Krýsuvíkurkirkja vígð

1. júní 2022

Krýsuvíkurkirkja vígð

Krýsuvíkurkirkja er fallegt guðshús í látleysi sínu - mynd: Jónatan Garðarsson

Sunnudaginn 5. júní á hvítasunnudag kl. 14. 00 verður nýsmíðuð Krýsuvíkurkirkja vígð.

Sr. Kristján Valur Ingólfsson, fyrrum vígslubiskup í Skálholti, mun vígja kirkjuna. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson, prófastur Kjalarnessprófastsdæmis, sr. sr. Gunnþór Þ. Ingason, sem hafði umsjá með fyrri Krýsuvíkurkirkju sem helgidómi og sr. Jónína Ólafsdóttir, sóknarprestur Hafnarfjarðarkirkju, þjóna að vígslunni. Eyjólfur Eyjólfsson og Þóra Björnsdóttir sjá um tónlistarflutning í athöfninni.

Helgihald í Krýsuvíkurkirkju verður sem fyrr í höndum presta Hafnarfjarðarprestakalls. 

Vinafélag Krýsuvíkurkirkju hefur staðið fyrir byggingu kirkjunnar en öll smíði var á vegum Iðnskólans í Hafnarfirði, síðar Tækniskólans og jafnframt Þjóðminjasafns Íslands.

Kirkjan.is fjallaði fyrir rúmum tveimur um endurbyggingu Krýsuvíkurkirkju sem lesa má hér.

Fyrri Krýsuvíkurkirkja brann í ársbyrjun 2010, en hún var byggð 1857. Sú kirkja var að falli komin um miðja síðustu öld þegar Björn Jóhannesson, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, stóð fyrir endurreisn hennar. Krýsuvíkurkirkja var endurvígð á hvítasunnudegi 1964 eftir endurreisnina. Sama ár færði Hafnarfjarðarbær kirkjuna Þjóðminjasafni Íslands til varðveislu. 

Það er því táknrænt að vígsla nýju kirkjunnar, sem er nákvæm eftirmynd þeirrar sem byggð var 1857, eigi sér stað á hvítasunnu.


Krýsuvíkurkirkja rúmar ekki nema 40 manns í sæti og þar af leiðandi verða eingöngu þau sem hafa hlutverki að gegna í vígslumessunni auk náinna velunnara kirkjunnar innan dyra. Öllum sem vilja gefst þó kostur á því að fylgjast með vígslumessunni utan dyra, því að hátölurum verður komið þar fyrir, og geta líka gengið inn í kirkjuna undir lok vígslunnar og neytt þar helgrar kærleiksmáltíðar og tekið þannig virkan þátt í vígslumessunni.

Eftir vígsluna verður boðið til kirkjukaffis í Sveinshúsi í Krýsuvík.

Streymt verður frá kirkjuvígslunni á slóðinni: https://youtu.be/9VJpA-1TUYY

Hægt verður jafnframt að fylgjast með steymisútsendingu frá vígslumessunni á stóru tjaldi í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, og þar verður boðið upp á kirkjukaffi.

Strandberg verður opnað vegna útsendingarinnar kl. 13.30.

hsh






  • Menning

  • Samfélag

  • Trúin

  • Vígsla

  • Kirkjuvígsla

  • Vígslubiskup

  • Frétt

holarihjaltadal.jpg - mynd

Hólahátíð 2025: Forseti Íslands flytur Hólaræðu

12. ágú. 2025
Hólahátíð fer fram dagana 16. - 17. ágúst n.k. Halla Tómasdóttir forseti Íslands flytur Hólaræðuna að þessu sinni.
garpsdalskirkja2.jpg - mynd

Kirkjuklukkum á Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hringt samtímis til stuðnings íbúum Gasa

05. ágú. 2025
Fimmtudaginn 7. ágúst kl. 13:00 verða kirkjuklukkum dómkirknanna þriggja á Íslandi hringt og hvetja biskupar Íslands til þess að öðrum kirkjuklukkum verði hringt samtímis. Systurkirkjur Þjóðkirkjunnar í Noregi, Svíþjóð...
Elísa Mjöll Sigurðardóttir

Elísa Mjöll ráðin

22. júl. 2025
...sóknarprestur við Breiðafjarðar og Strandaprestakall