Næstsíðasti sunnudagur kirkjuársins – Dómur yfir heiminum / Endurkoman
Næstsíðasti sunnudagur kirkjuársins –
Dómur yfir heiminum / Endurkoman
Öllum ber oss að birtast fyrir dómstóli Krists. 2.Kor. 5.10.
Litur grænn
Bæn dagsins / kollektan
Drottinn, hjálpa mér að efast ekki um að þú ert Guð, Jesús er frelsari minn og þú hjá mér með
heilögum anda þínum í dag og að eilífu. Amen.
Þriðja lestraröð
Lexían 2M. 34. 4-9
Móse hjó tvær steintöflur eins og hinar fyrri. Hann var snemma á fótum morguninn eftir og
gekk upp á Sínaífjall eins og Drottinn hafði boðið honum og hélt á báðum
steintöflunum.Drottinn steig niður í skýi og nam staðar þar hjá Móse. Hann hrópaði nafn
Drottins. Drottinn gekk fram hjá honum og hrópaði: „Drottinn, Drottinn er miskunnsamur og
náðugur Guð, seinn til reiði, gæskuríkur og trúfastur. Hann sýnir þúsundum gæsku, fyrirgefur
misgjörðir, afbrot og syndir en lætur hinum seka ekki óhegnt heldur lætur afbrot feðranna
bitna á börnum og barnabörnum í þriðja og fjórða lið.“
Móse lét sig þegar í stað falla til jarðar og sagði: „Hafi ég fundið náð fyrir augum þínum,
Drottinn, komdu þá með okkur, Drottinn. Þótt þetta sé harðsvíruð þjóð, fyrirgefðu okkur sekt
okkar og syndir og gerðu okkur að eign þinni.“
Pistill 2.Þess. 1.3-7
Skylt er okkur, bræður og systur, og maklegt að þakka Guði ætíð fyrir ykkur því að trú ykkar
eykst stórum og kærleiki ykkar allra hvers til annars fer vaxandi. 4 Því get ég miklast af
ykkur í söfnuðum Guðs fyrir þolgæði ykkar og trú í öllum ofsóknum ykkar og þrengingum
Þær birta réttlátan dóm Guðs og að hann muni meta ykkur makleg Guðs ríkis sem þið nú líðið
illt fyrir. Guð er réttlátur, hann endurgeldur þeim þrengingu sem að ykkur þrengja en veitir
ykkur, sem þrengingu líðið, hvíld ásamt mér þegar Drottinn Jesús opinberast af himni með
máttugum englum sínum.
Guðspjallið Lúk. 12. 1-7
Fólk hafði nú flykkst að í tugum þúsunda svo að nærri tróð hver annan undir.
Jesús tók þá að tala, fyrst til lærisveina sinna: „Varist súrdeig farísea sem er hræsnin. Ekkert
er hulið sem eigi verður opinbert né leynt er eigi verður kunnugt. Því mun allt það sem þér
hafið talað í myrkri heyrast í birtu, og það sem þér hafið hvíslað í herbergjum mun kunngjört
á þökum uppi.
Það segi ég yður, vinir mínir: Hræðist ekki þá sem líkamann deyða og fá að því búnu ekki
meira að gert. Ég skal sýna yður hvern þér eigið að hræðast. Hræðist þann er hefur vald að
deyða og að því búnu varpa í helvíti. Já, ég segi yður, hræðist hann.
Eru ekki fimm spörvar seldir fyrir tvo smápeninga? Og þó gleymir Guð engum þeirra.Hárin á
höfði yðar eru jafnvel öll talin. Óttist ekki, þér eruð meira verðir en margir spörvar.
Sálmur Sb 116
1. Fræið sem moldin felur
fyrir sinn dauða ber
ávöxtinn ótalfaldan.
Aldinið fórnar sér.
Þrúgan af limi lesin
lætur sitt rauða blóð.
Dýrt er það gjald sem drýpur
dag hvern í lífsins sjóð.
2. Uppspretta lífsins eina
öll nærir börnin sín.
Brauðið á Drottins borði,
bikarinn með hans vín,
boða það orð sem öllum
ætlar sinn deilda skammt.
Sköpun og fórnir fæða
fjölskyldu lífsins jafnt.
3. Eitt með öllu sem lifir
orð Guðs varð mannlegt hold.
Kristur kom til að verða
kornið, sem deyr í mold,
fórnin, sem af sér fæðir
frið, miskunn, sáttargjörð,
líf, sem frá dauða leysir
lýtta og seka jörð.
4. Dýrt var það gjald sem greiddi
Guðs son í lífsins sjóð
þegar hann lét til lausnar
líkama sinn og blóð.
Senn verður fórn hans fullnuð,
friðarins dagur rís,
mannkyn og málleysingjar
mætast í Paradís.
Sigurbjörn Einarsson