Sr. Bolli Pétur ráðinn

17. júní 2022

Sr. Bolli Pétur ráðinn

Sr. Bolli Pétur Bollason - mynd: Sigrún Hrönn Bolladóttir

Biskup Íslands  auglýsti fyrir nokkru eftir presti til þjónustu í Tjarnaprestakalli, Kjalarnessprófastsdæmi.

Umsóknarfrestur rann út 9. júní síðastliðinn. Miðað var við að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst, en í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að niðurstaða um ráðningu lægi fyrir.

Valnefnd kaus sr. Bolla Pétur Bollason til starfans og hefur biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, staðfest ráðningu hans. 

Nýi presturinn
Sr. Bolli Pétur Bollason er fæddur á Akureyri 9. ágúst árið 1972 og ólst upp í Laufási við Eyjafjörð Hann tók prestsvígslu 14. júlí árið 2002 og vígðist til Seljaprestakalls í Breiðholti. Árið 2009 var sr. Bolli skipaður sóknarprestur í Laufásprestkalli og þjónaði þar til ársins 2018. Síðan hefur sr. Bolli sinnt afleysingastörfum í ýmsum söfnuðum á höfuðborgarsvæðinu meðal annars í Tjarnaprestkalli þar sem hann hefur nú verið ráðinn til þjónustu.

Tjarnaprestakall
Prestakallið skiptist í tvær sóknir, Ástjarnarsókn og Kálfatjarnarsókn. Sóknarbörn eru rétt liðlega ellefu þúsund. Þessar sóknir eru að mörgu leyti ólíkar.

Kálfatjarnarsókn nær yfir Voga og Vatnsleysuströnd. Undanfarið hefur mikil uppbygging átt sér stað í sveitarfélaginu Vogum og vænta má tvöföldunar íbúafjölda í sveitarfélaginu á næstu árum en íbúafjöldi telur nú um 1.300 manns. Íbúar sveitarfélagsins eru á öllum aldri. Í sveitarfélaginu er einn grunnskóli og einn leikskóli.

Kálfatjarnarsókn er gamall og rótgróinn söfnuður. Söfnuðurinn á Kálfatjarnarkirkju sem er staðsett á Vatnsleysuströndinni. Kálfatjarnarkirkja stendur á fallegum stað og er eftirsótt athafnakirkja. Við kirkjuna er þjónustuhús sem er notað sem viðbót fyrir stórar athafnir sem og minni fundi og samverur.

Ástjarnarsókn nær yfir Ásland, Velli, Skarðshlíð og Hamranes í Hafnarfirði. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í þessum hverfum og er viðbúið að innan fárra ára verði fjöldi sóknarbarna Ástjarnarsóknar kominn upp í 18 þúsund.

Ástjarnarsöfnuður var stofnaður árið 2001 og hóf starfsemi sína í núverandi húsnæði árið 2017. Húsnæðið er ríflega 800 fermetrar að stærð og skipist í skrifstofur, eldhús, kaffihús og stóran fjölnota sal sem getur tekið allt upp í 200 manns í sæti - auk salerna, geymslurýmis og sturtuaðstöðu fyrir starfsfólk. Núverandi húsnæði var upphaflega teiknað sem safnaðarheimili og er áætlað að í framtíðinni verði byggð kirkjubygging við núverandi húsnæði.

Organisti er í fullu starfi við prestakallið. Auk organista starfar í Ástjarnarkirkju kirkjuvörður sem sér um daglegan rekstur safnaðarheimilisins og heldur utan um allt sem í gegnum það fer.

Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna – Biskupsstofu og önnur kirkjuleg stjórnvöld.

hsh

  • Samfélag

  • Starf

  • Biskup

  • Kirkjustarf

  • Menning

  • Frétt

holarihjaltadal.jpg - mynd

Hólahátíð 2025: Forseti Íslands flytur Hólaræðu

12. ágú. 2025
Hólahátíð fer fram dagana 16. - 17. ágúst n.k. Halla Tómasdóttir forseti Íslands flytur Hólaræðuna að þessu sinni.
garpsdalskirkja2.jpg - mynd

Kirkjuklukkum á Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hringt samtímis til stuðnings íbúum Gasa

05. ágú. 2025
Fimmtudaginn 7. ágúst kl. 13:00 verða kirkjuklukkum dómkirknanna þriggja á Íslandi hringt og hvetja biskupar Íslands til þess að öðrum kirkjuklukkum verði hringt samtímis. Systurkirkjur Þjóðkirkjunnar í Noregi, Svíþjóð...
Elísa Mjöll Sigurðardóttir

Elísa Mjöll ráðin

22. júl. 2025
...sóknarprestur við Breiðafjarðar og Strandaprestakall