2. sunnudagur í aðventu Frelsarinn nálgast. Guðs ríki er nærri.
2. sunnudagur í aðventu
Frelsarinn nálgast. Guðs ríki er nærri.
Litur: Fjólublár. Dýrðarsöngur/lofgjörð ekki sungin.
Vers vikunnar:„Réttið úr yður og lyftið upp höfðum yðar því að lausn yðar er í nánd”.
Lúk. 21.28
Þriðja lestraröð
Bæn dagsins / kollektan
Drottinn Jesús Kristur, í heiminum er ótti og þjáning. Við þráum réttlæti og frið. Kom þú
skjótt, endurnýja sköpun þína, svo að að óp örvæntingarinnar og stunur hræðslunnar megi
breytast í lofsöng. Um það biðjum við og á þig vonum við um tíma og eilífð. Amen.
Lexían Barúksbók 5:1-9
Afklæð þig, Jerúsalem, hryggðar- og hörmungarskikkju þinni,
íklæðstu skarti Guðs dýrðar að eilífu.
Sveipa þig möttli réttlætis Guðs,
set höfuðbúnað dýrðar Hins eilífa á höfuð þér.
Guð mun sýna sérhverri þjóð á jörðu vegsemd þína
því að Guð mun veita þér að eilífu nafnið:
„Friður vegna réttlætis, dýrð sakir guðrækni.“
Rís upp, Jerúsalem, tak þér stöðu á hæðinni,
hef upp augu þín og horfðu í austur.
Lít börn þín sem safnað var saman að boði Hins heilaga,
þau koma úr vestri og austri,
fagnandi yfir að Guð minntist þeirra.
Fótgangandi fóru þau frá þér,
leidd burt af óvinum.
En Guð færir þau aftur til þín
og munu þau borin í vegsemd líkt og í hásæti.
Því að Guð hefur boðið að hvert hátt fjall skuli lækka,
eilífar hæðir jafnast
og dalirnir fyllast og verða að jafnsléttu
svo að Ísrael megi ganga fram í skjóli dýrðar Guðs.
Að boði Guðs munu skógar og öll ilmandi tré
veita Ísrael skugga.
Með ljósi dýrðar sinnar
og með miskunn sinni og réttlæti
mun Guð leiða Ísrael fagnandi heim.
Pistill Jak. 5:7-11
Þreyið því, systkin, þangað til Drottinn kemur. Sjáið akuryrkjumanninn! Hann bíður eftir
hinum dýrmæta ávexti jarðarinnar og þreyir eftir honum þangað til hann hefur fengið
haustregn og vorregn. Verið þið einnig þolinmóð, styrkið hjörtu ykkar því að Drottinn er í
nánd. Kvartið ekki hvert yfir öðru, systkin, svo að þið verðið ekki dæmd. Dómarinn stendur
fyrir dyrum. Bræður og systur, takið spámennina til fyrirmyndar sem talað hafa í nafni
Drottins og liðið illt með þolinmæði. Því við teljum þá sæla sem þolgóðir hafa verið. Þið
hafið heyrt um þolgæði Jobs og vitið hvaða lyktir Drottinn gerði á högum hans. Drottinn er
mjög miskunnsamur og líknsamur.
Guðspjall Matt. 24. 4-14
Jesús svaraði þeim: „Varist að láta nokkurn leiða yður í villu. Margir munu koma í mínu nafni
og segja: Ég er Kristur! og marga munu þeir leiða í villu. Þér munuð spyrja hernað og
ófriðartíðindi. Gætið þess að skelfast ekki. Þetta á að verða en endirinn er ekki þar með
kominn. Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá verður hungur og landskjálftar á
ýmsum stöðum. Allt þetta er upphaf fæðingarhríðanna.
Þá munu menn framselja yður, pína og taka af lífi og allar þjóðir munu hata yður vegna nafns
míns. Margir munu þá falla frá og framselja hver annan og hata. Fram munu koma margir
falsspámenn og leiða marga í villu. Og vegna þess að lögleysi magnast mun kærleikur flestra
kólna. En sá sem staðfastur er allt til enda verður hólpinn. Fagnaðarerindið um ríkið verður
prédikað um alla heimsbyggðina til þess að allar þjóðir fái að heyra það. Og þá mun endirinn
koma.
Sálmur vikunnar sb 4
1 Gjör dyrnar breiðar, hliðið hátt.
Þú, Herrans kristni, fagna mátt
því kóngur dýrðar kemur hér
og kýs að eiga dvöl hjá þér.
2 Hann býður líknar blessað ár,
hann býður dýpst að græða sár,
hann býður þyngstu' að borga sekt,
hann býður aumra' að skýla nekt.
3 Sjá, mildi' er lögmál lausnarans,
sjá, líkn er veldissproti hans.
Því kom þú, lýður kristinn, nú
og kóngi dýrðar fagna þú.
4 Hve sælt það land, hve sælt það hús
er sælugjafinn líknarfús
sér trútt og hlýðið fundið fær,
þar friður, heill og blessun grær.
5 Hve sælt það hjarta ávallt er
sem ást til Krists með lotning ber
og honum í sér bústað býr,
að bragði sorg öll þaðan flýr.
6 Gjör dyrnar breiðar, hliðið hátt,
þig, hjarta, prýð sem best þú mátt
og trúarlampann tendra þinn
og til þín bjóð þú Jesú inn.
7 Ég opna hlið míns hjarta þér,
ó, Herra Jesú, bú hjá mér
að fái hjálparhönd þín sterk
þar heilagt unnið náðarverk.
8 Ó, kom, minn Jesú, kom sem fyrst,
ó, kom og mér í brjósti gist,
ó, kom þú, segir sála mín,
ó, seg við mig: Ég kem til þín.
T Georg Weissel 1623 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886