Spennandi starf sóknarprests í Noregi

24. febrúar 2025

Spennandi starf sóknarprests í Noregi

Fulltrúar á samráðshelgi kirkjunnar á Norðurlöndum

Biskup Íslands óskar eftir sóknarpresti til starfa hjá íslenska söfnuðinum i Noregi.

Miðað er við að viðkomandi getið hafið störf 1. ágúst 2025.

Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um ráðningu í prestsstörf nr. 17/2021-2022 og starfsreglna um presta nr. 6/2023-2024.

Með umsókn sinni staðfesta umsækjendur að þeir hafi átt þess kost að kynna sér þessar reglur.

Vísað er til þarfagreiningar fyrir starfið varðandi frekari upplýsingar.

Allar gildar umsóknir fara til valnefndar sem fer yfir umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.

Valnefnd skal ná samstöðu um einn umsækjenda en valið skal byggt á fyrirliggjandi þarfagreiningu og rökstutt á grundvelli hennar.

Valnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Umsækjendur skulu gera skriflega grein fyrir starfsferli og starfsreynslu og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram.

Umsókn ber að fylgja staðfest afrit af prófskírteini ásamt einkunum, svo og upplýsingar um starfsþjálfun eftir því sem við á.

Einnig skal fylgja staðfesting á annarri menntun og þjálfun sem nýtist í starfi.

Til að umsækjandi teljist hæfur í starfið þarf viðkomandi að hafa lokið mag.theol/cand.theol prófi frá Háskóla Íslands ásamt starfsþjálfun hjá Þjóðkirkjunni.

Umsækjendum ber að skila greinargerð, að hámarki 500 orð, um framtíðarsýn sína og væntingar varðandi þjónustuna.

Þá skulu umsækjendur fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá um viðkomandi umsækjanda, sbr. 4. gr. starfsreglnanna.

Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni.

Tengil á eyðublaðið er að finna hér.

Um starfið gilda lög um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, kjara- og ráðningarsamningar, siðareglur, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar.

Er einkum vísað til starfsreglna um presta.

Ráðningarsambandið er við íslenska söfnuðinn í Noregi og laun greidd í norskum krónum.

Söfnuðurinn á prestssetur í Osló, sem er einbýlishús á fjölskylduvænum stað.

Prestinum býðst að leigja húsið á hagstæðum kjörum.

Bryndís Malla Elídóttir, prófastur við ráðningarferli þetta, veitir nánari upplýsingar í síma 892 2901 eða á netfangið bryndis.malla.elidottir@kirkjan.is

Umsóknarfrestur er framlengdur til miðnættis 10. mars 2025.

Sækja ber rafrænt um starfið á hér á vefnum og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram.

Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.

Vakin er athygli á því að hafi umsækjandi ekki óskað nafnleyndar verður nafn hans sem umsækjanda um starfið birt á vef kirkjunnar www.kirkjan.is að liðnum umsóknarfresti.

Hér er að finna eyðublað þar sem umsækjendur geta óskað nafnleyndar.

 

Þarfagreining fyrir starf sóknarprests við Íslensku kirkjuna í Noregi

Óskað er eftir presti með farsæla reynslu af kirkjulegu starfi, sem býr yfir góðri leiðtogahæfni, frumkvæði og sveigjanleika.

Viðkomandi þarf að vera kraftmikill, hafa gott úthald í lifandi og fjölbreyttu starfi og sýna metnað í að þróa safnaðarstarfið með nýjum og skapandi leiðum.

Mikilvægt er að presturinn sé skipulagður, hafi góða samskiptahæfni og geti unnið bæði sjálfstætt og í nánu samstarfi við stjórn safnaðarins og starfsfólk.

Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af stjórnun, sem og menntun eða reynslu á sviði sálgæslu.

Presturinn mun sinna hefðbundnum prestsverkum og leiða reglubundið helgihald ásamt því að standa fyrir ýmsum viðburðum og innleiða nýjungar í safnaðarstarfinu í samstarfi við stjórn safnaðarins og starfsfólk.

Unnið er eftir stefnu og starfsáætlun safnaðarins með það að markmiði að efla og styðja íslenskt kirkju og menningarlíf í Noregi.

Þjónustusvæði prestsins er allur Noregur og því fylgja starfinu töluverð ferðalög, sem gefa einstakt tækifæri til að kynnast landinu og upplifa.

Einnig er mikilvægt að viðkomandi hafi til að bera grunnþekkingu í norsku eða skandinavísku og hafi áhuga á að efla íslenska menningu í Noregi.

Með starfinu gefst einstakt tækifæri til þess að kynnast norsku samfélagi og þjóna öflugum söfnuði Íslendinga á erlendri grundu.

Stefna og starf Íslensku kirkjunnar í Noregi.

Íslenska kirkjan í Noregi er opin og frjálslynd, umburðarlynd og framsækin, með rætur í hefðinni en óhrædd að vaxa og dafna á nýjum tímum.

Íslenska kirkjan í Noregi vill reynast Íslendingum í Noregi sem stór, umburðarlynd og elskandi fjölskylda sem fagnar fjölbreytileika og samstöðu.

Íslenska kirkjan í Noregi er hluti af þjóðkirkju Íslands.

Söfnuðurinn deilir grunngildum og markmiðum starfsins með íslensku þjóðkirkjunni þó með þá sérstöðu að vera kirkja meðal Íslendinga erlendis.

Kirkjan á í góðu samstarfi við íslensku söfnuðina í Svíþjóð og Danmörku meðal annars í fermingarfræðslu.

Einnig er lögð rækt við samvinnu og samstarf við:

Þjóðkirkju Íslands

Biskupsstofu

Íslenska presta í Noregi

Sendiráð Íslands í Noregi

Norsku, Sænsku og Finnsku kirkjurnar í Noregi

Norges Kristne Råd

Tengiliði safnaðarins víðsvegar um Noreg

Íslenska kóra í Noregi

Íslendingafélög í Noregi

Kirkjan er fyrir alla, líka þau sem sækja ekki vanalega kirkju á Íslandi.

Söfnuðurinn leggur áherslu á fjölbreytt starf sem höfðar til sem flestra og leitast við að vera sóknarkirkja og samkomustaður allra Íslendinga í Noregi.

Reglulega er í boði samvera og fræðsla fyrir allan aldur þó að í öndvegi séu börn og ungmenni, og þau sem komin eru yfir sextugt.

Virkir þátttakendur í starfi kirkjunnar eru frá öllum Noregi.

Kirkjan stendur fyrir reglulegu og lifandi safnaðarstarfi í Ósló, Stavanger, Bergen, Sandefjord, Kristiansand, Trondheim og Tromsø.

Prestþjónusta er veitt um allan Noreg.

Safnaðarstarfið er í miklum vexti og býður upp á skapandi nálgun í öfluguri teymisvinnu.

Boðið er upp á kærleiksþjónustu svo sem sálgæsluviðtöl og heimsóknir til aldraðra og langveikra.

Kirkjan rekur Ólafíusjóð sem er hjálparsjóður nauðstaddra Íslendinga í Noregi.

Í stjórn Ólafíusjóðs sitja 5 einstaklingar að sóknarpresti meðtöldum.

Íslenska kirkjan í Noregi leggur rækt við íslenska tungu og menningu í breiðum skilningi og stuðlar að listflutningi íslensks efnis t.d. tónlist, leiklist og styður félagslíf Íslendinga í Noregi á menningarlegum grundvelli.

Kirkjan leggur ríka áherslu á umhverfisvernd og meðvitaða stefnu í umhverfismálum, og leitast við að hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag með ákvörðunartöku sinni og þjónustu.

Í sóknarnefnd kirkjunnar sitja 5 einstaklingar og 3 til vara.

Starfsfólk safnaðarins er sóknarprestur, skrifstofustjóri, menningarfulltrúi og æskulýðsfulltrúi auk fjölda leiðtoga um land allt.

Lögð er áhersla á teymishugsun og gott samstarf við fjölda aðila svo sem íslensku kórana, Íslendingafélögin í Noregi og tengiliði um land allt.

Söfnuðurinn telur um 6500 manns.

slg


  • Kirkjustaðir

  • Prestar og djáknar

  • Prófastur

  • Starf

  • Þjóðkirkjan

  • Biskup

Sr. Steinunn Anna

Sr. Steinunn Anna ráðin

22. feb. 2025
...prestur við Seljakirkju
Sr. Hulda Hrönn M. Helgadóttir

Andlát

18. feb. 2025
...sr. Hulda Hrönn M. Helgadóttir er látin
logo.png - mynd

Níu sækja um störf í tveimur prestaköllum

13. feb. 2025
…á höfuðborgarsvæðinu