Bjartsýn við ysta haf

1. apríl 2022

Bjartsýn við ysta haf

Þórshafnarkirkja - fögur og stílhrein - mynd: Jarþrúður Árnadóttir

Öll hús þurfa viðhald. Kirkjur eru þar engin undantekning.

Þórshafnarkirkja á Langanesi tók að rísa úr jörðu 1995 og var vígð 1999. Það var stór stund er þessi fyrsta kirkja reis á Þórshöfn. Hún tekur 160 manns í sæti í kirkjuskipi og á jarðhæð er safnaðarheimili og skrifstofa prestsins. Aðstaða í kirkjustarfi er sem sé prýðileg. 

Á Þórshöfn búa hátt í fjögur hundruð manns í tveimur sóknum, Þórshafnar og Svalbarðs. Kirkjurnar eru þrjár: Svalbarðskirkja í Þistilfirði, Sauðanesneskirkja á Langanesi og Þórshafnarkirkja á Langanesi.

Kirkjan.is hefur tekið eftir því að presturinn á Þórshöfn, Skinnastaða- og Langanesprestakalli í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi, sr. Jarþrúður Árnadóttir, hefur birt myndir á Feisbók af framkvæmdum við kirkjuna. Það var fullt tilefni til að spyrja prestinn út í málin og kirkjustarf við ysta haf.

Fyrsta spurningin var einfaldlega: Hvað er verið að gera við kirkjuna?

„Það er verið að gera við þakið og þetta eru talsvert viðamiklar framkvæmdir,“ svarar sr. Jarþrúður, „við höfum verið að glíma við lekavanda í kirkjunni og hún liggur undir miklum skemmdum. Flætt hefur inn í hana bæði frá turninum og niður í kjallara. Veggir eru mjög rakaskemmdir og parket mjög illa farið í safnaðarheimili.“

Sr. Jarþrúður segir að þetta sé mjög dýr framkvæmd og margir komi að henni. Fyrirtækið Faglausn sjái um framkvæmd og úttekt á verkinu og muni finna verktaka til að sinna því. Þau eru fleiri viðhaldsverkefnin að sögn sr. Jarþrúðar og nefnir að skipta þurfi um parket í kirkjunni og laga sprungur í veggjum. „Svo þarf einnig að mála kirkjuna að utan og það verður gert í sumar,“ segir sr. Jarþrúður og búið er að fá málara í verkið, „Það er hann Ingólfur málari frá Vopnafirði.“


Kirkjustarfið

Sr. Jarþrúður segir að kirkjustarfið hafi gengið vel fyrir sig fyrir sig að janúarmánuði undanskildum. „Eitthvað um að vera í kirkjunni í hverri viku,“ segir hún, „barnastarf fyrir 6-9 ára og Tíu til tólf ára í hverri viku. Foreldramorgnar eru líka vikulega. Og sunnudagaskóli annan hvern sunnudag.“

Fermingarfræðslan hefur sömuleiðis gengið vel fyrir sig. Það eru fimm fermingardrengir og þeir munu fermast 17. og 18. júní.

Þá eru kyrrðar- og fyrirbænastundir í hverri viku og hefur myndast góður hópur í kringum það starf

„Ég fer í vikulegar heimsóknir í leikskólann, svona samverustundir,“ segir sr. Jarþrúður. Eins fer hún í hverri viku á dvalar- og hjúkrunarheimilið Naust og hefur þar um hönd samverustund. Helgistundir hafi verið fáar vegna kóvíds og færðar en allt standi það til bóta. „Þó náðum við guðsþjónustu saman um daginn, 27. mars en þar þjónuðum við, ég og prófasturinn, sr. Jón Ármann Gíslason á Skinnastað.“ Í guðsþjónustunni lék Jón Gunnþórsson á harmónikku tvo sálma og eitt lag eftir hann sjálfan og annað erlent. Sr. Jarþrúður sá um sönginn.

Tónlistarstarfið

Sr. Jarþrúður segir að Jón Gunnþórsson sé í kirkjukór Langanesprestakalls og sé 83 ára gamall. „Við urðum fljótlega vinir og byrjuðum að syngja og spila saman og svo ákváðum við að nýta tónlistina í messu, því hann er duglegur að semja sín eigin lög og við gamla texta - er mjög fær á harmónikkunni,“ segir sr. Jarþrúður en myndskeið af þeim á Feisbók þar sem hann leikur á nikkuna og hún syngur hafa vakið athygli fyrir einlægni og hæversku – og þar sem kynslóðabilið er brúað með glæsibrag.

Þórshöfn er eins og margur annar staður á landinu að það vantar karla í kirkjukórinn og auk þess þurfi fleira yngra fólk í kórinn. „En það kemur,“ segir sr. Jarþrúður full bjartsýni. Þau hafa verið heppin með tónlistarkennara sem hafa getað hlaupið undir bagga með undirspil í kirkjunni þó þeir hafi ekki verið menntaðir í orgelleik og kórstjórn. Allt hafi þetta gengið furðu vel og eru þau þakklát fyrir.

Sr. Jarþrúður er bjartsýn kona og jákvæð og hefur staðið kirkjuvaktina á Þórshöfn á þriðja ár.

Kirkjustarfið á Þórshöfn er gott dæmi um þá mikilvægu varðstöðu sem þjóðkirkjan sinnir um allt land hvort heldur sunnan, vestan norðan eða austan. Kirkja sem ákveðin kjölfesta í byggðinni – kirkja sem heimamönnum á hverjum stað þykir vænt um þó þeir kunni kannski ekki að hafa hátt um það.

hsh

 


Framkvæmdir við Þórshafnarkirkju 


Sr. Jarþrúður fræðir börnin í sunnudagaskólanum

 

 


Sr. Jón Ármann Gíslason, prófastur, og sr. Jarþrúður Árnadóttir

 


Falleg yfirlitsmynd úr Þórshafnarkirkju


  • Menning

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Tónlist

  • Trúin

  • Frétt

  • Kirkjustarf

Hildur Björk Hörpudóttir

Sr. Hildur Björk ráðin

22. nóv. 2024
...prestur við Glerárkirkju
Halldór Bjarki Arnarson

Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma

22. nóv. 2024
... Halldór Bjarki Arnarson semballeikari
Kári Þormar og Hólmfríður Jóhannesdóttir

Heiðursgesturinn átti 80 ára fermingarafmæli

21. nóv. 2024
...fermingarafmælishátíð í Hafnarfjarðarkirkju