Laust starf

6. júlí 2023

Laust starf

Digraneskirkja

Biskup Íslands óskar eftir presti til þjónustu við Digranes- og Hjallaprestakall í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.

Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. september n.k.

Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um ráðningu í prestsstörf nr. 17/2021-2022 og starfsreglna um presta nr. 39/2022-2023.

Með umsókn sinni staðfesta umsækjendur að þeir hafi átt þess kost að kynna sér þessar reglur.

Prestakallið

Digranesprestakall og Hjallaprestakall voru sameinuð árið 2020 og mynda nú eitt öflugt prestakall með tvær sóknir og tvær fallegar kirkjur.

Prestakallið tilheyrir Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og er hluti af samstarfssvæði kirkjunnar í Kópavogi sem byggir á góðu skipulagi og traustri samvinnu.

Góð aðstaða er í báðum kirkjum prestakallsins, bæði til helgihalds og almenns safnaðarstarfs, auk vel búinna skrifstofa.

Framundan er markviss safnaðaruppbygging í báðum söfnuðunum.

Sóknarnefndirnar munu auka samstarf sín á milli en leggja einnig áherslu á að sérstaða kirknanna verði virt.

Horft er til þess að efla innra starf kirkjunnar með fjölbreyttum og hugmyndaríkum hætti.

Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna – biskupsstofu og önnur kirkjuleg stjórnvöld.

Allar gildar umsóknir fara til valnefndar sem fer yfir allar umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.

Valnefnd skal ná samstöðu um einn umsækjenda en valið skal byggt á fyrirliggjandi þarfagreiningu og rökstutt á grundvelli hennar.

Í framhaldinu ræður biskup viðkomandi í starfið, að því gefnu að hann telji niðurstöður valnefndar reistar á lögmætum sjónarmiðum.

Valnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 13. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.

Umsækjendur skulu gera skriflega grein fyrir starfsferli og starfsreynslu og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram.

Umsókn ber að fylgja staðfest afrit af prófskírteini ásamt einkunnum, svo og upplýsingar um starfsþjálfun eftir því sem við á.

Einnig skal fylgja staðfesting á annarri menntun og þjálfun sem nýtist í starfi.

Til að umsækjandi teljist hæfur í starfið þarf viðkomandi að hafa lokið mag.theol/cand.theol prófi frá Háskóla Íslands ásamt starfsþjálfun hjá Þjóðkirkjunni – biskupsstofu.

Umsækjendum ber að skila greinargerð, að hámarki 500 orð, um framtíðarsýn sína og væntingar varðandi þjónustuna.

Þá skulu umsækjendur fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá um viðkomandi umsækjanda, sbr. 4. gr. starfsreglnanna.

Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni.

Tengil á eyðublaðið er að finna hér.

Um starfið gilda lög um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, kjara- og ráðningarsamningar, siðareglur, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar.

Er einkum vísað til starfsreglna um presta.

Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall.

Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla, hljóti þær samþykki kirkjuþings.

Sr. Bryndís Malla Elídóttir, prófastur, veitir nánari upplýsingar um umfang og eðli starfsins í síma 892 2901 eða á netfangið bryndis.el@kirkjan.is.

Einnig er hægt að leita nánari upplýsinga, t.d. hvað varðar starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, hjá Þjóðkirkjunni – biskupsstofu í síma 528 4000 eða á netfangið gyda@kirkjan.is eða ragnhilduras@kirkjan.is.

Umsóknar frestur er til miðnættis 19. júlí 2023.

Sækja ber rafrænt um starfið hér  á vefnum og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram.

Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.

Vakin er athygli á því að hafi umsækjandi ekki óskað nafnleyndar verður nafn hans sem umsækjanda um starfið birt á vef kirkjunnar, www.kirkjan.is, að liðnum umsóknarfresti.

Hér  er að finna eyðublað þar sem umsækjendur geta óskað nafnleyndar.

Verði farið fram á almennar prestskosningar er þó ekki hægt að halda nafnleynd.

Vakin er athygli á því að fundur valnefndar fer fram aðra vikuna í ágúst.

 

Þarfagreining fyrir Digranes- og Hjallaprestakall.

Digranesprestakall og Hjallaprestakall voru sameinuð árið 2020 og mynda nú eitt öflugt prestakall með tvær sóknir og tvær fallegar kirkjur.

Prestakallið tilheyrir Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og er hluti af samstarfssvæði kirkjunnar í Kópavogi sem byggir á góðu skipulagi og traustri samvinnu.

Samanlagður íbúafjöldi í sóknunum er 17.870.

Í Digranessókn búa 11.077, þar af 6342 í þjóðkirkjunni.

Í Hjallasókn búa 6793, þar af 3377 í þjóðkirkjunni.

8275 eru 16 ára og eldri í prestakallinu.

Í prestakallinu eru tíu leikskólar, fjórir grunnskólar og einn framhaldsskóli.

Á samstarfssvæðinu er vaktsími sem prestarnir skiptast á að vera með og sinna jafnframt þjónustu við dvalar- og hjúkrunarheimilin í Kópavogi, Boðaþing, Roðasali og Sunnuhlíð.

Góð aðstaða er í báðum kirkjum prestakallsins, bæði til helgihalds og almenns safnaðarstarfs, auk vel búinna skrifstofa.

Miklar áskoranir hafa verið í prestakallinu og vilji sóknarnefnda er að horft sé til framtíðar með jákvæðni og gleði.

Prestakallinu er nú þjónað af sóknarpresti, starfsfólki safnaðanna og sjálfboðaliðum.

Helgihald

Messað er hvern helgan dag í báðum kirkjum prestakallsins.

Vilji er til að auka fjölbreytni í helgihaldi og nýta tækifærið sem gefst með ólíkum messutíma í kirkjunum og ólíku messuformi.

Gott orgel er í báðum kirkjum og góður hljómburður og mikill áhugi er hjá sóknarnefndunum að nýta það sem lyftistöng fyrir helgihald kirkjunnar.

Horft er til þess að bjóða einnig upp á helgihald á virkum dögum t.d. fyrir barnafjölskyldur.

Safnaðarstarf

Sunnudagaskóli er hvern sunnudag yfir vetrarmánuðina, auk sex til níu ára starfs, tíu til tólf ára starfs, æskulýðsstarfs og fermingarfræðslu.

Vilji sóknarnefnda er að efla allt barna- og æskulýðsstarf í báðum kirkjum og leita nýrra leiða til þess að auka samverustundir fyrir börn og unglinga.

Foreldramorgnar eru í hverri viku og öflugt starf er einnig fyrir eldri borgara.

Safnaðaruppbygging

Framundan er markviss safnaðaruppbygging í báðum söfnuðunum.

Sóknarnefndirnar munu auka samstarf sín á milli en leggja einnig áherslu á að sérstaða kirknanna verði virt.

Horft er til þess að efla innra starf kirkjunnar með fjölbreyttum og hugmyndaríkum hætti.

Fjölga á samverustundum og opna kirkjurnar fyrir ólíkum hópum með það að markmiði að sóknarbörn finni að kirkjan er opinn faðmur sem tekur vel á móti öllum.

Unnið verður að því að efla og styrkja ímynd kirknanna með jákvæðum hætti þar sem styrkleikar safnaðarstarfsins verða sýnilegir sem og sú þjónusta sem prestar kirkjunnar veita.

Vilji er til þess að byrja strax í haust með hópastarf í kirkjunum eins og t.d. prjónahópa, karlakaffi, vinir í bata, opið hús ofl.

Helstu áherslur í starfi

Presturinn mun hafa umsjón með og vera með viðveru í barna- og æskulýðsstarfi í prestakallinu og þarf því að hafa fjölbreytta og viðamikla þekkingu og reynslu af slíku starfi.

Presturinn þarf að hafa reynslu af fermingarfræðslu og vera tilbúinn að leiða nýbreytni í starfinu.

Presturinn mun halda utan um teymi leiðtoga í barna- og æskulýðsstarfinu.

Hann þarf því að hafa reynslu af leiðtogaþjálfun og stjórnun í æskulýðsstarfi.

Presturinn þarf að vera tilbúinn að sinna öllum almennum prestsstörfum og leiða fjölbreytt helgihald.

Presturinn mun hafa viðveru í báðum kirkjum eftir nánara skipulagi og fasta viðtalstíma.

Hann þarf að vera tilbúinn að sinna vaktsímanum og þjónustu við dvalar- og hjúkrunarheimilin í Kópavogi.

Presturinn mun vinna í teymi og þarf að líta á það sem kost í allri samvinnu.

Gerður verður samstarfssamningur milli prestanna í prestakallinu.

Presturinn þarf að hafa til að bera mikla færni í mannlegum samskiptum og samvinnu, vera heiðarlegur, jákvæður, samviskusamur og skipulagður.

Hann þarf að geta starfað sjálfstætt en vera jafnframt tilbúinn að leiða saman ólíka hópa og sýna hugmyndaauðgi þegar kemur að nýjungum í safnaðarstarfi.

Reynsla eða menntun í sálgæslu er kostur.

Starfið býður upp á mörg tækifæri fyrir réttan einstakling til þess að blómstra í vaxandi starfi.

Forsíðumyndin er af Digraneskirkju, en myndin hér fyrir neðan er úr Hjallakirkju.

 

slg


Myndir með frétt

Hjallakirkja
  • Biskup

  • Kirkjustaðir

  • Prestar og djáknar

  • Prófastur

  • Samstarf

  • Skipulag

  • Starf

  • Auglýsing

Sr. Erla Björk Jónsdóttir

Vel mætt í bænastundir

30. jún. 2024
...í Dalvíkurkirkju
Sr. Guðrún kveður

Húsfyllir við kveðjumessuna

30. jún. 2024
...sr. Guðrún kveður Grafarvogssöfnuð