Tilkynning

14. september 2022

Tilkynning

Merki þjóðkirkjunnar

Reykjavík, 14. september 2022

Teymi þjóðkirkjunnar hefur lokið störfum vegna máls er varðar kvartanir vegna sóknarprests í þjóðkirkjunni.

Skýrsla Teymisins er ítarleg og vel unnin. Um Teymið má lesa hér.

Niðurstaða Teymis þjóðkirkjunnar er að sóknarpresturinn hafi í tíu tilvikum orðið uppvís að háttsemi sem stríði gegn ákvæðum 3. gr. EKKO rg. auk þess sem teymið metur háttsemi sóknarprestins í orði og athöfnum, eins og henni hefur verið lýst, ósæmilega, óhæfilega og ósamrýmanleg starfi hans sem sóknarprests.

Í tveimur tilvikum metur teymið háttsemi sóknarprestsins svo að sóknarpresturinn hafi orðið uppvís af orðbundinni kynferðislegri áreitni gagnvart tveimur þolendum. Í þremur tilvikum metur teymið að sóknarpresturinn hafi orðið uppvís af orðbundinni kynbundinni áreitni gagnvart tveimur einstaklingum.

Sóknarpresturinn hefur látið af störfum við prestakallið. Áformað er að veita prestinum skriflega áminningu.

Þjóðkirkjan mun tryggja að það góða starf sem byggt hefur verið upp í prestakallinu verði áfram við lýði og þeim sem það sækja til blessunar.

Þjóðkirkjan harmar þann sársauka sem þolendur hafa upplifað.

Þjóðkirkjan hafnar allri ofbeldismenningu og stendur ávallt með þolendum.

  • Frétt

Sr. Flosi 2.jpg - mynd

Andlát

29. okt. 2025
...sr. Flosi Magnússon er látinn
IMG_6011.jpg - mynd

Kirkjuþing sett í Dómkirkjunni

25. okt. 2025
Setningarathöfn fór fram í Dómkirkjunni í morgun. Forseti kirkjuþings, dómsmálaráðherra og biskup Íslands ávörpuðu setningarathöfnina.