Laust starf

12. júní 2024

Laust starf

Kirkjumiðstöðin á Eiðum

Biskup Íslands auglýsir auglýsir laust til umsóknar starf svæðisstjóra æskulýðsmála í Suður – og Austurlandsprófastsdæmum.

Svæðisstjóri hefur í umboði biskups og prófasta tilsjón með æskulýðsstarfi í Suður- og Austurlandsprófastsdæmum.

 

Helstu verkefni eru:

Svæðisstjóri er staðarhaldari Kirkjumiðstöðvar Austurlands sem staðsett er á Eiðum og er sumarbúðarstjóri sumarbúða að sumri, og sér um skipulag og starfsmannaráðningar sem tengjast þeim.

Svæðisstjóri kemur að stofnun Æskulýðssambands kirkjunnar á Suðurlandi.

Svæðisstjóri hefur tilsjón og heildaryfirsýn með verkefnisstjórum æskulýðsmála og æskulýðsleiðtogum sem starfa fyrir kirkjurnar í prófastsdæmunum.

Svæðísstjóri starfar með starfsfólki sem sér um æskulýðsstarf í sóknum og veitir stuðning og ráðgjöf um æsklýðsmál við presta.

Hann hefur frumkvæði að stofnun safnaðarstarfs fyrir ungmenni í söfnuðum svæðisins á þeim stöðum sem það er ekki fyrir hendi, í samráði við presta.

Svæðisstjóri sér um skipulagningu æskulýðsmóta og annarra viðburða og heldur utan um Leiðtogaskólann á svæðinu.

Auk þess er hann í samstarfi við fræðslusvið þjóðkirkjunnar.

Svæðisstjóri kynni sér stefnumörkun og samþykktir kirkjuþings svo sem fræðslustefnu þjóðkirkjunnar varðandi kirkjulegt starf fyrir ungmenni og vinnur í samræmi við samþykktir héraðsnefnda svæðisins.

Önnur tilfallandi verkefni í samráði við prófasta.

 

Menntunar og hæfniskröfur:

Háskólapróf og reynsla sem nýtist í starfi, t.d. kennari, tómstunda- og félagsmálafræðingur, þroskaþjálfi, guðfræðingur, djákni.

Góð færni í samskiptum.

Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Hæfni til að skipuleggja sig í starfi.

Góð íslenskukunnátta.

Reynsla af starfi með börnum og ungmennum.

Reynsla af rekstri sumarbúða er kostur.

 

Aðrar upplýsingar:

Um er að ræða 100% starf.

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur þjóðkirkjunnar.

Þá skulu umsækjendur fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá um viðkomandi umsækjanda.

Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni.

Tengil á eyðublaðið er að finna hér.

Nánari upplýsingar um starfið veita sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir prófastur Austurlandsprófastsdæmis, sigridur.tr@kirkjan.is eða í síma 698 4958 og Halldóra J. Þorvarðardóttir prófastur Suðurlandsprófastsdæmis, halldorath@kirkjan.is eða í síma 862 6585.

Einnig er hægt að leita nánari upplýsinga hjá Þjóðkirkjunni í síma 528 4000 eða gyda@kirkjan.is.

Þjóðkirkjan áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar Þjóðkirkjunnar og Fræðagarðs.

 

Staðsetning:

Skrifastofa svæðisstjóra er í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4 eða Kirkjuseli Ássóknar, Smiðjuseli 2.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 26. júní 2024.

Starfið er laust frá 1. ágúst 2024.

Svæðisstjórnin nær yfir Austurlandsprófastsdæmi og Suðurprófastsdæmi.

 

slg


  • Auglýsing

  • Biskup

  • Prestar og djáknar

  • Prófastur

  • Samstarf

  • Starf

  • Þjóðkirkjan

  • Æskulýðsmál

Sr. Erla Björk Jónsdóttir

Vel mætt í bænastundir

30. jún. 2024
...í Dalvíkurkirkju
Sr. Guðrún kveður

Húsfyllir við kveðjumessuna

30. jún. 2024
...sr. Guðrún kveður Grafarvogssöfnuð