tækniskólanum vorið 2015. Árni Þór hóf nám við guðfræði- og trúarbragðafræðideild haustið 2015 og lauk þar B.A.-prófi í guðfræði í febrúar 2019. Þar næst lauk hann mag. theol.- prófi frá guðfræði- og trúarbragðafræðideild í febrúar 2021. Unnusta hans er Hulda María Albertsdóttir og er hún hjúkrunarfræðingur að mennt. Þau eiga eina dóttur saman og er hún átta mánaða gömul.
Prestakallið
Í Víkurprestakalli, Suðurprófastsdæmi, eru sex sóknir. Víkursókn er með flesta íbúa 563, Reynissókn með 72 íbúa, Skeiðflatarsókn með 129, Ásólfsskálasókn 84, Eyvindarhólasókn 141 og Stóra-Dalssókn með 73 íbúa.
Samtals eru íbúar 1.062, þar af 513 sem tilheyra þjóðkirkjunni.
Í prestakallinu eru átta guðshús. Auk sóknarkirknanna sem eru Víkurkirkja, Reyniskirkja, Skeiðflatarkirkja, Ásólfsskálakirkja, Eyvindarhólakirkja og Stóra-Dalskirkja eru Skógarkirkja á Skógum og Sólheimakapella.
Prestsbústaður er í Vík og þar er starfsaðstaða sóknarprestsins.
Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna – Biskupsstofu og önnur kirkjuleg stjórnvöld.

hsh


  • Frétt

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Starf

  • Umsókn

  • Biskup

Háteigskirkja

Laust starf

30. apr. 2024
...prests í Háteigsprestakalli
Sr. Sigurvin Lárus Jónsson

Sr. Sigurvin Lárus ráðinn prestur

30. apr. 2024
…í Garðaprestakall
Lokahátíð barnastarfsins í Akureyrarkirkju.jpg - mynd

Lokahátíð barnastarfs Akureyrarkirkju 2024

29. apr. 2024
...mikil tónlistrveisla