Laust starf

17. júlí 2024

Laust starf

Hafnarfjarðarkirkja

Biskup Íslands óskar eftir presti til þjónustu við Hafnarfjarðarprestakall, Kjalarnessprófastsdæmi.

Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. október n.k.

Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um ráðningu í prestsstörf nr. 17/2021-2022  og starfsreglna um presta  nr. 6/2023-2024.

Með umsókn sinni staðfesta umsækjendur að þeir hafi átt þess kost að kynna sér þessar reglur.

Prestakallið

Sóknarmörk Hafnarfjarðarsóknar liggja austan Reykjavíkurvegar, að Áslandi austan Reykjanesbrautar og Hvaleyrarholt vestan Reykjanesbrautar.

Hafnarfjarðarsókn, sem tilheyrir Kjalarnesprófastsdæmi, er fjölmenn sókn með 15.352 íbúa.

Í sókninni eru 4 grunnskólar, 8 leikskólar, 1 framhaldsskóli, 2 heilsugæslustöðvar og eitt hjúkrunarheimili.

Gott samstarf kirkjunnar er við allar þessar stofnanir.

Í Hafnarfjarðarprestakalli er ein sóknarkirkja, Hafnarfjarðarkirkja auk Krýsuvíkurkirkju sem endurvígð var árið 2022.

Hafnarfjarðarkirkja er eitt af megin kennileitum Hafnarfjarðar og á sér langa og viðburðaríka sögu innan samfélagsins.

Kirkjan sjálf er afar vel staðsett í hjarta bæjarins og er allur aðbúnaður góður.

Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við þjóðkirkjuna og önnur kirkjuleg stjórnvöld.

Allar gildar umsóknir fara til valnefndar sem fer yfir allar umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.

Valnefnd skal ná samstöðu um einn umsækjenda en valið skal byggt á fyrirliggjandi þarfagreiningu og rökstutt á grundvelli hennar.

Í framhaldinu ræður biskup viðkomandi í starfið, að því gefnu að hann telji niðurstöður valnefndar reistar á lögmætum sjónarmiðum.

Valnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 13. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.

Umsækjendur skulu gera skriflega grein fyrir starfsferli og starfsreynslu og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram.

Umsókn ber að fylgja staðfest afrit af prófskírteini ásamt einkunum, svo og upplýsingar um starfsþjálfun eftir því sem við á.

Einnig skal fylgja staðfesting á annarri menntun og þjálfun sem nýtist í starfi.

Til að umsækjandi teljist hæfur í starfið þarf viðkomandi að hafa lokið mag.theol/cand.theol prófi frá Háskóla Íslands ásamt starfsþjálfun hjá þjóðkirkjunni.

Umsækjendum ber að skila greinargerð, að hámarki 500 orð, um framtíðarsýn sína og væntingar varðandi þjónustuna.

Þá skulu umsækjendur fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá um viðkomandi umsækjanda, sbr. 4. gr. starfsreglnanna.

Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni.

Tengil á eyðublaðið er að finna hér.

Um starfið gilda lög um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, kjara- og ráðningarsamningar, siðareglur, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar.

Er einkum vísað til starfsreglna um presta.

Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall.

Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla, hljóti þær samþykki kirkjuþings.

Sr. Hans Guðberg Alfreðsson, prófastur, veitir nánari upplýsingar um umfang og eðli starfsins í síma 8989701 eða á netfangið hans.al@kirkjan.is.

Einnig er hægt að leita nánari upplýsinga, t.d. hvað varðar starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, hjá Þjóðkirkjunni í síma 528 4000 eða á netfangið gyda@kirkjan.is eða ragnhilduras@kirkjan.is.

Umsóknar frestur er til miðnættis 6. ágúst 2024.

Sækja ber rafrænt um starfið hér á vefnum og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram.

Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020 og laga um jafna meðferð á vinnumarkaði, nr. 86/2018.

Vakin er athygli á því að hafi umsækjandi ekki óskað nafnleyndar verður nafn hans sem umsækjanda um starfið birt á vef kirkjunnar, www.kirkjan.is, að liðnum umsóknarfresti.

Hér er að finna eyðublað þar sem umsækjendur geta óskað nafnleyndar.

Verði farið fram á almennar prestskosningar er þó ekki hægt að halda nafnleynd.

Hafnarfjarðarprestakall - þarfagreining

Sóknarmörk Hafnarfjarðarsóknar liggja austan Reykjavíkurvegar, að Áslandi austan Reykjanesbrautar og um Hvaleyrarholt vestan Reykjanesbrautar.

Hafnarfjarðarsókn, sem tilheyrir Kjalarnesprófastsdæmi, er fjölmenn sókn með 15.352 íbúa.

Í sókninni eru 4 grunnskólar, 8 leikskólar, 1 framhaldsskóli, 2 heilsugæslustöðvar og eitt hjúkrunarheimili.

Gott samstarf kirkjunnar er við allar þessar stofnanir.

Í Hafnarfjarðarprestakalli er ein sóknarkirkja Hafnarfjarðarkirkja auk Krýsuvíkurkirkju sem endurvígð var árið 2022.

Hafnarfjarðarkirkja er eitt af megin kennileitum Hafnarfjarðar og á sér langa og viðburðaríka sögu innan samfélagsins.

Kirkjan sjálf er afar vel staðsett í hjarta bæjarins og er allur aðbúnaður góður.

Gróskumikið starf er unnið innan kirkjunnar og má þar nefna barna- og unglingastarf, eldriborgarastarf og kyrrðarbænastarf sem hefur verið í örum vexti undanfarin ár.

Helgihald er hvern helgan dag í Hafnarfjarðarkirkju en í Krýsuvíkurkirkju er messað að jafnaði tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti.

Síðastliðin tvö ár hefur stefnumótunarvinna farið fram við Hafnarfjarðarkirkju.

Þeirri vinnu er nú lokið og hefur kirkjan mótað skarpar stefnuáherslur til framtíðar.

Starfslýsingar eru til staðar fyrir allt starfsfólk sóknarinnar, innra skipulag starfs er gott og kirkjan er skipuð öflugu og hæfu starfsfólki.

Við Hafnarfjarðarsókn starfar organisti, æskulýðs- og upplýsingafulltrúi, staðarhaldari, kirkjuvörður, kórstjóri barnakórs, kórstjóri unglinga- og ungmennakórs og æskulýðsstarfsfólk í hlutastörfum.

Auk þessa verða sóknarprestur og tveir prestar þjónandi við Hafnarfjarðarkirkju áfram.

Hafnarfjarðarkirkja leitar að jákvæðum og skipulögðum einstaklingi til prestþjónustu.

Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á málefnum þjóðkirkjunnar og vera tilbúin/n að taka þátt í uppbyggingu á gróskumiklu safnaðarstarfi í Hafnarfjarðarsókn.

Samskiptahæfileikar og skilningur góðrar þjónustu eru lykilatriði.

Hæfniskröfur eru:

Vilji til að þjóna og mæta fólki af skilningi og virðingu.

Hæfileiki til að tjá sig í ræðu og riti á áhugaverðan og sannfærandi hátt.

Áhugi á starfi og uppbyggingu þjóðkirkjunnar.

Góðir samskiptahæfileikar.

Vilji til að mynda tengsl og vera virkur í hafnfirsku samfélagi.

Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.

Innsýn og áhugi á ólíkum samskiptamiðlum.

Frumkvæði í að auka fjölbreytni í starfi sóknarinnar.

Áhugi á eflingu fermingarstarfs en áhugi er í söfnuðinum að efla enn frekar þann þátt safnaðarstarfsins.

Reynsla á sviði sálgæslu.

Færni til að vinna í teymi með öðru starfsfólki kirkjunnar.

Áhugi á að sinna fjölbreyttu helgihaldi kirkjunnar.

 

Hér fyrir neðan er mynd frá vígslu Krísuvíkurkirkju á hvítasunnudag þann 5. júní árið 2022.

Sr. Kristján Valur Ingólfsson fyrrum vígslubiskup í Skálholti vígði kirkjuna.

slg


Myndir með frétt

  • Biskup

  • Kirkjustaðir

  • Kirkjustarf

  • Prestar og djáknar

  • Prófastur

  • Samstarf

  • Starf

  • Þjóðkirkjan

  • Auglýsing

Lilja Dögg og forsetahjónin

„Sögustaðir efla samkennd okkar“

22. júl. 2024
...segir menningarráðherra á Skálholtshátíð
Forseti Íslands kom á málstofuna

"Húmorinn var aldrei langt undan"

20. júl. 2024
...málstofa til minningar um sr. Karl Sigurbjörnsson
Málþingið var fjölsótt

"Stríðið gæti þróast yfir á Vesturbakkann"

20. júl. 2024
...áhrifamikið málþing á Skálholtshátíð