Vottar vonar og réttlætis: Árlegur stjórnarfundur Lútherska heimssambandsins

23. júní 2025

Vottar vonar og réttlætis: Árlegur stjórnarfundur Lútherska heimssambandsins

Árlegur stjórnarfundur Lútherska heimssambandsins (LH) fór fram dagana 12.–16. júní í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu, undir yfirskriftinni „þér munuð verða vottar mínir“ (Post 1.8). Fundurinn leiddi saman fulltrúa víðs vegar að úr heiminum og staðfesti áframhaldandi skuldbindingu sambandsins við réttlæti, frið, jöfnuð og samstöðu milli kirkna.

Þjóðkirkjan átti tvo fulltrúa á fundinum: Dr. Arnfríði Guðmundsdóttur, sem situr í stjórn sambandsins og gegnir hlutverki varaforseta þess á Norðurlöndunum, og Magneu Sverrisdóttir, verkefnastjóra á Biskupsstofu.

Í stjórn LH sitja 48 fulltrúar kirkna frá Afríku, Asíu, Evrópu, N-Ameríku, S-Ameríku, auk Henrik Stubkjær, biskups í Viborg í Danmörku, sem er forseti sambandsins. Stjórnin kemur saman árlega. Sr. Árni Svanur Daníelsson, sem leiðir samskiptasvið LH, var meðal starfsmanna á fundinum í Eþíópíu.

Fjölbreytileiki og eining

Að sögn íslenskra fulltrúa á fundinum voru móttökurnar einstaklega hlýjar af hálfu leiðtoga eþíópísku Mekane Yesus kirkjunnar sem er fjölmennasta aðildarkirkja LH, sem telur yfir 12 milljón meðlima. Sunnudaginn 16. júní var fundargestum boðið að taka þátt í guðsþjónustum í ýmsum söfnuðum borgarinnar, sem opnuðu dyr og buðu upp á lifandi helgihald sem einkenndist af miklum söng og virkri þátttöku safnaðarmeðlima.

Á dagskrá fundarins var umfjöllun um starf og stefnu LH. Stjórnin bauð líka fjórar kirkjur velkomnar í sambandið og ákvað að næsta heimsþing LH fari fram í Ágsborg í Þýskalandi í júní 2030. Þá verður haldið upp á 500 ára afmæli Ágsborgarjátningarinnar sem er eitt af játningarritum þjóðkirkjunnar. “Það verður einstakt tækifæri til að endurnýja og dýpka vitnisburð lútherskra kirkna á heimsvísu,” sagði Arnfríður Guðmundsdóttir.

Trúin er leiðarljós

Stjórnarfundurinn í Addis Ababa var sterkt tákn um von og samstöðu. Á tímum þar sem skautun og óvissa eru víða áberandi, er starf LH til marks um mikilvægi opins samtals, bænar, samráðs og skýrrar sýnar á það hvernig kirkjur geta staðið saman og vitnað um náð Guðs með starfi sínu.

Sjá nánar:

Ársskýrsla LH fyrir árið 2024
https://lutheranworld.org/resources/publication-lwf-annual-report-2024

Ársskýrsla Hjálparstarfs Lh fyrir árið 2024
https://lutheranworld.org/resources/publication-lwf-world-service-annual-report-2024

Fréttir af heimsþinginu á vef LH
https://lutheranworld.org/series/council-2025

 

    Sr. Pétur Ragnhildarson

    Sr. Pétur Ragnhildarson ráðinn sóknarprestur

    13. jún. 2025
    ...í Breiðholtsprestakalli
    Dómkirkjan í Reykjavík - mynd: hsh

    Prestsvígsla í Dómkirkjunni

    12. jún. 2025
    ...sunnudaginn 15. júní
    Bjarki Geirdal Guðfinnsson

    Bjarki Geirdal Guðfinnsson ráðinn

    12. jún. 2025
    …til Breiðholtssprestakalls