Prestsstarf í Breiðholtsprestakalli

30. mars 2022

Prestsstarf í Breiðholtsprestakalli

Presturinn mun hafa skrifstofuaðstöðu í Fella-og Hólakirkju og bera m.a. ábyrgð á barna– og æskulýðsstarfi í prestakallinu - mynd: hsh

Biskup Íslands óskar eftir presti til þjónustu í Breiðholtsprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2022.

Sjá auglýsingu um starfið í heild sinni hér.

Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um ráðningu í prestsstörf nr. 4/2021 og starfsreglna um presta nr. 1110/2011.

Breiðholtsprestakall
Í Breiðholtsprestakalli eru tvær sóknir, Breiðholtssókn og Fella- og Hólasókn. Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna – Biskupsstofu og önnur kirkjuleg stjórnvöld. Sóknirnar eru tvær, hvor með sína sóknarkirkju.

Lögð er sérstök áhersla á að byggja upp barna- og æskulýðsstarf í prestakallinu. Mun erindisbréf fyrir starfið kveða á um sérstakar skyldur prests þar að lútandi. Allir þrír prestar prestakallsins þjóna prestakallinu í heild sinni, en skipta verkefnum á milli sín eins og við á. Prestarnir eru í miklu samstarfi og starfið er mjög fjölbreytt.

Tveir prestar hafa aðstöðu í Fella- og Hólakirkju og einn í Breiðholtskirkju. Ráðið er í stöðu prests sem mun hafa skrifstofuaðstöðu í Fella-og Hólakirkju og bera ábyrgð á barna– og æskulýðsstarfi í prestakallinu. Vegna fjölda innflytjenda í Breiðholti er mikilvægt að presturinn hafi reynslu af starfi með innflytjendum, einkum á meðal barna-og unglinga og hafi áhuga á að efla það í prestakallinu.

Allar gildar umsóknir fara til valnefndar sem fer yfir allar umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8 gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.

Til að umsækjandi teljist hæfur í starfið þarf viðkomandi að hafa lokið mag.theol./cand.theol.- prófi frá Háskóla Íslands ásamt starfsþjálfun hjá Þjóðkirkjunni – Biskupsstofu.

Um starfið gilda lög um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, kjara- og ráðningarsamningar, siðareglur, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar. Er einkum vísað til starfsreglna um presta.

Fyrirvari
Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall.

Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla, hljóti þær samþykki kirkjuþings.

Sr. Bryndís Malla Elídóttir, prófastur við ráðningarferli þetta, veitir nánari upplýsingar um umfang og eðli starfsins í síma 892-2901 eða á netfangið bryndis.malla.elidottir@kirkjan.is.

Einnig er hægt að leita nánari upplýsinga, t.d. hvað varðar starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, hjá Þjóðkirkjunni - Biskupsstofu, s. 528 4000, eða á netfangið jona@kirkjan.is eða ragnhilduras@kirkjan.is.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 13. apríl 2022. Sækja ber rafrænt um starfið á hér á vefnum og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram.

Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.

Vakin er athygli á því að hafi umsækjandi ekki óskað nafnleyndar verður nafn hans sem umsækjanda um starfið birt á vef kirkjunnar www.kirkjan.is að liðnum umsóknarfresti. Verði farið fram á almennar prestskosningar er þó ekki hægt að halda nafnleynd.

hsh
  • Biskup

  • Frétt

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Starf

  • Auglýsing