Laust prestsstarf

20. september 2022

Laust prestsstarf

Guðríðarkirkja -mynd-Hreinn Hákonarson

Biskup Íslands auglýsir starf prests við Grafarholtsprestakalli.

Biskup Íslands óskar eftir presti til þjónustu í Grafarholtsprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Miðað er við að ráðið verði í starfið frá 1. janúar 2023.
Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um ráðningu í prestsstörf nr. 4/2021 og starfsreglna um presta nr. 1011/2011.

Sjá auglýsinguna í heild sinni hér.

Grafarholtsprestakall

Guðríðarkirkja er eina starfsstöð safnaðarins. Kirkjuskipið er hægt að opna yfir í safnaðarsal og tekur þannig rúmlega 300 manns; þá er rúmgóð afgreiðsla (skrifstofa) og tvær skrifstofur fyrir presta. Til staðar er einnig lítill salur til smærri funda og athafna; anddyri, eldhús; geymslurými og snyrtingar að ógleymdu fallegu opnu útisvæði.

Íbúafjöldi

Þegar Guðríðarkirkja var vígð bjuggu á safnaðarsvæðinu um 5 þúsund manns.
Nú búa á svæðinu (póstnúmer 113) samtals 8104.

Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna – Biskupsstofu og önnur kirkjuleg stjórnvöld.

Allar gildar umsóknir fara til valnefndar sem fer yfir allar umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8 gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.

Valnefnd skal ná samstöðu um einn umsækjanda en valið skal byggt á fyrirliggjandi þarfagreiningu og rökstutt á grundvelli hennar. Í framhaldinu ræður biskup viðkomandi í starfið, að því gefnu að hann telji niðurstöður valnefndar reistar á lögmætum sjónarmiðum.

Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 13. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.

Umsækjendur skulu gera skriflega grein fyrir starfsferli og starfsreynslu og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram. Umsókn ber að fylgja staðfest afrit af prófskírteini ásamt einkunnum, svo og upplýsingar um starfsþjálfun eftir því sem við á. Einnig skal fylgja staðfesting á annarri menntun og þjálfun sem nýtist í starfi. Til að umsækjandi teljist hæfur í starfið þarf viðkomandi að hafa lokið mag.theol/cand.theol prófi frá Háskóla Íslands ásamt starfsþjálfun hjá Þjóðkirkjunni – Biskupsstofu.

Umsækjendum ber að skila greinargerð, að hámarki 500 orð, um framtíðarsýn sína og væntingar varðandi þjónustuna.

Þá skulu umsækjendur fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá um viðkomandi umsækjanda, sbr. 4. gr. starfsreglnanna. Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni. Tengil á eyðublaðið er að finna hér.

Um starfið gilda lög um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, kjara- og ráðningarsamningar, siðareglur, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar. Er einkum vísað til starfsreglna um presta.

Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall. Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla, hljóti þær samþykki kirkjuþings.

Sr. Bryndís Malla Elídóttir, prófastur við ráðningarferli þetta, veitir nánari upplýsingar um umfang og eðli starfsins í síma 892-2901 eða á netfangið bryndis.malla.elidottir@kirkjan.is og einnig sr. Leifur Ragnar Jónsson, sóknarprestur, í síma 771-4388 eða á netfangið leifur.ra@kirkjan.is.

Líka er hægt að leita nánari upplýsinga, t.d. hvað varðar starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, hjá Þjóðkirkjunni - Biskupsstofu, s. 528 4000, eða á netfangið jona@kirkjan.is eða ragnhilduras@kirkjan.is.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 2. október 2022.

Sækja ber rafrænt um starfið á hér á vefnum og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram.
Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.

Vakin er athygli á því að hafi umsækjandi ekki óskað nafnleyndar verður nafn hans sem umsækjanda um starfið birt á vef kirkjunnar www.kirkjan.is að liðnum umsóknarfresti. Hér  er að finna eyðublað þar sem umsækjendur geta óskað nafnleyndar. Verði farið fram á almennar prestskosningar er þó ekki hægt að halda nafnleynd.

slg



Myndir með frétt

Altari Guðríðarkirkju- mynd-Hreinn Hákonarson
Einn af görðum Guðríðarkirkju-mynd-Hreinn Hákonarson
  • Auglýsing

  • Biskup

  • Kærleiksþjónusta

  • Kirkjustarf

  • Prófastur

  • Safnaðarstarf

  • Sálgæsla

  • Samfélag

  • Starfsumsókn

  • Æskulýðsmál

processed-B35E206B-E00E-4BE7-B644-52F5433144D5.jpg - mynd

Níu hlutu styrk úr tónlistarsjóði kirkjunnar og STEF

23. des. 2024
Verkefnin sem hlutu styrk eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg. Fjölmargar sterkar umsóknir bárust að þessu sinni sem þykir bera gróskumiklu tónlistarstarfi innan Þjóðkirkjunnar gott vitni.
Vígslubiskup og sóknarpestur ásamt sóknarbarni

Þorláksmessa í Skálholti

23. des. 2024
...kaffibrúsamessa í Þorláksbúð
Altarið í Kirkjuselinu.jpg - mynd

Aðventa í Egilsstaðaprestakalli

23. des. 2024
...fjölbreytt dagská í boði