Aðfangadagur hvítasunnu
Aðfangadagur hvítasunnu
Vers vikunnar:
„Ekki með valdi né krafti heldur fyrir anda minn, segir Drottinn allsherjar.“ (Sak 4.6b)
Litur rauður
Bæn dagsins / kollektan
Huggunar andi, eldur Guðs.
Þú ert lífskraftur alls hins skapaða.
Í þér mætum við Guði.
Þú safnar hinum villuráfandi saman í sannleikanum
og lætur þau skilja hvert annað.
Þökk sé þér. Amen.
Lexía: 1Kon 19.1-10 (11-13)
Akab sagði Jesebel frá öllu sem Elía hafði gert og að hann hefði drepið alla spámennina með
sverði. Jesebel sendi þá mann til Elía með þessi skilaboð: „Guðirnir geri mér hvað sem þeir
vilja, nú og héðan í frá, hafi ég ekki um þetta leyti á morgun farið með líf þitt líkt og líf eins
af spámönnunum.“ Elía varð hræddur, bjó sig til ferðar og flýði til að bjarga lífi sínu. Er hann
kom til Beerseba í Júda skildi hann þjón sinn þar eftir.
Sjálfur hélt hann eina dagleið inn í eyðimörkina. Þar settist hann undir einiberjarunna og
óskaði þess eins að deyja og mælti. „Mál er nú, Drottinn, að þú takir líf mitt því að ég er engu
betri en feður mínir.“ Síðan lagðist hann þar fyrir og sofnaði. En skyndilega kom engill, snerti
hann og sagði: „Rís upp og matast.“ Hann litaðist um og sá þá glóðarbakað brauð og
vatnskrukku við höfðalag sitt. Hann át og drakk og lagðist síðan fyrir aftur.
Þá kom engill Drottins öðru sinni, snerti hann og sagði: „Rís upp og matast. Annars reynist
þér leiðin of löng.“ Hann reis upp, át og drakk. Endurnærður af máltíðinni gekk hann í
fjörutíu daga og fjörutíu nætur þar til hann kom að Hóreb, fjalli Guðs. Þar kom hann að helli
og svaf þar um nóttina. Allt í einu kom orð Drottins til hans: „Hvað ertu að gera hér, Elía?“
Hann svaraði: „Af brennandi ákafa hef ég lagt mig fram vegna málefnis Drottins, Guðs
hersveitanna, því að Ísraelsmenn hafa snúið frá sáttmálanum við þig. Þeir hafa rifið niður
ölturu þín og drepið spámenn þína með sverði. Ég er einn eftir og nú sitja þeir um líf mitt.“
Drottinn svaraði: „Far út og gakk fram fyrir auglit Drottins uppi á fjallinu.“ Þá gekk Drottinn
þar hjá. Gífurlegur stormur fór fyrir Drottni, svo öflugur að hann molaði fjöll og klauf kletta.
En Drottinn var ekki í storminum. Eftir storminn varð jarðskjálfti. En Drottinn var ekki í
jarðskjálftanum. Eftir jarðskjálftann kom eldur. En Drottinn var ekki í eldinum. Eftir eldinn
kom þytur af þýðum blæ. Þegar Elía heyrði hann huldi hann andlit sitt með skikkju sinni,
gekk út og tók sér stöðu við hellismunnann. Þá barst honum rödd sem spurði: „Hvað ert þú að
gera hér, Elía?“
Pistill: 1Kor 12.7-13
Þannig birtist andinn sérhverjum manni til þess að hann geri öðrum gagn. Einum gefur
andinn gáfu að mæla af speki, öðrum gefur sami andi kraft að mæla af þekkingu. Sami andi
veitir einum trú, öðrum lækningagáfu 1og öðrum kraft til að framkvæma undur. Einn fær
spádómsgáfu, annar hæfileika að sannreyna anda, einn að tala tungum og annar að útleggja
tungutal. Öllu þessu kemur eini og sami andinn til leiðar og hann útbýtir hverjum einum eftir
vild sinni.
Því að eins og líkaminn er einn og hefur marga limi en allir limir líkamans, þótt margir séu,
eru einn líkami, þannig er og Kristur. Í einum anda vorum við öll skírð til að vera einn líkami,
hvort sem við erum Gyðingar eða Grikkir, þrælar eða frjálsir, og öll fengum við einn anda að
drekka.
Guðspjall: Jóh 7.37-39
Síðasta daginn, hátíðardaginn mikla, stóð Jesús þar og kallaði: „Ef nokkurn þyrstir þá komi
hann til mín og drekki. 38Frá hjarta þess sem trúir á mig munu renna lækir lifandi vatns, eins
og ritningin segir.“ 39Þarna átti hann við andann er þau skyldu hljóta sem á hann trúa. Því
enn var andinn ekki gefinn þar eð Jesús var ekki enn dýrlegur orðinn.
Sálmur Sb 171
1.Guð helgur andi himni af
hallelúja, hallelúja!
kom heimsins til og gjafir gaf.
Hallelúja! hallelúja!
2. Hann treystir oss að túlka Krist,
hallelúja, hallelúja!
og tala nýjum tungum víst.
Hallelúja! hallelúja!
3. Hann sína efldi sendimenn,
hallelúja, hallelúja!
með sannleiksljóma´ er lýsir enn.
Hallelúja! hallelúja!
4. Þeir frjálsir sannleik flytja hér,
hallelúja, hallelúja!
Í orði Jesú lífið er.
Hallelúja! hallelúja!
5. Þar heyrum Drottins hljóma orð
hallelúja, hallelúja!
og hvíld fær hjartað Guðs við borð.
Hallelúja! hallelúja!
6. Og sálin sem í skuggsjá hér
hallelúja, hallelúja!
síns Drottins ljós og ljóma sér.
Hallelúja! hallelúja!
7. Hér heilagt byggir hús Guðs orð
hallelúja, hallelúja!
við Drottins laug og Drottins borð.
Hallelúja! hallelúja!
8. Og nýtt vér syngjum lofsöngslag
hallelúja, hallelúja!
með englum himins hér í dag.
Hallelúja! hallelúja!
9. Á hvítasunnuhátíð nú,
hallelúja, hallelúja!
vér fögnum saman frjáls í trú.
Hallelúja! hallelúja!
N.F.S. Grundtvig Einar Sigurbjörnsson.