Umsækjendur um Breiðabólsstaðarprestakall

9. ágúst 2024

Umsækjendur um Breiðabólsstaðarprestakall

Breiðabólstaðarkirkja

Biskup Íslands óskaði nýlega eftir sóknarpresti til þjónustu við Breiðabólstaðarprestakall í Suðurprófastsdæmi.

Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. nóvember n.k.


Fimm umsókir bárust:

Sr. Jóhanna Magnúsdóttir

Sr. Kristján Arason

Þrír umsækjendur óska nafnleyndar.

Prestakallið

Prestakallið tilheyrir Suðurprófastdæmi og er á samstarfssvæði með Odda og Fellsmúlaprestakalli.

Breiðabólstaðarprestakall samanstendur af fimm sóknum:

Stórólfshvolssókn sem er stærst, Breiðabólstaðarsókn, Hlíðarendasókn, Akureyjarsókn og Krosssókn.

Heildarfjöldi íbúa er 1.824, þar af 1.091 í þjóðkirkjunni.

Í prestakallinu eru sex guðshús:

Stórólfshvolskirkja á Hvolsvelli, Breiðabólstaðarkirkja, Hlíðarendakirkja, Akureyjarkirkja, Krosskirkja og Voðmúlastaðakapella.

Prestsbústaður er á Breiðabólstað og þar er starfsaðstaða sóknarprestsins.

Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við þjóðkirkjuna og önnur kirkjuleg stjórnvöld.

Allar gildar umsóknir fara til valnefndar sem fer yfir allar umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8. gr.starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.

Valnefnd skal ná samstöðu um einn umsækjenda en valið skal byggt á fyrirliggjandi þarfagreiningu og rökstutt á grundvelli hennar.

Í framhaldinu ræður biskup viðkomandi í starfið, að því gefnu að hann telji niðurstöður valnefndar reistar á lögmætum sjónarmiðum.


slg


  • Kirkjustaðir

  • Prestar og djáknar

  • Prófastur

  • Starfsumsókn

  • Biskup

Árni Svanur.jpg - mynd

Í þjónustu við heimskirkjuna

19. sep. 2025
Sr. Árni Svanur Daníelsson er nýr skrifstofustjóri á skrifstofu framkvæmdastjóra Lútherska heimssambandsins.
Fella- og hóla.jpg - mynd

Biskup Íslands boðar til Kirkjuþings unga fólksins

19. sep. 2025
Þingið fer fram í Fella- og Hólakirkju 18. og 19. október n.k.
Sr. Gylfi Jónsson

Andlát

02. sep. 2025
Sr. Gylfi Jónsson er látinn.