Laust starf sóknarprests

2. október 2023

Laust starf sóknarprests

Grundarfjarðarkirkja

Biskup Íslands óskar eftir sóknarpresti til þjónustu við Setbergsprestakall í Vesturlandsprófastsdæmi.

Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. febrúar árið 2024.

Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um ráðningu í prestsstörf nr. 17/2021-2022  og starfsreglna um presta nr. 39/2022-2023.

Með umsókn sinni staðfesta umsækjendur að þeir hafi átt þess kost að kynna sér þessar reglur.

 

Prestakallið

Setbergsprestakall er Grundarfjarðarbær á norðanveru Snæfellsnesi.

Í prestakallinu er einn þéttbýlisstaður og dreifbýli.

Prestakallið er ein sókn, Setbergssókn, með tvær kirkjur, Grundarfjarðarkirkju og Setbergskirkju.

Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna – biskupsstofu og önnur kirkjuleg stjórnvöld.

Allar gildar umsóknir fara til valnefndar sem fer yfir allar umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.

Valnefnd skal ná samstöðu um einn umsækjenda en valið skal byggt á fyrirliggjandi þarfagreiningu og rökstutt á grundvelli hennar.

Í framhaldinu ræður biskup viðkomandi í starfið, að því gefnu að hann telji niðurstöður valnefndar reistar á lögmætum sjónarmiðum.

Valnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 13. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.

Umsækjendur skulu gera skriflega grein fyrir starfsferli og starfsreynslu og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram.

Umsókn ber að fylgja staðfest afrit af prófskírteini ásamt einkunum, svo og upplýsingar um starfsþjálfun eftir því sem við á.

Einnig skal fylgja staðfesting á annarri menntun og þjálfun sem nýtist í starfi.

Til að umsækjandi teljist hæfur í starfið þarf viðkomandi að hafa lokið mag.theol/cand.theol prófi frá Háskóla Íslands ásamt starfsþjálfun hjá Þjóðkirkjunni – biskupsstofu.

Umsækjendum ber að skila greinargerð, að hámarki 500 orð, um framtíðarsýn sína og væntingar varðandi þjónustuna.

Þá skulu umsækjendur fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá um viðkomandi umsækjanda, sbr. 4. gr. starfsreglnanna.

Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni.

Tengil á eyðublaðið er að finna hér.

Um starfið gilda lög um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, kjara- og ráðningarsamningar, siðareglur, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar.

Er einkum vísað til starfsreglna um presta.

Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall.

Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla, hljóti þær samþykki kirkjuþings.

Sr. Gunnar Eiríkur Hauksson, prófastur, veitir nánari upplýsingar um umfang og eðli starfsins í síma 865 9945 eða á netfangið gunnarh@kirkjan.is.

Einnig er hægt að leita nánari upplýsinga, t.d. hvað varðar starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, hjá Þjónustumiðstöð Þjóðkirkjunnar í síma 528 4000 eða á netfangið gyda@kirkjan.is eða ragnhilduras@kirkjan.is.

Umsóknar frestur er til miðnættis 16. október 2023

Sækja ber rafrænt um starfið hér  á vefnum og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram.

Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.

Vakin er athygli á því að hafi umsækjandi ekki óskað nafnleyndar verður nafn hans sem umsækjanda um starfið birt á vef kirkjunnar, www.kirkjan.is, að liðnum umsóknarfresti.

Hér er að finna eyðublað þar sem umsækjendur geta óskað nafnleyndar.

Verði farið fram á almennar prestskosningar er þó ekki hægt að halda nafnleynd.


SETBERGSPRESTAKALL - ÞARFAGREINING

Setbergsprestakall er í Vesturlandsprófastdæmi.

Mörk prestakallsins er Grundarfjarðarbær á norðanverðu Snæfellsnesi.

Í prestakallinu er einn þéttbýlisstaður og dreifbýli.

Prestakallið er ein sókn með tvær kirkjur, Grundarfjarðarkirkju og Setbergskirkju.

Að jafnaði eru 17 guðsþjónustur á ári í Grundarfjarðarkirkju, 4 í Setbergskirkju auk annarra athafna.

Íbúar í prestakallinu eru 868.

Í þjóðkirkjunni eru 537 og þar af eru 115 yngri en 16 ára.

Í Grundarfirði er dvalarheimilið Fellaskjól þar sem tvær athafnir eru á ári og í Grundarfirði er einn grunnskóli, leikskóli, tónlistarskóli og Fjölbrautaskóli Snæfellinga.

Í prestakallinu er organisti, kórstjóri, kirkjukór og kirkjuvörður.

Presturinn hefur starfsaðstöðu í prestsetri, auk smá skrifstofu í Grundarfjarðarkirkju.

Setbergsprestakall er á samstarfssvæði prestakallanna á Snæfellsnesi.

Áhersla er lögð á að nýr prestur búi yfir leiðtogafærni og vilja til samstarfs.

Barna- og æskulýðsstarf hefur verið kraftmikið á undanförnum árum og er lögð áhersla á að halda því starfi áfram.

Þegar litið er til þjónustuþarfar prestakallsins þá leggur sóknarnefndin einnig áherslur á:

1. Kærleiksþjónustu

2. Helgihald

3. Prédikun

4. Tengsl

5. Öldrunarþjónustu

6. Fjölmenningu

7. Fræðslu

 

Hér fyrir neðan er mynd af Setbergskirkju.

slg



Myndir með frétt

  • Auglýsing

  • Biskup

  • Eldri borgarar

  • Kirkjustaðir

  • Prestar og djáknar

  • Prestsbústaðir

  • Sóknarnefndir

  • Starf

  • Þjóðkirkjan

  • Æskulýðsmál

processed-B35E206B-E00E-4BE7-B644-52F5433144D5.jpg - mynd

Níu hlutu styrk úr tónlistarsjóði kirkjunnar og STEF

23. des. 2024
Verkefnin sem hlutu styrk eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg. Fjölmargar sterkar umsóknir bárust að þessu sinni sem þykir bera gróskumiklu tónlistarstarfi innan Þjóðkirkjunnar gott vitni.
Vígslubiskup og sóknarpestur ásamt sóknarbarni

Þorláksmessa í Skálholti

23. des. 2024
...kaffibrúsamessa í Þorláksbúð
Altarið í Kirkjuselinu.jpg - mynd

Aðventa í Egilsstaðaprestakalli

23. des. 2024
...fjölbreytt dagská í boði