Sumardagurinn fyrsti ( er fyrsti fimmtudagur eftir 18. apríl. Þ.e. 24.apríl 2025)
Kollektan
Miskunnsami Guð og faðir sem seður allt, sem lifir með blessun: Lát okkur ætíð minnast forsjónar þinnar og þjóna þér í ábyrgð og trúmennsku. Fyrir son þinn Jesú Krist,bróður okkar og Drottin sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Lexían Sálm. 104, 1-16
Lofa þú Drottin, sála mín.
Drottinn, Guð minn, þú ert harla mikill.
Þú ert skrýddur dýrð og hátign,
sveipaður ljósi sem skikkju.
Þú þenur út himininn eins og tjalddúk,
reftir sal þinn ofar skýjum.
Þú gerir skýin að vagni þínum,
ferð um á vængjum vindsins.
Þú gerir vindana að sendiboðum þínum,
bálandi eld að þjónum þínum.
Þú grundvallar jörðina á undirstöðum hennar
svo að hún haggast eigi um aldur og ævi.
Frumdjúpið huldi hana eins og klæði,
vötnin náðu yfir fjöllin,
þau flýðu ógnun þína,
hrökkluðust undan þrumuraust þinni,
læddu yfir fjöll, steyptust niður í dali,
þangað sem þú hafðir ætlað þeim stað.
Þú settir vatninu mörk sem það má ekki fljóta yfir,
aldrei framar skal það hylja jörðina.
Þú lést lindir spretta upp í dölunum,
þær streyma milli fjallanna,
þær svala öllum dýrum merkurinnar,
villiasnarnir slökkva þar þorsta sinn.
Við þær búa fuglar himinsins,
kvaka milli laufgaðra greina.
Þú vökvar fjöllin frá hásal þínum
og af ávexti verka þinna mettast jörðin.
Þú lætur gras spretta handa fénaðinum
og jurtir sem maðurinn ræktar
svo að jörðin gefi af sér brauð
og vín sem gleður mannsins hjarta,
olíu sem lætur andlit hans ljóma
og brauð sem veitir honum þrótt.
Tré Drottins drekka nægju sína,
sedrustré Líbanons sem hann gróðursetti.
Þar gera fuglar sér hreiður
og storkar eiga sér bústað í krónum þeirra.
Pistillinn Fil. 4. 4-9
Verið ávallt glöð í Drottni. Ég segi aftur: Verið glöð. Ljúflyndi ykkar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. Verið ekki hugsjúk um neitt heldur gerið í öllum hlutum óskir ykkar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu ykkar og hugsanir ykkar í Kristi Jesú. Að endingu, systkin, allt sem er satt, allt sem er göfugt, rétt og hreint, allt sem er elskuvert og gott afspurnar, hvað sem er dygð og hvað sem er lofsvert, hugfestið það.
Þið skuluð gera þetta, sem þið hafið bæði lært og numið, heyrt og séð til mín. Og Guð friðarins mun vera með ykkur.
Guðspjallið Lúk. 17. 11-19
Svo bar við á ferð Jesú til Jerúsalem að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu. Og er hann kom inn í þorp nokkurt mættu honum tíu líkþráir menn. Þeir stóðu álengdar, 13hófu upp raust sína og kölluðu: „Jesús, meistari, miskunna þú oss!“ Jesús sá þá og sagði við þá: „Farið og sýnið yður prestunum.“ Þeir héldu af stað og nú brá svo við að þeir urðu hreinir. En einn þeirra sneri aftur er hann sá að hann var heill orðinn og lofaði Guð hárri raustu. Hann féll fram að fótum Jesú og þakkaði honum. En hann var Samverji. Jesús sagði: „Urðu ekki allir tíu hreinir? Hvar eru hinir níu? Urðu engir til þess að snúa aftur að gefa Guði dýrðina nema þessi útlendingur?“ Síðan mælti Jesús við hann: „Statt upp og far leiðar þinnar. Trú þín hefur bjargað þér.“
Sálmurinn Sb 75
Dýrlegt kemur sumar með sól og blóm,
senn fer allt að vakna með lofsöngsróm,
vængjaþytur heyrist í himingeim,
hýrnar yfir landi' af þeim fuglasveim.
Hærra' og hærra stígur á himinból
hetja lífsins sterka - hin milda sól,
geislastraumum hellir á höf og fjöll,
hlær, svo roðna vellir og bráðnar mjöll.
Gróðurmagnað lífsaflið leysist skjótt,
læsir sig um fræin, er sváfu rótt,
vakna þau af blundi' og sér bylta' í mold,
blessa Guð um leið og þau rísa' úr fold.
Guði' sé lof er sumarið gefur blítt,
gefur líka' í hjörtunum sumar nýtt,
taka' að vaxa ávextir andans brátt,
eilíf þar sem náðin fær vöxt og mátt.
Blessuð sumardýrðin um láð og lá
lífsins færir boðskap oss himnum frá:
"Vakna þú, sem sefur, því sumar skjótt
sigrað kuldann hefur og vetrarnótt."
Friðrik Friðriksson
Sumardagurinn fyrsti- Dagur jarðar
Þegar sumardagurinn fyrsti er haldinn sem Dagur jarðar og allrar sköpunar Guðs eru lestrar sem hér segir:
Kollektan
Guð, lind og uppspretta alls lífs. Þú sem skapaðir jörðina og ólst hana upp eins og móðir barn sitt, við biðjum þig. Hjálpa okkur börnum þessarar jarðar sem dýrmæt eru í þínum augum að helga líf okkar því að vera verndarar hinna jarðnesku gæða sköpunar þinnar en ekki ræningjar og að við megum sá fegurð og vexti en ekki eitrun og eyðingu svo að komandi kynslóðir megi njóta hins góða sem sköpun þín gefur.
Þess biðjum við fyrir Drottinn Jesú Krist sem með þér og heilögum anda lifir og ríkir.
Einn Guð um aldir alda. Amen
Lexían Sálm. 104. 1-5, 13-24
Lofa þú Drottin, sála mín.
Drottinn, Guð minn, þú ert harla mikill.
Þú ert skrýddur dýrð og hátign,
sveipaður ljósi sem skikkju.
Þú þenur út himininn eins og tjalddúk,
reftir sal þinn ofar skýjum.
Þú gerir skýin að vagni þínum,
ferð um á vængjum vindsins.
Þú gerir vindana að sendiboðum þínum,
bálandi eld að þjónum þínum.
Þú grundvallar jörðina á undirstöðum hennar
svo að hún haggast eigi um aldur og ævi.
Þú vökvar fjöllin frá hásal þínum
og af ávexti verka þinna mettast jörðin.
Þú lætur gras spretta handa fénaðinum
og jurtir sem maðurinn ræktar
svo að jörðin gefi af sér brauð
og vín sem gleður mannsins hjarta,
olíu sem lætur andlit hans ljóma
og brauð sem veitir honum þrótt.
Tré Drottins drekka nægju sína,
sedrustré Líbanons sem hann gróðursetti.
Þar gera fuglar sér hreiður
og storkar eiga sér bústað í krónum þeirra.
Í gnæfandi fjöllum búa steingeitur
og klettarnir eru skjól stökkhéra.
Þú gerðir tunglið, sem ákvarðar tíðirnar,
og sólina sem veit hvenær hún á að ganga til viðar.
Þú sendir myrkrið, þá verður nótt
og öll skógardýrin fara á stjá.
Ljónin öskra eftir bráð
og krefjast ætis af Guði.
Þegar sólin rís draga þau sig í hlé
og leggjast í bæli sín.
Þá fer maðurinn út til starfa sinna
og vinnur þar til kvöldar.
Hversu mörg eru verk þín, Drottinn?
Þú vannst þau öll af speki.
Jörðin er full af því sem þú hefur skapað.
Pistillinn Róm. 8.18-25
Ég lít svo á að þjáningar þessa tíma séu ekki neitt í samanburði við þá dýrð sem á okkur mun opinberast. Því að sköpunin vonar og þráir að Guðs börn verði opinber. Sköpunin er hneppt í ánauð hverfulleikans, ekki sjálfviljug heldur að vilja hans sem bauð svo, í þeirri von að sjálf sköpunin verði leyst úr ánauð sinni undir hverfulleikanum og fái frelsið í dýrðinni með börnum Guðs.
Við vitum að öll sköpunin stynur líka og hefur fæðingarhríðir allt til þessa. Og ekki það eitt, heldur stynjum við sem eigum frumgróða andans einnig með sjálfum okkur meðan við bíðum þeirrar stöðu Guðs barna sem í vændum er með endurlausn líkama okkar. Í þessari von erum við hólpin. Von, sem menn sjá fram komna, er ekki von. Hver vonar það sem hann sér? En ef við vonum það sem við sjáum ekki bíðum við þess með þolinmæði.
Guðspjallið Jóh. . 15.1-5
(Á þeim dögum sagði Jesús) :
„Ég er hinn sanni vínviður og faðir minn er vínyrkinn. Hverja þá grein á mér sem ber ekki ávöxt sníður hann af og hverja þá sem ávöxt ber hreinsar hann svo að hún beri meiri ávöxt. Þér eruð þegar hrein vegna orðsins sem ég hef talað til yðar. Verið í mér, þá verð ég í yður. Greinin getur ekki borið ávöxt af sjálfri sér nema hún sé á vínviðnum. Eins getið þér ekki heldur borið ávöxt nema þér séuð í mér. Ég er vínviðurinn, þér eruð greinarnar. Sá ber mikinn ávöxt sem er í mér og ég í honum en án mín getið þér alls ekkert gert
Sálmur 465
1 Í svörtum himingeimi heiðbjört skín
blá heillastjarna, dýrmæt sköpun þín.
Í okkar forsjá falin er
að fara með á allan hátt til dýrðar þér.
Hallelúja. Hallelúja.
2 Við höfum starfað ökrum hennar á
og okkur bjargir sótt í djúpin blá.
Hún veitir yndi, yl og skjól
og athvarf undir þinni mildu náðarsól.
Hallelúja. Hallelúja.
3 En núna bráðna jöklar, brotnar ís,
nú brenna skógar hér í paradís
og eitur þrúgar lög og láð.
Ó, ljúfi faðir, gefðu okkur þrek og ráð.
Hallelúja. Hallelúja.
4 Ó, faðir, gefðu okkur vilja´ og vit
að vernda hennar fagra stjörnuglit.
Gefðu´ okkur kærleik, kraft og trú
og kjark að standa vörð um allt sem elskar þú.
Hallelúja. Hallelúja.
Davíð Þór Jónsson