Andlát

29. október 2025

Andlát

Sr. Flosi Magnússon, fyrrum prófastur lést á sjúkrahúsi í Lundi Svíþjóð þann 11. október síðast liðinn.

Flosi var fæddur í Reykjavík þann 17. ágúst árið 1956.

Foreldrar hans voru Magnús Örn Tryggvason og Kristjana Valgerður Steinsdóttir.

Flosi varð stúdent frá Menntaskólanum í Kópavogi árið 1976 og cand. theol. frá Háskóla Íslands árið 1986.

Hnn stundaði framhaldsnám í kirkjurétti við Lundarháskóla frá september 1992 fram í maí 1995.

Hann var settur sóknarprestur í Bíldudalsprestakalli frá 15. nóvember 1986 og var vígður þann 5. október sama ár.

Síðan var hann skipaður sóknarprestur í sama prestakalli frá 1. júní árið 1987.

Hann var í námsleyfi og í þjónustu sænsku kirkjunnar árin 1992-1995.

Flosi var skipaður prófastur í Barðastrandarprófastsdæmi frá 1. október 1987.

Hann lét af embætti prests og prófasts þann 9. október árið 1999.

Meðal annarra starfa Flosa má nefna að hann var sveitarstjóri á Bildudal frá 1. desember árið 1986 fram í júní árið 1990.

Flosi var kvæntur Ragnhildi Jónasdóttur, en þau skildu.

Dætur þeirra eru Vala og Lára.

Flosi verður jarðsettur frá dómkirkjunni í Lundi 7. nóvember næst komandi.

 

slg


  • Prestar og djáknar

  • Prófastur

  • Andlát

IMG_6011.jpg - mynd

Kirkjuþing sett í Dómkirkjunni

25. okt. 2025
Setningarathöfn fór fram í Dómkirkjunni í morgun. Forseti kirkjuþings, dómsmálaráðherra og biskup Íslands ávörpuðu setningarathöfnina.
Mari_a A_g.jpg - mynd

Nýr prófastur í Vesturlandsprófastsdæmi

15. okt. 2025
María Guðrúnar. Ágústsdóttir er nýr prófastur á Vesturlandi.
image0.jpg - mynd

Hilda María ráðin

10. okt. 2025
Hilda María hefur verið ráðin prestur við Stykkishólmsprestakall. Sex sóknir tilheyra prestakallinu.