Laus staða organista

6. október 2023

Laus staða organista

Altari Guðríðarkirkju- mynd-Hreinn Hákonarson

Sóknarnefnd Grafarholtssóknar auglýsir laust starf organista í 100% starf við Guðríðarkirkju í Grafarholtssókn frá 15. nóvember 2023.

Grafarholtssöfnuður er tæplega 9000 manna söfnuður og nær yfir Grafarholt, Reynisvatnsás og Úlfarsárdal.

Í Guðríðarkirkju er messað hvern helgan dag og þar er fjölbreytt safnaðarstarf.

Við kirkjuna starfa tveir prestar ásamt kirkjuverði og sjálfboðaliðum.

Starfsaðstaða organista er í kirkjunni og þar er nýtt og glæsilegt orgel auk flygils.

Kór Guðríðarkirkju telur um 25 konur en auk þess hefur verið starfræktur barnakór við kirkjuna og fyrirhugað er að halda því áfram.

Helstu starfsskyldur organista er að

leiða og stýra tónlistarstarfi kirkjunnar,

leika undir í helgihaldi, athöfnum og kirkjulegu starfi á vegum kirkjunnar,

stýra og hafa umsjón með kórum kirkjunnar, kirkjukór og barnakór, æfa þá og stjórna,

hafa umsjón með hljóðfærum kirkjunnar og styðja við safnaðarstarf í samstarfi við sóknarprest, sóknarnefnd og starfsfólk kirkjunnar.

Að öðru leyti vísast til starfsreglna þjóðkirkjunnar um kirkjutónlist.

Hæfniskröfur

Umsækjendur þurfa að hafa haldbæra tónlistarmenntun, þar með talið viðurkennt próf frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar eða sambærilegt próf.

Reynsla af tónlistarflutningi við helgihald er nauðsynleg.

Góð reynsla af kórstjórn, listfengi, hugmyndaauðgi, vilja og getu til samstarfs.

Stundvísi og skipulagshæfni er óskað auk sjálfstæðra vinnubragða.

Launkjör, réttindi og skyldur eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Þjóðkirkjunnar og Félags íslenskra organista FÍO.

Með umsóknum skulu fylgja afrit af prófskírteinum og ferilskrá ásamt eyðublaði með samþykki fyrir öflun upplýsinga úr sakaskrá.

Tengil á eyðublaðið má finna hér.

Umsóknarfrestur er til 5. nóvember 2023.

Nánari upplýsingar gefa Leifur Ragnar Jónsson sóknarprestur í s. 771 4388 og á netfanginu leifur.ra@kirkjan.is og Níels Árni Lund formaður sóknarnefndar í síma 893 5052 og á netfanginu lund@simnet.is.

Umsóknum skal skilað á leifur.ra@kirkjan.is

 

slg


  • Kirkjustaðir

  • Kirkjustarf

  • Leikmenn

  • Prestar og djáknar

  • Samstarf

  • Tónlist

  • Tónskóli þjóðkirkjunnar

  • Auglýsing

Prestar í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra ásamt fyrirlesurum

Vorfundur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

26. apr. 2024
...síðasti prestafundur sr. Helgu Soffíu sem prófastur
Forsíðumynd-Sumardagurinn fyrst -skrúðganga á kirkjuplani.jpg - mynd

Sumardagurinn fyrsti í Fossvoginum

26. apr. 2024
...fjölsótt dagskrá í kirkjunni
Digraneskirkja

Laust starf

26. apr. 2024
...prests við Digranes- og Hjallaprestakall