Minningarsteinn um Hallgrím Pétursson afhjúpaður

22. ágúst 2024

Minningarsteinn um Hallgrím Pétursson afhjúpaður

Frá vígslu minningarsteinsins

Í tilefni af 350. ártíð sálmaskáldsins Hallgríms Péturssonar var afhjúpaður minningarsteinn um Hallgrím og konu hans Guðríði Símonardóttur á leiði Hallgríms í Saurbæjarkirkjugarði með athöfn í Hallgrímskirkju í Saurbæ og í Saurbæjarkirkjugarði þriðjudaginn 20.ágúst klukkan 17:00.

Sól skein í heiði og blíðskaparveður var þennan dag.

Verkefninu hefur Guðmundur Rafn Sigurðsson fráfarandi framkvæmdastjóri Kirkjugarðaráðs stýrt.

Steininn gerði Þór Sigmundsson steinsmiður.

Áletrun á steininum er gerð samkvæmt tillögu sr. Karls Sigurbjörnssonar fyrrum biskups Íslands.

Áletrunina teiknaði Gunnar Karlsson.

Hollvinafélag Hallgrímskirkju í Saurbæ safnaði styrkjum sem hafa staðið undir öllum kostnaði við gerð steinsins og við flutning gamla steinsins af leiði Hallgríms inn í kirkjuna þar sem honum hefur verið fundinn staður til framtíðar.

Athöfnin hófst í Hallgrímskirkju í Saurbæ klukkan 17:00 þar sem prestar prestakallsins, þau sr. Þráinn Haraldsson og sr. Ólöf Margrét Snorradóttir leiddu helgistund og minnst var helstu viðburða í Saurbæ í tilefni af 350.ártíð Hallgríms Péturssonar.

Sr. Kristján Valur Ingólfsson fyrrum vígslubiskup í Skálholti og ábúandi í Saurbæ minnist Hallgríms og Guðríðar.

Organisti og kórstjóri var Zsuzsanna Budai.

Eftir athöfnina í kirkjunni var gengið að leiði Hallgríms þar sem biskup Íslands frú Agnes M. Sigurðardóttir og frú Kristín Þ. Guðjónsdóttir ekkja sr. Karls Sigurbjörnssonar biskups, afhjúpuðu minningarstein Hallgríms og Guðríðar.

Benedikt Kristjánsson söng einsöng.

Biskup helgaði steininn og blessaði söfnuðinn.

Að athöfn lokinni var messukaffi í boði sóknarnefndar og Hollvinafélagsins í fyrrum prestssetri Saurbæjar.

Meðfylgjandi myndir tók Geir Guðsteinsson.

 

slg



Myndir með frétt

  • Fræðsla

  • Kirkjustaðir

  • List og kirkja

  • Menning

  • Prestar og djáknar

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Tónlist

  • Viðburður

  • Biskup

Sr. Guðrún Karls Helgudóttir

Sr. Guðrún Karls Helgudóttir verður vígð til biskups í Hallgrímskirkju

31. ágú. 2024
...á morgun, sunnudaginn 1. eptember
Biskup afhendir Ingunni Aradóttur viðurkenningu fyrir að syngja í kirkjukór í 45 ár

Viðurkenningar fyrir söng í kirkjukórum og Sálmafoss

31. ágú. 2024
...á Kirkjudögum þjóðkirkjunnar
Regína Ósk og Svenni sjá um sunnudagaskólann

Friður og fjör á Kirkjudögum

30. ágú. 2024
...mikil gleði þrátt fyrir slæmt veðurútlit