10. sunnudagur eftir þrenningarhátíð Drottinn og fólk hans / Gjafir náðarinnar
10. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Drottinn og fólk hans / Gjafir náðarinnar
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Sæl er sú þjóð sem á Drottin að Guði, þjóðin sem hann valdi sér til eignar.“ (Sálm 33.12)
Bæn dagsins / kollektan
Trúfasti Guð, þú sem í Jesú Kristi gjörðist maður meðal gyðinganna til hjálpar öllum heimi.
Þú varst trúr þeim lýð er þú valdir, en þú raufst múrana og opnaðir öllum þjóðum og öllum
mönnum, leið til þín, og þú kallar okkur til að fylgja þér. Styrk þú löngun okkar eftir ríki þínu
þar sem kristnir og gyðingar munu sameinast og lofa þig um eilífð. Amen.
Þriðja lestraröð
Lexía Harmlj 5.1, 11-22
Minnstu þess, Drottinn, hvað hefur á oss dunið, lít þú á og sjá smán vora…..
Konum er nauðgað í Síon,
meyjum í borgum Júda,
höfðingjar gripnir og hengdir,
öldungum engin virðing sýnd.
Æskumennirnir verða að þræla við kvörnina
og sveinarnir hrasa undir viðarbyrðunum.
Öldungarnir eru horfnir úr borgarhliðunum,
æskumennirnir frá strengleikum.
Fögnuður hjartna vorra er horfinn,
gleðidans vor snúinn í sorg.
Kórónan er fallin af höfði voru,
vei oss, því að vér höfum syndgað.
Sökum þessa er hjarta vort sjúkt
og vegna þessa eru augu vor döpur,
vegna Síonarfjalls sem er í eyði
og refir hlaupa nú um.
Þú, Drottinn, ríkir að eilífu,
hásæti þitt stendur frá kyni til kyns.
Hví hefur þú gleymt oss með öllu,
yfirgefið oss svo lengi?
Snú þú oss til þín, Drottinn, þá snúum vér aftur,
endurnýja daga vora eins og til forna.
Eða hefur þú hafnað oss fyrir fullt og allt
og ert oss reiður úr öllu hófi?
Pistill Róm 11.25-32
Ég vil, bræður mínir og systur,[ að þið varist að ofmeta eigið hyggjuvit. Því vil ég að þið
þekkið þennan leyndardóm: Nokkur hluti Ísraels er forhertur orðinn og það varir uns allir
heiðingjar eru komnir inn. En þá mun allur Ísrael frelsast eins og ritað er: „Frá Síon mun
frelsarinn koma og útrýma guðleysi frá Jakob. Og þetta er sáttmáli minn við þá þegar ég tek
burt syndir þeirra.“ Í ljósi fagnaðarerindisins eru þeir óvinir Guðs. Það varð til þess að þið
fenguð að heyra fagnaðarerindið. En í ljósi útvalningar sinnar eru þeir elskaðir sakir
forfeðranna. Guð iðrar ekki náðargjafa sinna og köllunar. Þið voruð fyrrum óhlýðin Guði en
hafið nú hlotið miskunn vegna óhlýðni þeirra. Eins hafa þeir nú orðið óhlýðnir svo að þið
hlytuð miskunn til þess að þeim mætti einnig verða miskunnað. Guð hefur gefið alla menn
óhlýðninni á vald til þess að hann geti miskunnað öllum.
Guðspjall Jóh 4.19-26
Konan segir við hann: „Drottinn, nú sé ég að þú ert spámaður. Feður okkar hafa tilbeðið Guð
á þessu fjalli en þið segið að í Jerúsalem sé sá staður þar sem tilbiðja skuli.“
Jesús segir við hana: „Trú þú mér, kona. Sú stund kemur að þið munuð hvorki tilbiðja
föðurinn á þessu fjalli né í Jerúsalem. Þið tilbiðjið það sem þið þekkið ekki. Við tilbiðjum það
sem við þekkjum því hjálpræðið kemur frá Gyðingum. En sú stund kemur, já, hún er nú
komin, er hinir sönnu tilbiðjendur munu tilbiðja föðurinn í anda og sannleika. Faðirinn leitar
slíkra tilbiðjenda. Guð er andi og þeir sem tilbiðja hann eiga að tilbiðja í anda og sannleika.“
Konan segir við hann: „Ég veit að Messías kemur – það er Kristur. Þegar hann kemur mun
hann kunngjöra okkur allt.“ Jesús segir við hana: „Ég er hann, ég sem við þig tala.“
Sálmur Sb 218
1 Kom, voldugi andi, og vertu hjá mér,
veittu mér frelsið og styrkinn frá þér,
fylltu mig kærleik sem Kristur mér gaf.
Ó, lauga mig lífsvatni þínu!
Kristur minn lifir og kominn er hér,
kominn af himni að dvelja hjá mér,
hans sigrandi elska um anda minn fer
sem alla vill hugga og frelsa.
2 Drottinn, mig þyrstir, ó, Drottinn, ég líð,
Drottinn, þín leita' ég í stormum og hríð,
ávallt þú veitir mér ást, líf og von.
Ó, lauga mig lífsvatni þínu!
Kristur minn lifir ...
3 Drottinn, er villu og vegleysu' ég fer,
vertu mér nærri og leiðbeindu mér
til salanna björtu um sannleikans braut.
Ó, lauga mig lífsvatni þínu!
Kristur minn lifir ...
T Helen Kennedy 1993 – Arinbjörn Vilhjálmsson 2002