Þorláksmessa á sumar - 20. júlí
Litur: Rauður.
Vers dagsins: Fil 4.4 og 5b
Verið ávallt glöð í Drottni. Ég segi aftur: Verið glöð.
Drottinn er í nánd.
Kollekta
Almáttugi Guð, sem kallaðir votta þína og lést orð þitt bera nýja birtu af orðum þeirra, vér
biðjum þig: Veit oss að þekkja hjálpræðismátt þíns heilaga orðs, trúlega varðveita það og
boða mönnum til sáluhjálpar, þér til dýrðar. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með
þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
A Amen.
Lexía: Slm 122.6b-9
Minning hins réttláta er ævarandi,
hann þarf ekki að kvíða ótíðindum,
hjarta hans er stöðugt, hann treystir Drottni.
Hjarta hans er óhult, hann óttast ekki;
skjótt fær hann að líta fall óvina sinna.
Hann hefur miðlað mildilega og gefið fátækum,
réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu,
horn hans er hafið upp með sæmd.
Pistill: Heb 7.23-27
Enn fremur urðu hinir prestarnir margir af því að dauðinn meinaði þeim að vera áfram. En
hann er að eilífu og hefur prestdóm þar sem ekki verða mannaskipti. Þess vegna getur hann
og til fulls frelsað þá sem hann leiðir fram fyrir Guð þar sem hann ávallt lifir til að biðja fyrir
þeim.
Slíks æðsta prests höfðum við þörf sem er heilagur, svikalaus, óflekkaður, greindur frá
syndurum og orðinn himnunum hærri. Hann þarf ekki daglega, eins og hinir æðstu prestarnir,
fyrst að bera fram fórnir fyrir eigin syndir, síðan fyrir syndir lýðsins. Það gerði hann í eitt
skipti fyrir öll er hann fórnfærði sjálfum sér.
Guðspjall: Matt 24.42-47
Vakið því, þér vitið eigi hvaða dag Drottinn yðar kemur. Það skiljið þér að húsráðandi vekti
og léti ekki brjótast inn í hús sitt ef hann vissi á hvaða stundu nætur þjófurinn kæmi.Verið þér
og viðbúin því að Mannssonurinn kemur á þeirri stundu sem þér ætlið eigi. Hver er sá trúi og
hyggni þjónn sem húsbóndinn hefur sett yfir hjú sín að gefa þeim mat á réttum tíma? Sæll er
sá þjónn er húsbóndinn finnur breyta svo er hann kemur. Sannlega segi ég yður: Hann mun
setja hann yfir allar eigur sínar.
Sálmur 534
Ég veit um himins björtu borg
í bjarma sólu hærri.
Þar er ei skuggi, synd né sorg,
hvert sár er grætt og fjærri.
Þar er í dýrð Guðs einkason
svo undrahár og blíður.
Hann er mín huggun, hjálp og von
og hann mér til sín býður.
Mig, fátækt barn og förumann,
hann fann og eiga vildi.
til föðurlands míns leiðir hann
mitt líf í náð og mildi.
Guð faðir, lof ég færi þér,
ég finn í Jesú nafni
þitt helga ljós í hjarta mér,
þinn himin fyrir stafni.
Støylen - Sigurbjörn Einarsson