Fjölbreytt dagskrá í bleikum október

30. september 2024

Fjölbreytt dagskrá í bleikum október

Bústaðakirkja með bleiku yfirbragði í október - mynd: hsh

Í dag er síðasti dagur september mánaðar.

Í ár eins og undanfarin ár hefur hann verið kallaður gulur september og verið helgaður báráttunni gegn sjálfsvígum.

Margar kirkjur hafa haldið gular messur til að minna á þessa baráttu.

Október mánuður hefst á morgun og hefur hann um árabil verið kallaður bleikur október og verið helgaður baráttunni gegn krabbameini.

Margar kirkjur hafa þá verið lýstar upp í bleikum lit.

Bleikur október í Bústaðakirkju er dagskrá sem helguð er stuðningi við þau fjölmörgu sem glíma við krabbamein og aðstandendur þeirra.

Dagskráin samanstendur af hádegistónleikum alla miðvikudaga kl. 12:05, fræðsluerindum á miðvikudögum og sunnudögum, sem og helgihaldi í anda yfirskriftarinnar:

Miðaldir í helgihaldi og tónlist.

Jónas Þórir organisti hefur veg og vanda að dagskránni ásamt prestum og starfsfólki Bústaðakirkju.

Kammerkór Bústaðakirkju og fleiri

Kammerkór Bústaðakirkju ber uppi tónlistina, þar sem sólistar úr kórnum láta ljós sitt skína.

Einnig munu fleiri einsöngvarar og tónlistarfólk taka þátt, eins og Diddú, Kristján Jóhannsson, Hallveig Rúnarsdóttir, Hjörleifur Valsson, Bergþór Pálsson, Gissur Páll Gissurarson og sönghópurinn Kyrja undir stjórn Ágústar Inga Ágústssonar.

Sjá má dagskrá mánaðarins neðst í þessari frétt.

 

Fræðsludagskrá

Fjölbreytt fræðsludagskrá verður jafnframt í boði í Bleikum október í Bústaðakirkju.

Margrét Kjartansdóttir segir frá veru sinni á Indlandi.

Sr. Flóki Kristinsson flytur erindi um helgihald miðaldarkirkjunnar.

Sr. Skúli S. Ólafsson flytur erindi undir yfirskriftinni:

Hvað fyllti skarð dýrlinganna?   Sálarheill og sálarró á 17. öld.

Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir flytur erindi undir yfirskriftinni:

Ljóðin um Hallgrím.

Arnþór Óli Arason mun fjalla um pílagrímagöngu sína til Rómar.


Helgihaldið verður fjölbreytt

Prestar kirkjunnar leiða helgihaldið ásamt öðru starfsfólki og messuþjónum.

Sigurbjörn Þorkelsson mun prédika 3. nóvember, en í helgihaldinu þann dag verða fluttir sálmar Sigurbjörns við lög Jóhanns Helgasonar.


Aðgangur er ókeypis, en við styðjum Ljósið

Aðgangur er ókeypis að öllum dagskrárliðum Bústaðakirkju í Bleikum október, en boðið verður upp á að leggja endurhæfingarmiðstöðinni Ljósinu lið, með fjárframlagi.

Í fyrra afhentu fulltrúar Bústaðakirkju og Kvenfélags Bústaðasóknar Ljósinu kr. 500.000 í kjölfarið á Bleikum október, eins og sjá má hér.

 

slg

 



Myndir með frétt

  • Kirkjustaðir

  • Kirkjustarf

  • List og kirkja

  • Messa

  • Prestar og djáknar

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Þjóðkirkjan

  • Trúin

  • Fræðsla

Drífa Hjartardóttir forseti kirkjuþings

Kirkjan þarf að mæta fjölskyldum með ung börn

25. okt. 2024
...segir forseti kirkjuþings
Gissur Páll, Kristján, Jónas og Áslákur

Troðfull Bústaðakirkja

25. okt. 2024
...stórsöngvarar sungu
Unnur Halldórsdóttir djákni

Kærleiksþjónustan er forsenda þess að kirkjan lifi

24. okt. 2024
...segir Unnur Halldórsdóttir fyrsta konan sem var vígð djákni á Íslandi