Laust starf prests
Biskup Íslands óskar eftir presti til þjónustu í Seljaprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
Miðað er við að viðkomandi getið hafið störf 1.maí 2025.
Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um ráðningu í prestsstörf nr. 17/2021-2022 og starfsreglna um presta nr. 6/2023-2024.
Með umsókn sinni staðfesta umsækjendur að þeir hafi átt þess kost að kynna sér þessar reglur.
Seljaprestakall var stofnað hinn 15. júní 1980 og nær yfir þær götur sem enda á -sel og -skógar í Breiðholti.
Tveir prestar þjóna prestakallinu, sóknarprestur og prestur sem báðir hafa skrifstofur í Seljakirkju auk þess sem nú er starfandi safnaðarráðinn æskulýðsprestur í hálfu starfi.
Íbúafjöldi prestakallsins er um 9000, þar af eru 4679 í þjóðkirkjunni eða 52%.
Lögð er sérstök áhersla á að hlutverks nýs prests er m.a. að viðhalda og styrkja barna og æskulýðsstarf í prestakallinu í samstarfi við æskulýðsstarfsfólk safnaðarins og leita nýrra leiða til að efla kirkjustarfið.
Vísað er til þarfagreiningar fyrir prestakallið varðandi frekari upplýsingar um starfið og starfsumhverfið.
Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna og önnur kirkjuleg stjórnvöld.
Allar gildar umsóknir fara til valnefndar sem fer yfir umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.
Valnefnd skal ná samstöðu um einn umsækjenda en valið skal byggt á fyrirliggjandi þarfagreiningu og rökstutt á grundvelli hennar.
Í framhaldinu ræður biskup viðkomandi í starfið, að því gefnu að hann telji niðurstöður valnefndar reistar á lögmætum sjónarmiðum.
Valnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 13. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.
Umsækjendur skulu gera skriflega grein fyrir starfsferli og starfsreynslu og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram.
Umsókn ber að fylgja staðfest afrit af prófskírteini ásamt einkunum, svo og upplýsingar um starfsþjálfun eftir því sem við á.
Einnig skal fylgja staðfesting á annarri menntun og þjálfun sem nýtist í starfi.
Til að umsækjandi teljist hæfur í starfið þarf viðkomandi að hafa lokið mag.theol/cand.theol prófi frá Háskóla Íslands ásamt starfsþjálfun hjá Þjóðkirkjunni.
Umsækjendum ber að skila greinargerð, að hámarki 500 orð, um framtíðarsýn sína og væntingar varðandi þjónustuna.
Þá skulu umsækjendur fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá um viðkomandi umsækjanda, sbr. 4. gr. starfsreglnanna.
Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni.
Tengil á eyðublaðið er að finna hér.
Um starfið gilda lög um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, kjara- og ráðningarsamningar, siðareglur, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar.
Er einkum vísað til starfsreglna um presta.
Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall.
Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla, hljóti þær samþykki kirkjuþings.
Bryndís Malla Elídóttir, prófastur við ráðningarferli þetta, veitir nánari upplýsingar um umfang og eðli starfsins í síma 892 2901 eða á netfangið bryndis.malla.elidottir@kirkjan.is.
Einnig er hægt að leita nánari upplýsinga, t.d. hvað varðar starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, hjá Þjóðkirkjunni, s. 528 4000, eða á netfangið jona@kirkjan.is eða ragnhilduras@kirkjan.is.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 3. febrúar 2025
Sækja ber rafrænt um starfið hér á vefnum og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram.
Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.
Vakin er athygli á því að hafi umsækjandi ekki óskað nafnleyndar verður nafn hans sem umsækjanda um starfið birt á vef kirkjunnar www.kirkjan.is að liðnum umsóknarfresti.
Hér er að finna eyðublað þar sem umsækjendur geta óskað nafnleyndar.
Verði farið fram á almennar prestskosningar er þó ekki hægt að halda nafnleynd.
Þarfagreining vegna ráðningar prests í Seljaprestakall með sérstakar skyldur við barna og æskulýðsstarf og starf fyrir eldri borgara í prestakallinu.
Seljaprestakall var stofnað hinn 15. júní 1980 og nær yfir þær götur sem enda á -sel og -skógar í Breiðholti.
Tveir prestar þjóna prestakallinu, sóknarprestur og prestur sem báðir hafa skrifstofur í Seljakirkju auk þess sem nú er starfandi safnaðarráðinn æskulýðsprestur í hálfu starfi.
Íbúafjöldi prestakallsins er um 9000, þar af eru 4679 í þjóðkirkjunni eða 52%.
Lögð er sérstök áhersla á að hlutverks nýs prests er m.a. að viðhalda og styrkja barna og æskulýðsstarf í prestakallinu í samstarfi við æskulýðsstarfsfólk safnaðarins og leita nýrra leiða til að efla kirkjustarfið.
Í Seljasókn fer fram fjölbreytt helgihald og lifandi safnaðarstarf.
Þar ber helst að nefna barnaguðsþjónustur á hverjum sunnudegi yfir vetrarmánuðina og guðsþjónustur hvern helgan dag árið um kring.
Skipulagt starf er fyrir 6-12 ára börn sem og unglingastarf, bænastundir, eldriborgarastarf, kvenfélag og kórastarf.
Í prestakallinu eru tvö hjúkrunarheimili, Seljahlíð og Skógarbær.
Þar sinna prestarnir reglulegu helgihaldi og sálgæslu auk þess sem þeir annast vikulegar helgistundir í félagsstarfi eldri borgara í Árskógum.
Við Seljakirkju eru starfandi kirkjuvörður og organisti í fullu starfi. Þá er starfsfólk í hlutastörfum við barna og æskulýðsstarf.
Auk þessa koma margir sjálfboðaliðar að starfi kirkjunnar.
Í Seljasókn eru tveir grunnskólar, Seljaskóli og Ölduselsskóli og fjórir leikskólar.
Umfang prestsþjónustunnar, starfsaðstaða o.fl.
Prestar kirkjunnar þjóna prestakallinu í heild sinni, sinna öllum almennum prestsverkum og skipta verkefnum á milli sín eftir nánara skipulagi.
Prestarnir eru í miklu samstarfi og starfið er mjög fjölbreytt.
Prestarnir hafa skrifstofuaðstöðu í Seljakirkju og leitað er að presti sem mun bera sérstaka ábyrgð á barna og æskulýðsstarfi og starfi fyrir eldri borgara í prestakallinu í samráði við sóknarprest, starfsfólk og sóknarnefnd.
Áherslur í starfi:
• Presturinn skal hafa umsjón með og viðveru í barna og æskulýðsstarfi í samvinnu við annað starfsfólk og þarf því að hafa fjölbreytta og viðamikla þekkingu og reynslu af slíku starfi.
• Presturinn mun halda utan um teymi leiðtoga og sjálfboðaliða í barna og æskulýðsstarfinu.
• Presturinn þarf því að hafa reynslu af leiðtogaþjálfun og stjórnun í barna og æskulýðsstarfi.
• Presturinn skal vera öflugur í starfi er snýr að eldri borgurum í prestakallinu.
• Presturinn þarf að hafa tæknilega þekkingu sem nýtist í starfinu og frumkvæði til að auka nýbreytni þar.
• Mikilvægt er að presturinn hafi áhuga á því að taka þátt í fjölbreyttu safnaðarstarfi og helgihaldi og sinni sálgæslu.
• Presturinn þarf að vera sjálfstæður í vinnubrögðum, geta sýnt leiðtogahæfni og frumkvæði í starfi ásamt teymisvinnu með sóknarpresti, öðru starfsfólki safnaðarins og sóknarnefnd.
slg