Fjögur sóttu um

10. febrúar 2023

Fjögur sóttu um

Selfosskirkja

Biskup Íslands óskaði nýlega eftir presti til þjónustu í Áborgarprestakalli í Suðurprófastsdæmi.

Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, en í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að niðurstaða um ráðningu liggur fyrir.

Fjórar umsóknir bárust um starfið.

Einn óskaði nafnleyndar en hin eru:

Sr. Guðrún Eggerts Þórudóttir

Sr. Jóhanna Magnúsdóttir

Hilmir Kolbeins mag. theol.


Allar gildar umsóknir fara til valnefndar sem fer yfir allar umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8 gr. starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.

Valnefnd skal ná samstöðu um einn umsækjanda en valið skal byggt á fyrirliggjandi þarfagreiningu og rökstutt á grundvelli hennar.

Í framhaldinu ræður Biskup Íslands viðkomandi í starfið, að því gefnu að hann telji niðurstöður valnefndar reistar á lögmætum sjónarmiðum.

Prestakallið

Í Árborgarprestakalli er 12.001 íbúi, þar af 8.541 sóknarbarn og 6.885 gjaldendur í sjö sóknum og sóknarkirkjum.

Prestakallið er í tveimur sveitafélögum, Árborg og Flóahreppi.

Prestakallið tilheyrir Suðurprófastsdæmi.

Í prestakallinu starfa sóknarprestur og tveir prestar og er það önnur prestsstaðan sem sótt er um nú.

Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna – Biskupsstofu og önnur kirkjuleg stjórnvöld.

 

slg


  • Kirkjustaðir

  • Kirkjustarf

  • Prestar og djáknar

  • Starf

  • Biskup

holarihjaltadal.jpg - mynd

Hólahátíð 2025: Forseti Íslands flytur Hólaræðu

12. ágú. 2025
Hólahátíð fer fram dagana 16. - 17. ágúst n.k. Halla Tómasdóttir forseti Íslands flytur Hólaræðuna að þessu sinni.
garpsdalskirkja2.jpg - mynd

Kirkjuklukkum á Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hringt samtímis til stuðnings íbúum Gasa

05. ágú. 2025
Fimmtudaginn 7. ágúst kl. 13:00 verða kirkjuklukkum dómkirknanna þriggja á Íslandi hringt og hvetja biskupar Íslands til þess að öðrum kirkjuklukkum verði hringt samtímis. Systurkirkjur Þjóðkirkjunnar í Noregi, Svíþjóð...
Elísa Mjöll Sigurðardóttir

Elísa Mjöll ráðin

22. júl. 2025
...sóknarprestur við Breiðafjarðar og Strandaprestakall