Laust starf

20. nóvember 2025

Laust starf

Biskup Íslands auglýsir laust til umsóknar starf héraðsprests í Vesturlandsprófastsdæmi, með sérstakar skyldur við Stafholtsprestakall.

Jafnframt fylgja starfinu viðbótaskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna og önnur kirkjuleg stjórnvöld.

Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að gerðar verði skipulagsbreytingar eins og biskupafundur hefur unnið að,
t.d. með sameiningum en jafnframt er unnið að heildarendurskoðun á þjónustu Þjóðkirkjunnar.

Sr. Hans Guðberg Alfreðsson, prófastur, veitir nánari upplýsingar um umfang og eðli starfsins á netfangið hans.gudberg.alfredsson@kirkjan.is.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 5. desember 2025.

Sækja ber rafrænt um starfið á hér á vefnum og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram.

Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst,eða í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að niðurstaða um ráðningu liggur fyrir.

Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.

Nánari upplýsingar um starfið má sjá r.


  • Starf

  • Auglýsing

Sigurður flosa.jpg - mynd

Sigurður Flosason söngmálastjóri

18. nóv. 2025
Biskup Íslands hefur valið Sigurð Flosason tónlistarmann, tónskáld og tónlistarkennara í starf söngmálastjóra.
Tónleikar.png - mynd

Kristnir flóttamenn frá NAGORNO KARABAKH

12. nóv. 2025
STYRKTARTÓNLEIKAR fimmtudaginn 13. nóvember kl. 19:30 - 21:30 í Dómkirkjunni
Kirkjuklukka.jpg - mynd

Kirkjuklukkum hringt gegn einelti

07. nóv. 2025
...dagur gegn einelti 8. nóvember