Viðtalið: Síðasti lesturinn

14. apríl 2022

Viðtalið: Síðasti lesturinn

Sigurður Skúlason les opinberlega Passíusálma sr. Hallgríms Péturssonar í tólfta og síðasta sinn - mynd: Eddi

Sigurður Skúlason flytur Passíusálmana í Hallgrímskirkju á morgun, föstudaginn langa, 15. apríl, kl. 13.00-18.30. Þetta er í tólfta skipti sem hann les alla sálmana opinberlega. Og það síðasta. Það eru tímamót.

Sigurður er þjóðkunnur leikari. Leikið í leikhúsi, útvarpi, sjónvarpi og kvikmyndum. Hann hefur lagt sérstaklega fyrir sig upplestur og er einn besti upplesari landsins. Sigurður hefur einnig stundað ritstörf og starfað við kennslu.

Kirkjan.is tók hann tali og spurði hann fyrst hvernig hann mæti Passíusálmana sem skáldverk, trúarlegt verk og menningarsögulegt.

„Passíusálmarnir eru ótrúlegt verk, hvernig sem á þá er litið. Einhver fegursta og heitasta trúarjátning sem um getur,“ segir Sigurður, „Ástarsamband Hallgríms við Jesú Krist er svo gegnumheilt og einlægt að það lætur engan mann ósnortinn sem á annað borð kynnir sér Passíusálmana.“
Hann segir sálmana litast af mörgum bragarháttum og þess vegna séu þeir margbreytilegir í forminu. Sálmarnir eru líka að sjálfsögðu misjafnir að gæðum. „Þeir rísa hátt á ýmsum stöðum og þar sem þeir rísa hæst eru þeir snilldin einber.“

Sigurður segir Passíusálmana vera stóran og afgerandi þátt í menningarsögu þjóðarinnar, í þjóðararfinum. Þeir lifi og hafi lifað góðu lífi með íslensku þjóðinni um aldir. Það segi allt sem segja þarf.

En hvenær lastu þá fyrst opinberlega upp í heild sinni?

„Það var í Hallgrímskirkju í Saurbæ á föstudaginn langa 2009 og las þá þar fimm ár í röð,“ segir Sigurður. „Síðan hef ég lesið þá bæði þar og í ýmsum kirkjum höfuðstaðarins: Grafarvogskirkju, Guðríðarkirkju, Hallgrímskirkju og Kópavogskirkju auk þess að lesa þá nokkrum sinnum ásamt öðrum.“

Skyldi einhver einn sálmur vera í uppáhaldi hjá hinum reynda upplesara?

„Eftir að hafa flutt sálmana í heild sinni svona oft hefur tilfinningin fyrir því að þeir eru einmitt það – heild – styrkst meir og meir,“ segir Sigurður, „og þess vegna finnst mér það bæði erfitt og kannski ekki sanngjarnt að taka einhvern eða einhverja þeirra út úr.“

Hann segir sálmana að sjálfsögðu höfða til hans á mismunandi vegu og það geti hvorttveggja verið vegna innihalds og forms.

„Sumir sálmanna eru eins og léttari eða aðgengilegri í flutningi en aðrir. Ég hef tekið eftir því að margt fólk á sér eftirlætissálm og talar gjarnan þá um perlu. Og menn þá frekar sammála um hvaða sálmar það eru, þeir eru ekki margir. Ég ætla þó að neita mér um það hér að taka einn út úr.“

Hversu mikil andleg og líkamleg áreynsla er að lesa sálmana svona samfellt í einni lotu? Undirbýrðu þig með einhverjum hætti?

„Vissulega er það mikil áreynsla að lesa þá alla í einu, þó með hléum sé. Þeir taka vel á sjötta tíma í flutningi og að standa kyrr svo lengi tekur sinn toll,“ segir Sigurður, „Andlega álagið felst í því að halda einbeitingunni vakandi allan þennan tíma, halda utan um heildina og hvern hluta hennar fyrir sig; segja söguna, Píslarsöguna, virða formið, hina ólíku bragarhætti og tengja allt saman.“

Sigurður segist lesa þá yfir nokkrum sinnum vikurnar á undan og reyni að leysa það sem hann hafi ekki leyst almennilega fram að því, hvort sem það lúti að skilningi á efni eða úrlausnarmálum í bragarháttunum, einkum þó hvað varði ljóðstafina, oft með góðri hjálp. Síðustu dagana fyrir lesturinn hyggur hann að það sé best að hvíla sig almennilega.

Það er því fullt tilefni til að leggja leið sína í Hallgrímskirkju á föstudaginn langa og hlýða á hinn einstaka upplestur Sigurðar Skúlasonar.

hsh

 


  • Kirkjustarf

  • List og kirkja

  • Menning

  • Samfélag

  • Trúin

  • Viðburður

  • Frétt

Prestar í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra ásamt fyrirlesurum

Vorfundur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

26. apr. 2024
...síðasti prestafundur sr. Helgu Soffíu sem prófastur
Forsíðumynd-Sumardagurinn fyrst -skrúðganga á kirkjuplani.jpg - mynd

Sumardagurinn fyrsti í Fossvoginum

26. apr. 2024
...fjölsótt dagskrá í kirkjunni
Digraneskirkja

Laust starf

26. apr. 2024
...prests við Digranes- og Hjallaprestakall