Erlend frétt: Hver er Júdas?

6. júlí 2022

Erlend frétt: Hver er Júdas?

Mótmælendur límdu sig við ramma myndarinnar - mynd: The Daily Telegraph

Í vikunni gripu fimm róttækir umhverfissinnar til þeirra ráða að líma sig fasta við fimm hundruð ára gamla mynd af síðustu kvöldmáltíðinni í London Royal Academy. Þetta var ekki í fyrsta sinn sem listsýning er trufluð með þessum hætti.

Myndin er þriggja metra löng og er eftirmynd af hinni frægu mynd Leonardo da Vinci (1452-1519). Hún er nánast jafnstór frummyndinni sem er freskumynd í Santa Maria delle Grazie-kirkjunni í Mílanó á Ítalíu.

Upprunalega freskumyndin í Santa Maria delle Grazie-kirkjunni var ekki unnin á hefðbundinn freskuhátt heldur með olíu og eggjalit (tempera) og hefur vegna þess og rakans í veggjunum látið mjög á sjá. Þessi eftirmynd í eigu London Royal Academy er máluð líklega um 1520, jafnvel 1515. Hún sýnir nokkur smáatriði sem horfin eru úr frummyndinni eins og hægri hönd Júdasar og fætur Jesú. Eftirmyndin er talin vera eftir lærisvein Leonardo da Vinci, Giampietrino (1495-1549) – og jafnvel hafi annar lærisveinn hans einnig lagt hönd á verk, Giovanni Antonio Boltraffio (1467-1516).

Hverju er verið að mótmæla?
Umhverfisspjöllum af völdum olíunotkunar. Einn mótmælenda greip til þeirrar túlkunar að breska ríkisstjórnin væri Júdas í þessu tilviki gagnvart framtíðarkynslóðum. Það sem hefði dregið mótmælendur að þessu stórfenglega listaverki og merkingu þess væri að framtíð þeirra hefði samhljóm með þeirri þjáningu sem biði frelsarans – eða með öðrum orðum að framtíðarkynslóðin yrði krossfest.

Málað var undir myndina: „Ekki nýja olíu. (No new oil.)

Einn mótmælendanna, listfræðinemandi, sagði að mengun jarðar væri orðin svo mikil að framtíðin væri að ganga úr greipum ungs fólks. Þetta væri síðasta tækifærið til að vekja athygli á umhverfisspjöllum og vísaði til minnis síðustu kvöldmáltíðarinnar.

Hvað sem fólki kann að þykja um tiltæki umhverfissinnanna þá hefur hin glæsilega kvöldmáltíðarmynd fengið óvænta athygli í nýju samhengi. Myndir af henni hafa birst víða í fjölmiðlum í tengslum við þessi mótmæli gegn umhverfisvá.

Þótt kirkjunnar fólki grípi sjaldnast til róttækra aðgerða sem þessara þá hafa margir í hópi þess látið í ljós alvarlegar áhyggjur vegna ískyggilegrar þróunar í umhverfismálum.

Búist er við frekari mótmælum í þessa veru og hafa listasöfn varann á sér. Mótmælin hófust í síðastliðnum apríl og sagði kirkjan.is til dæmis frá því hér.

The Guardian/The Daily Telegraph/hsh


Upprunalega myndin, freska, í Santa Maria delle Grazie-kirkjunni í Mílanó á Ítalíu

  • Frétt

  • Menning

  • Samfélag

  • Umhverfismál

  • Erlend frétt

processed-B35E206B-E00E-4BE7-B644-52F5433144D5.jpg - mynd

Níu hlutu styrk úr tónlistarsjóði kirkjunnar og STEF

23. des. 2024
Verkefnin sem hlutu styrk eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg. Fjölmargar sterkar umsóknir bárust að þessu sinni sem þykir bera gróskumiklu tónlistarstarfi innan Þjóðkirkjunnar gott vitni.
Vígslubiskup og sóknarpestur ásamt sóknarbarni

Þorláksmessa í Skálholti

23. des. 2024
...kaffibrúsamessa í Þorláksbúð
Altarið í Kirkjuselinu.jpg - mynd

Aðventa í Egilsstaðaprestakalli

23. des. 2024
...fjölbreytt dagská í boði