Helgihald og hreyfing

8. júlí 2022

Helgihald og hreyfing

Kópavogskirkja er bæjarprýði - mynd: hsh

Ekkert jafnast á við fegurð íslenska sumarsins hvort heldur í sveit eða borg. Allt hefur sinn sérstaka svip og ilm.

Takturinn breytist í kirkjustarfi á sumrin og leitast er við að samræma útivist í heilnæmu sumrinu og helgihald.

Kársnessókn bryddar upp á þeirri nýjung í safnaðarstarfi sínu að fara í bænagöngu. Sr. Sigurður Arnarson skipuleggur gönguna með kirkjuverðinum og einum messuþjóni. Þeir munu lesa bænir og ritningarlestra.

Fyrsta bænagangan verður nú á sunnudaginn 10. júlí kl. 11.00. Gengið verður frá Kópavogskirkju.

Bæn er hvort tveggja í senn einstaklingsbundin athöfn og samfélagsleg. Í bænagöngu getur hver beðið með öðrum og sjálfum sér jafnframt. 

Bænin má aldrei bresta þig,
búin er freisting ýmislig.
Þá líf og sál er lúð og þjáð,
lykill er hún að Drottins náð.
                           
                      (Hallgrímur Pétursson).

Bænagangan hefst í Kópavogskirkju með stuttri bæn og að henni lokinni er svo haldið á nokkra valda staði á sunnanverðu Kársnesinu.

Þessir eru staðirnir
Kársnesskóli, við göngustíg sunnan megin á Kársnesi
Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð
Menningarhúsin við Borgarholt.

Fólk er hvatt til að mæta og klæða sig eftir veðri.

Sr. Sigurður segir að í næstu bænagöngum verði farið á aðra staði á Kársnesinu.

Með aukinni áherslu á líkamsrækt hafa margir söfnuðir fléttað saman helgihaldi og hreyfingu. Þar má nefna messur eins og göngumessur, hlaupamessu, íþróttamessu, golfmessu o.s.frv. Bænaganga með helgihaldi er liður í þessu og vel til fundið að ganga að mikilvægum þjónustustofnunum bæjarfélags, staldra þar við og flytja bæn ásamt ritningarlesturm. 

hsh

.

  • Kirkjustarf

  • Menning

  • Nýjung

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Trúin

  • Frétt

holarihjaltadal.jpg - mynd

Hólahátíð 2025: Forseti Íslands flytur Hólaræðu

12. ágú. 2025
Hólahátíð fer fram dagana 16. - 17. ágúst n.k. Halla Tómasdóttir forseti Íslands flytur Hólaræðuna að þessu sinni.
garpsdalskirkja2.jpg - mynd

Kirkjuklukkum á Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hringt samtímis til stuðnings íbúum Gasa

05. ágú. 2025
Fimmtudaginn 7. ágúst kl. 13:00 verða kirkjuklukkum dómkirknanna þriggja á Íslandi hringt og hvetja biskupar Íslands til þess að öðrum kirkjuklukkum verði hringt samtímis. Systurkirkjur Þjóðkirkjunnar í Noregi, Svíþjóð...
Elísa Mjöll Sigurðardóttir

Elísa Mjöll ráðin

22. júl. 2025
...sóknarprestur við Breiðafjarðar og Strandaprestakall