Gróska í helgihaldi Bústaðakirkju

9. febrúar 2023

Gróska í helgihaldi Bústaðakirkju

Sr. Þorvaldur, sr. Hjálmar og Jónas kantor

Níuviknafastan í Bústaðakirkju hófst á messu sunnudaginn 5. febrúar síðast liðinn kl. 13:00 þar sem séra Hjálmar Jónsson fyrrum dómkirkjuprestur og alþingismaður prédikaði.

Skorað hafði verið á hann að prédika sem mest í bundnu máli, sem hann og gerði.

Í nýrri sálmabók íslensku kirkjunnar sem kom út í lok síðasta árs, eru þrír sálmar eftir séra Hjálmar.

Einn þeirra er við lag Jónasar Þóris kantórs Bústaðakirkju.

Sálmarnir eru eftirfarandi: Þú sem líf af lífi gefur, Á dimmri nóttu bárust boð og Nú leikur blær um lífsins vor.

Síðastnefndi sálmurinn er við lag Marteins H. Friðrikssonar, heitins, fyrrum dómorganista.

Sálmarnir voru allir fluttir í helgihaldi sunnudagsins og fleiri textar og lög séra Hjálmars og Jónasar Þóris.

Félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju sungu undir stjórn Jónasar Þóris kantórs.

Eiríkur Hreinn Helgason, Sæberg Sigurðsson og Marteinn Snævarr Sigurðsson sungu einsöng.

Fjölmenni var í messunni þar sem Jónas Þórir kynnti þau tilefni sem urðu til þess að þeir vinirnir fóru að yrkja og semja saman, en það hafa þeir nú gert í áratugi.

Guðspjallatexti dagsins fjallaði um talenturnar, texti Jesú úr 25. kafla Matteusarguðspjalls.

Séra Hjálmar birti upphaf prédikunar sinnar á facebookk síðu sinni og höfðaði þar til guðspjallstextans:

Bústaðakirkju með brag
best er að heilsa í dag.
Hér er söngvarasveit
og sálin er heit
í kantor sem kann sitt fag.


Þú kominn ert kirkjunnar til
með kórsöng og orgelspil
og klerka í stuði
með kærleikans Guði,
það er yndislegt allt, hér um bil.


Söfnuðinn sannlega þekkjum
er situr á kirkjunnar bekkjum.
Vel er hér mætt
og margt verður rætt
áður en aftur heim strekkjum.


Kantorsins kynning er traust
og klerkurinn tónar við raust.
Miskunn og mildi
eru mest lofuð gildi
og málið er bundið og laust.

Einkum er innihald bragsins
efnið í guðspjalli dagsins.
Þar er talentan þín
og talentan mín
sem við fengum til lífsferðalagsins.

Þú fékkst heilmikla hæfileika,
þú átt hliðina sterka – og veika.
Styrktu hið besta,
stöðva þitt versta
og þá muntu réttlættur reika.


Teldu nú talentur þínar,
við þá talningu óðar þér hlýnar.
Þú ert máttug og sterk,
þú ert meistaraverk
með eigindir allar svo fínar.

hj

 

slg



Myndir með frétt

  • Heimsókn

  • Kirkjustarf

  • List og kirkja

  • Messa

  • Prestar og djáknar

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Tónlist

  • Guðfræði

For hope and future.jpg - mynd

Hjálparstarf Lútherska heimssambandsins gríðarlega mikilvægt

01. júl. 2024
...varaforseti skrifar um hjálparstarfið
Sr. Erla Björk Jónsdóttir

Vel mætt í bænastundir

30. jún. 2024
...í Dalvíkurkirkju