Framboð til kirkjuþings

18. febrúar 2022

Framboð til kirkjuþings

Fundarbjalla kirkjuþings - mynd: hsh

Senn líður að kosningu til kirkjuþings 2022-2026. „Kirkjuþing hefur æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar, þar með talið fjárstjórnarvald, nema lög kveði á um annað. Kirkjuþing markar stefnu þjóðkirkjunnar í sameiginlegum málefnum hennar, öðrum en þeim sem lúta að kenningu hennar.“ segir í 7. gr. laga um þjóðkirkjuna þar sem rætt er um kirkjuþing . 

Á kirkjuþingi situr þjóðkirkjufólk, tólf fulltrúar sem starfa í vígðri þjónustu kirkjunnar sem prestar eða djáknar og síðan sautján aðrir sem koma víða að úr samfélaginu og mörg þeirra hafa starfað í kirkjunni bæði í launuðum störfum og sem sjálfboðaliðar. Samtals 29 fulltrúar. Nánar má lesa um kjördæmi kirkjuþings, kirkjufulltrúa og fleira í starfsreglum um kjör til kirkjuþings. 

Nú er komið að því að velja þetta fólk til fjögurra ára, 2022-2026. Þau sem ætla að bjóða sig fram til kirkjuþings skulu tilkynna kjörstjórn
framboð sitt skriflega, eigi síðar en 15. mars 2022.

Rafrænar kosningar fara svo fram fimmtudaginn 12. maí n.k. frá kl. 12.00 til kl. 12.00 þriðjudaginn 17. maí. Þær munu verða auglýsar nánar síðar.

Af þessu tilefni hefur kjörstjórn þjóðkirkjunnar sent frá sér þesa auglýsingu: 

(Skjáskot)

Auglýsing um framboð til kirkjuþings.pdf

 hsh

 

  • Kirkjuþing

  • Kosningar

  • Leikmenn

  • Prestar og djáknar

  • Samfélag

  • Skipulag

  • Frétt

holarihjaltadal.jpg - mynd

Hólahátíð 2025: Forseti Íslands flytur Hólaræðu

12. ágú. 2025
Hólahátíð fer fram dagana 16. - 17. ágúst n.k. Halla Tómasdóttir forseti Íslands flytur Hólaræðuna að þessu sinni.
garpsdalskirkja2.jpg - mynd

Kirkjuklukkum á Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hringt samtímis til stuðnings íbúum Gasa

05. ágú. 2025
Fimmtudaginn 7. ágúst kl. 13:00 verða kirkjuklukkum dómkirknanna þriggja á Íslandi hringt og hvetja biskupar Íslands til þess að öðrum kirkjuklukkum verði hringt samtímis. Systurkirkjur Þjóðkirkjunnar í Noregi, Svíþjóð...
Elísa Mjöll Sigurðardóttir

Elísa Mjöll ráðin

22. júl. 2025
...sóknarprestur við Breiðafjarðar og Strandaprestakall