Eyjamessa í Bústaðakirkju

9. janúar 2023

Eyjamessa í Bústaðakirkju

Gos á Heimaey

Löng hefð er fyrir því að svokallaðar átthagamessur séu haldnar í Bústaðakirkju.

Það eru átthagafélögin sem staðið hafa að helgihaldinu í samstarfi við starfsfólk kirkjunnar.

Nú er blásið til Eyjamessu í Bústaðakirkju sunnudaginn 15. janúar kl. 13:00 þar sem gossins sem hófst á Heimaey þann 23. janúar árið 1973 fyrir nærri 50 árum er minnst.

Það er Átthagafélag Vestmannaeyinga í Reykjavík sem annast veitingar í gosmessukaffi að guðsþjónustu lokinni.

Í kaffinu munu tvö systkini sem voru 9 og 17 ára í gosinu segja frá reynslu sinni þegar þau flúðu ásamt öllum íbúum Vestmannaeyja í gosinu, frá Eyjum.

 

Heimaeyjargosið hófst 23. janúar árið 1973.



Gosið er fyrsta eldgos sem hefst í byggð á Íslandi.

Giftusamlegri björgun á fólki og stórum hluta af eignum er minnst þegar gosið er rifjað upp.

Þó að nýjar kynslóðir Íslendinga hafi ekki upplifað atburðina örlagaríku eru þeir þó greyptir í hjörtu Eyjafólks.

Minningarnar lifa og munu berast frá manni til manns, frá kynslóð til kynslóðar.

Sem lið í þeirri þakkargjörð sem björgun á íbúum og endurreisn byggðarinnar var, er efnt til nefndrar Eyjamessu í aðdraganda 50 ára afmælis gosupphafsins.

Eyjamessan fer fram í Bústaðakirkju, sunnudaginn 15. janúar kl. 13:00.

Sr. Karl Sigurbjörnsson biskup emeritus og prestur í Vestmannaeyjum á tímum gossins, prédikar.

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum flytur ávarp og sr. Þorvaldur Víðisson, sóknarprestur í Fossvogsprestakalli og fyrrum prestur í Vestmanneyjum þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum.

Guðrún Erlingsdóttir, formaður Átthagafélags Vestmannaeyinga í Reykjavík, flytur ávarp og Jónas Þórir organisti leiðir tónlistina.

Félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju syngja undir stjórn Jónasar Þóris, sem og Helgi Hermannsson gítarleikari og söngvari, Gísli Helgason flautuleikari og Rósalind Gísladóttir söngkona.

 

slg


  • Kirkjustaðir

  • Kirkjustarf

  • Leikmenn

  • Messa

  • Prestar og djáknar

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Sjálfboðaliðar

  • Heimsókn

Söngvahátíð 7.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna á Akureyri og í Reykjavík

23. apr. 2024
...börnin syngja í útvarpsmessu á sumardaginn fyrsta
Bænagangan 3.jpg - mynd

Bænagangan 2024

23. apr. 2024
...á sumardaginn fyrsta