Bjarnaneskirkja við Laxá endurgerð í líkani

17. maí 2023

Bjarnaneskirkja við Laxá endurgerð í líkani

Ragnar Imsland og Hjalti Egilsson

Margir sakna gömlu Bjarnaneskirkju við Laxá í Bjarnanesprestakalli enda var þetta glæsileg kirkja sem stóð á fallegum stað í Nesjum í Austur – Skaftafellssýslu, og eiga þar margir góðar minningar.

Á dögunum var Bjarnanessókn færð kirkjan endurbyggð að gjöf í formi líkans.

Hinn 87 ára gamli þúsundþjalasmiður Ragnar Imsland sá um smíðina, allt frá girðingarstaurum að kirkjuklukkunni sem hangir í turni kirkjunnar.

Þetta er sannkölluð listasmíð, eða eins og Hjalti Egilsson formaður sóknarnefndar sagði við afhendinguna:

„Þetta er ekki bara líkan, þetta er listaverk.“

Kirkjan er 90 sentimetrar að lengd og 43 sentimetrar að breidd.

Það hefur svo sannarlega verið vandað til verka eins og Ragnari er von og vísa, og reyndi hann eftir bestu getu að hafa þetta sem líkast gömlu kirkjunni og hægt var.

Það þýddi að legið var yfir gömlum myndum því ekki voru til neinar almennilegar teikningar af kirkjunni.

Verkið tók um fjóra mánuði og lauk með því að hann afhenti sóknarnefndinni kirkjuna.

Ragnar útbjó kirkjuna þannig að hægt er að koma fyrir lýsingu og innanstokksmunum sem hugsanlega koma einhvern tímann í framtíðinni.

Á meðan líkaninu verður fundinn góður staður í Bjarnaneskirkju verður hún til sýnis í Ekru þar sem starfrækt er félagsstarf aldraðra á Höfn í Hornafirði.

Á heimasíðu Bjarnanesprestakalls segir meðal um Bjarnaneskirkju við Laxá:

 

Einar Erlendsson teiknaði Bjarnaneskirkju eftir hugmynd Rögnvalds Ólafssonar.

Yfirsmiður kirkjunnar var Jens Eyjólfsson.

Bjarnaneskirkja var svo vígð árið 1911.

Kirkjan var byggð úr steypu og með kjallara undir.

Var kjallarinn notaður til samkomuhalds og mannfunda allt til ársins 1952.

Enn í dag eru menn og konur að minnast á böllin og skemmtanirnar sem haldin voru í kjallaranum.

Bjarnaneskirkja við Laxá var á sínum tíma hið veglegasta hús.

Það var að tilstuðlan kvenna í Nesjunum að stór og vegleg altaristafla var sett í kirkjuna árið 1922, sem gerð var af Jóni Þorleifssyni frá Hólum í Nesjum.

Almenn ánægja var með kirkjuna, en fljótlega fór að bera á stórfelldum smíðagöllum.

Steypan í kirkjunni var vond og auk þess lak turninn.

Kirkjan var að mestu leyti endurbyggð á árunum 1922 – 1924, en viðgerðirnar þóttu ekki fullnægjandi.

Það var því árið 1956 að fulltrúi húsasmíðameistara ríkisins lýsti því yfir að kirkjan væri varla hæf til viðgerðar.

Kirkjan var rifin 1973.

 

Sóknarprestar sem þjónuðu í þessari kirkju voru:

Séra Benedikt Eyjólfsson 1906 – 1913

Séra Þórður Oddgeirsson 1914 – 1918

Séra Ólafur Stephensen 1919 – 1930

Séra Eiríkur Helgason 1931 – 1954

Séra Rögnvaldur Finnbogason 1954 – 1959

Séra Skarphéðinn Pétursson 1959 – 1974

Nú verandi prestar í Bjarnanesprestakalli eru sr. Gunnar Stígur Reynisson og sr. Karen Hjartardóttir.

 

slg



Myndir með frétt

  • Kirkjustarf

  • List og kirkja

  • Prestar og djáknar

  • Samfélag

  • Sóknarnefndir

  • Kirkjustaðir

holarihjaltadal.jpg - mynd

Hólahátíð 2025: Forseti Íslands flytur Hólaræðu

12. ágú. 2025
Hólahátíð fer fram dagana 16. - 17. ágúst n.k. Halla Tómasdóttir forseti Íslands flytur Hólaræðuna að þessu sinni.
garpsdalskirkja2.jpg - mynd

Kirkjuklukkum á Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hringt samtímis til stuðnings íbúum Gasa

05. ágú. 2025
Fimmtudaginn 7. ágúst kl. 13:00 verða kirkjuklukkum dómkirknanna þriggja á Íslandi hringt og hvetja biskupar Íslands til þess að öðrum kirkjuklukkum verði hringt samtímis. Systurkirkjur Þjóðkirkjunnar í Noregi, Svíþjóð...
Elísa Mjöll Sigurðardóttir

Elísa Mjöll ráðin

22. júl. 2025
...sóknarprestur við Breiðafjarðar og Strandaprestakall