Tvö laus störf presta
Biskup Íslands óskar eftir prestum til þjónustu í Fossvogsprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi vestra.
Um er að ræða tvær stöður.
Miðað er við að viðkomandi getið hafið störf 1.maí 2025.
Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um ráðningu í prestsstörf nr. 17/2021-2022 og starfsreglna um presta nr. 6/2023-2024.
Með umsókn sinni staðfesta umsækjendur að þeir hafi átt þess kost að kynna sér þessar reglur.
Fossvogsprestakall varð til þann 1. júní 2019 við sameiningu Bústaðaprestakalls og Grensásprestakalls.
Fossvogsprestakall samanstendur af tveimur sóknum, Bústaðasókn og Grensássókn.
Í prestakallinu búa 16.559 einstaklingar og tilheyra um 53% þeirra þjóðkirkjunni og skiptist u.þ.b. jafnt á milli sóknanna.
Tvær kirkjur eru í prestakallinu, Bústaðakirkja og Grensáskirkja með myndarlegum safnaðarheimilum sem bjóða upp á góða starfsaðstöðu fyrir presta, starfsfólk og söfnuðina.
Vísað er til þarfagreiningar fyrir prestakallið varðandi frekari upplýsingar um starfið og starfsumhverfið.
Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna og önnur kirkjuleg stjórnvöld.
Allar gildar umsóknir fara til valnefndar sem fer yfir umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.
Valnefnd skal ná samstöðu um einn umsækjenda en valið skal byggt á fyrirliggjandi þarfagreiningu og rökstutt á grundvelli hennar.
Í framhaldinu ræður biskup viðkomandi í starfið, að því gefnu að hann telji niðurstöður valnefndar reistar á lögmætum sjónarmiðum.
Valnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 13. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.
Umsækjendur skulu gera skriflega grein fyrir starfsferli og starfsreynslu og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram.
Umsókn ber að fylgja staðfest afrit af prófskírteini ásamt einkunum, svo og upplýsingar um starfsþjálfun eftir því sem við á.
Einnig skal fylgja staðfesting á annarri menntun og þjálfun sem nýtist í starfi.
Til að umsækjandi teljist hæfur í starfið þarf viðkomandi að hafa lokið mag.theol/cand.theol prófi frá Háskóla Íslands ásamt starfsþjálfun hjá Þjóðkirkjunni.
Umsækjendum ber að skila greinargerð, að hámarki 500 orð, um framtíðarsýn sína og væntingar varðandi þjónustuna.
Þá skulu umsækjendur fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá um viðkomandi umsækjanda, sbr. 4. gr. starfsreglnanna.
Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni.
Tengil á eyðublaðið er að finna hér.
Um starfið gilda lög um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, kjara- og ráðningarsamningar, siðareglur, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar.
Er einkum vísað til starfsreglna um presta.
Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall.
Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla, hljóti þær samþykki kirkjuþings.
Bryndís Malla Elídóttir, prófastur við ráðningarferli þetta, veitir nánari upplýsingar um umfang og eðli starfsins í síma 892 2901 eða á netfangið bryndis.malla.elidottir@kirkjan.is.
Einnig er hægt að leita nánari upplýsinga, t.d. hvað varðar starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, hjá Þjóðkirkjunni, s. 528 4000, eða á netfangið jona@kirkjan.is eða ragnhilduras@kirkjan.is.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 12. febrúar 2025
Sækja ber rafrænt um starfið á hér á vefnum og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram.
Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.
Vakin er athygli á því að hafi umsækjandi ekki óskað nafnleyndar verður nafn hans sem umsækjanda um starfið birt á vef kirkjunnar www.kirkjan.is að liðnum umsóknarfresti.
Hér er að finna eyðublað þar sem umsækjendur geta óskað nafnleyndar.
Verði farið fram á almennar prestskosningar er þó ekki hægt að halda nafnleynd.
Þarfagreining fyrir Fossvogsprestakall
Lýsing á prestakallinu og sóknum þess:
Fossvogsprestakall varð til þann 1. júní 2019 við sameiningu Bústaðaprestakalls og Grensásprestakalls.
Fossvogsprestakall samanstendur af tveimur sóknum, Bústaðasókn og Grensássókn.
Í prestakallinu búa 16.559 einstaklingar og tilheyra um 53% þeirra þjóðkirkjunni og skiptist u.þ.b. jafnt á milli sóknanna.
Tvær kirkjur eru í prestakallinu, Bústaðakirkja og Grensáskirkja með myndarlegum safnaðarheimilum sem bjóða upp á góða starfsaðstöðu fyrir presta, starfsfólk og söfnuðina.
Bústaðasókn telur tæplega 7700 íbúa.
Bústaðakirkja var vígð fyrsta sunnudag í aðventu árið 1971.
Undir þaki byggingarinnar eru auk kirkjunnar, safnaðarheimili, salir og skrifstofurými auk aðstöðu á neðri hæð kirkjunnar.
Hjá söfnuðinum starfa kirkjuvörður, djákni, organisti, ræstitæknir og kirkjuhaldari, sem starfar fyrir báðar sóknir.
Einnig starfa leiðtogar í barna og æskulýðsstarfi í minni stöðugildum og hópur kærleikskvenna í öldrunarstarfi.
Messað er í Bústaðakirkju hvern helgan dag og yfir vetrarmánuðina eru tvær messur alla sunnudaga, barnamessa kl. 11:00 og almenn messa kl. 13:00.
Þá er messað í Félagsmiðstöðinni Hæðargarði og Maríuhúsi aðra hverja viku yfir vetrartímann.
Innan sóknarinnar eru fimm leikskólar og þrír grunnskólar.
Grensássókn telur tæplega 8900 íbúa.
Safnaðarheimili var vígt 1972 og Grensáskirkja var vígð á annan sunnudag í aðventu árið 1996.
Safnaðarheimilið er áfast kirkjunni, salir og skrifstofurými auk aðstöðu á neðri hæð kirkjunnar.
Hjá söfnuðinum starfa organisti, æskulýðsfulltrúi, kirkjuvörður og kirkjuhaldari, sem starfar fyrir báðar sóknir.
Einnig starfa leiðtogar í barna og æskulýðsstarfi í minni stöðugildum.
Messað er í Grensáskirkju hvern helgan dag.
Þá er messað hjá eldri borgurum í Furugerði 1, Sléttuvegi 11 – 13 og Hvassaleiti 56 – 58, í Múlabæ, á Hrafnistuheimilinu Sléttunni og á Hjúkrunarheimilinu Mörk.
Innan sóknarinnar eru tveir framhaldsskólar, fjórir leikskólar og tveir grunnskólar.
Barna og æskulýðsstarf hefur verið sameiginlegt með sóknunum þannig að barnastarf hefur farið fram í Bústaðakirkju og æskulýðsstarf í Grensáskirkju.
Kröfur um sérstaka þekkingu, hæfni eða reynslu:
Sóknarprestur og tveir prestar þjóna prestakallinu, sóknarpresturinn er fastráðinn í þá stöðu.
Prestarnir sem nú verða ráðnir munu starfa saman í þriggja presta teymi í báðum sóknum prestakallsins.
Þeir munu gera með sér samstarfssamning á grundvelli starfsreglna þar um undir forystu prófasts.
Þá munu þeir í samstarfi við sóknarnefndir og samstarfsfólk sitt móta þjónustuna.
Þjónusta og vinnuaðstaða prestanna mun verða í báðum kirkjunum og því verður náið samstarf við starfsfólk safnaðanna beggja.
Annar presturinn mun hins vegar hafa sína megin starfsaðstöðu í Bústaðakirkju og hinn presturinn í Grensáskirkju.
Viðvera prestanna í hvorri kirkju fyrir sig er mikilvæg, og liggja fyrir fastir og auglýstir viðtalstímar.
Leitað er eftir umsækjendum sem hafa víðtæka og farsæla reynslu af kirkjustarfi, búa yfir jákvæðni fyrir nýjungum og auðsýna frumkvæði og útsjónarsemi í starfi.
Vilji og hæfileiki í samstarfi og teymisvinnu þarf að vera fyrir hendi.
Færni og reynsla af kirkjulegri þjónustu, sem og skýr og sterk framsetning á boðun orðins, eru grundvallaratriði ásamt færni til jákvæðrar nýtingar á hinum ýmsu farvegum miðlunar, svo sem heimsíðum og samfélagsmiðlum.
Einnig er leitað eftir reynslu, menntun og færni í fræðslustarfi og sálgæslu.
Prestarnir hafa ásamt öðru starfsfólki sóknanna það hlutverk að efla safnaðarvitund og bjóða upp á fjölbreytt starf.
Sóknarnefndirnar vilja standa vörð um og efla það starf sem fyrir er í söfnuðunum.
Mikilvægt verkefni er að efla fræðslustarf og almennar samverur i kirkjunum.
Æskulýðsstarf og starf með ungleiðtogum hefur verið sérstaklega blómlegt síðustu ár en nauðsynlegt er að styðja við það starf og efla.
Góð reynsla er af samstarfi sóknanna innan prestakallsins og vilji er til að efla þau tækifæri sem felast í hinu sameinaða prestakalli og því að þrír prestar sinna þjónustunni í sameiningu í samvinnu við starfsfólk safnaðanna.
Væntingar eru um að prestarnir séu virkir í mannlífi og viðburðum innan sóknanna.
Gott samstarf hefur verið við íþróttafélögin í sóknunum, skólana og önnur félagasamtök.
Mikilvægt er að viðhalda því og efla.
Forsíðumyndin er af kórglugga Grensáskirkju og á myndinni hér fyrir neðan má sjá kórglugga Bústaðakirkju.
slg