Minningarár í Hallgrímskirkju

30. september 2024

Minningarár í Hallgrímskirkju

Í tilefni af 350. minningarári Hallgríms Péturssonar er mikið um að vera í Hallgrímskirkju í tónlist, máli, bókaútgáfu, fyrirlestrum og myndum.


Október hefst með glans á morgun þriðjudaginn 1. október kl. 12:00, en þá flytur þjóðlagatónlistarmaðurinn Chris Foster fyrirlestur um lög og laglínur Passíusálma Hallgríms Péturssonar á 17 öld. undir yfirskriftinni Upp, upp mín sál eða Up, up my soul.

Fyrirlesturinn er á ensku.

Hallgrímur Pétursson's Hymns of the passion in the folk music tradition of Iceland.

Ókeypis aðgangur er að viðburðinum og léttar veitingar í boði.

Lesa má nánar um hann hér

Laugardaginn 5. október kl. 12:00 verða hádegistónleikar.

Jón Bjarnason, organisti í Skálholtskirkju og Jóhann Ingvi Stefánsson trompetleikari leika á orgel og trompet.

Lesa má nánar um tónleikana hér

 

Þriðjudaginn 8. október kl. 12:00 flytur rithöfundurinn og leikkonan Steinunn B. Jóhannesdóttir fyrirlesturinn Vinir mínir, Guðríður og Hallgrímur.

Ókeypis aðgangur og léttar veitingar í boði.

Lesa má nánar um fyrirlesturinn hér

Þriðjudaginn 15. október kl. 12:00 er fræðsluerindi um sýninguna Hallgrímshorfur.

Hallgerður Hallgrímsdóttir ræðir um það hvernig ung listakona glímir við aldagamalt sálmaskáld og kveðskap frá 17. öld.

Fleiri upplýsingar um Hallgerði má einnig finna á heimasíðu hennar

Tvær hliðar Hallgríms

Tónlistarhópurinn Umbra Ensemble mun vinna með valið efni úr bókinni „Hvað verður fegra fundið?“, en bókin kemur út í október.

Nánar má sjá um viðburðinn hér.

Þriðjudaginn 22. október kl. 12:00 flytur Sigurður Sævarsson tónskáld og skólastjóri fræðsluerindið:

Hallgrímur í tónum og Björn Steinar Sólbergsson tónlistarstjóri Hallgrímskirkju og organisti fjallar um Hallgrímspassíu Sigurðar og tónlist á minningarárinu.

Lesa má nánar um viðburðinn hér.


Miðvikudaginn 23. október kl. 12:00 verða umræður og ganga um sýninguna Hallgrímshorfur, en það er myndlistarsýning á verkum Hallgerðar Hallgrímsdóttur.

Sýningin er unnin út frá lífi og list Hallgríms Péturssonar og samþætt sex kirkjustöðum sem tengjast honum.

Augnablik sem veita áhorfendum aðgang að hugleiðingum um líf og list tveggja einstaklinga mjög svo ólíkra tímaskeiða þar sem Hallgrímur er fæddur á 1614 en Hallgerður 370 árum síðar.

List Hallgríms liggur í tungumálinu en Hallgerðar í ljósmyndun.

Hallgerður lauk MA gráðu í myndlist frá Valand listaháskólanum í Gautaborg og hafði áður lokið námi frá listaháskólanum í Glasgow með áherslu á ljósmyndun.

Sýningarstjóri er Inga Jónsdóttir og mun sýningin standa fram að aðventu.

Fimmtudaginn 24. október kl. 20.00 verður Hallgrímsmessa í kirkjunni.

Kór Breiðholtskirkju syngur undir stjórn Arnar Magnússonar.

Sungið verður messutón úr Graduale frá Hólum frá árinu 1594 og inn í það verður fléttað sálmum meðal annars eftir Hallgrím Pétursson og Jón Þorsteinsson píslarvott.

Ekkert hljóðfæri er notað við messugjörðina.

Lesa má nánar um viðburðinn hér 

Föstudaginn 25. október kl. 17:00 verður útgáfuhóf: Hvað verður fegra fundið?

Tvímálaútgáfa á 50 völdum textum úr verkum Hallgríms Péturssonar á ensku og íslensku.

Valið hafa Irma Sjöfn Óskarsdóttir, Steinunn Jóhannesdóttir, Svanhildur Óskarsdóttir og Margrét Eggertsdóttir, sem einnig er ritstjóri útgáfunnar.

í útgáfuhófinu verða léttar veitingar og skemmtilegar uppákomur.

Nánar má sjá um hófið hér

Sunnudaginn 27. október kl. 11:00  verður hátíðarmessa vegna vígsluafmælis Hallgrímskirkju.

Í messunni verða flutt verk Daníels Þorsteinssonar og Toccata yfir Gefðu að móðurmálið mitt verður frumflutt.

Sunnudaginn 27. október kl. 17:00 verður flutt Hallgrímspassía eftir Sigurð Sævarsson.

Flytjendur eru Kór Hallgrímskirkju og Kammersveit Reykjavíkur, með Unu Sveinbjarnardóttur, konsertmeistara ásamt einsöngvurum.

Steinar Logi Helgason stjórnar og Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgel og einsöngvararnir Jóhann Smári Sævarsson bassi, Fjölnir Ólafsson barítón, Stefán Sigurjónsson bassi, Þorsteinn Freyr Sigurðsson tenór, Þorbjörn Rúnarsson tenór og Hildigunnur Einarsdóttir alt.

Nánar má sjá um tónleikana hér

 

slg

 



Myndir með frétt

  • Kirkjustaðir

  • Kirkjustarf

  • List og kirkja

  • Menning

  • Messa

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Þjóðkirkjan

  • Tónlist

  • Trúin

  • Útgáfa

  • Fræðsla

Drífa Hjartardóttir forseti kirkjuþings

Kirkjan þarf að mæta fjölskyldum með ung börn

25. okt. 2024
...segir forseti kirkjuþings
Gissur Páll, Kristján, Jónas og Áslákur

Troðfull Bústaðakirkja

25. okt. 2024
...stórsöngvarar sungu
Unnur Halldórsdóttir djákni

Kærleiksþjónustan er forsenda þess að kirkjan lifi

24. okt. 2024
...segir Unnur Halldórsdóttir fyrsta konan sem var vígð djákni á Íslandi