Stefánsdagur frumvotts – Annar jóladagur – Dagur píslarvottanna
Stefánsdagur frumvotts – Annar jóladagur – Dagur píslarvottanna
Lexía: 2Kro 24.17-21 Pistill: Post 6.8-15 og 7.55-60 Guðspjall: Matt 23.34-39
Stefánsdagur frumvotts - 26. desember Dagur píslarvottanna
Þegar annar jóladagur er haldinn sem minningardagur um djáknann Stefán,
fyrsta píslarvott kristninnar eru lestrar og bænir sem hér segir.
Litur: Rauður.
Bæn dagsins / kollektan
Himneski faðir þú sem sendir son þinn í heiminn til þess að vera lausnari okkar. Við þökkum
þér fyrir Stefán og fyrir þau öll sem þurftu að þola ofbeldi og dauða vegna trúarinnar. Hjálpa
þú okkur að horfa til Krists og fyrir eftirfylgd og kross ná um síðir þangað sem við sjáum
hann í dýrð sinni, þar sem hann lifir og ríkir með þér og heilögum anda að eilífu. Amen.
Lexía: 2Kro 24.17-21
Eftir andlát Jójada komu höfðingjar Júda og sýndu konungi lotningu. Konungur hlustaði á þá
og þeir yfirgáfu hús Drottins, Guðs feðra sinna, og tóku að þjóna Asérustólpum og öðrum
skurðgoðum. Vegna þessa afbrots kom heiftarreiði yfir Júda og Jerúsalem. Drottinn sendi því
spámenn til þeirra til þess að snúa þeim aftur til Drottins. Spámennirnir áminntu þá en þeir
hlustuðu ekki. Þá kom andi Guðs yfir Sakaría, son Jójada prests. Hann gekk fram fyrir fólkið
og sagði: „Svo segir Guð: Hvers vegna brjótið þið gegn fyrirmælum Drottins? Þannig mun
ykkur ekki vel farnast því að Drottinn yfirgefur ykkur ef þið yfirgefið hann.“
En þeir gerðu samsæri gegn honum og grýttu hann í forgarði húss Drottins samkvæmt skipun
konungs.
Pistill: Post 6.8-15 og 7.55-60
Stefán var fullur af náð og krafti og gerði undur og tákn mikil meðal fólksins. Þá komu til
nokkrir menn úr svonefndri Leysingjasamkundu. Þeir voru frá Kýrene og Alexandríu en aðrir
frá Kilikíu og Asíu og tóku að þrátta við Stefán. En þeir gátu ekki staðið gegn þeirri visku og
anda sem hann talaði af. Þá fengu þeir menn nokkra til að segja: „Við höfum heyrt hann tala
lastmæli gegn Móse og Guði.“ Þeir æstu upp fólkið, öldungana og fræðimennina og þeir
veittust að honum, gripu hann og færðu hann fyrir ráðið. Þá leiddu þeir fram ljúgvotta er
sögðu: „Þessi maður talar sífellt gegn þessum heilaga stað og lögmálinu. Við höfum heyrt
hann segja að þessi Jesús frá Nasaret muni brjóta niður musterið og breyta þeim siðum sem
Móse hefur sett okkur.“ Allir sem í ráðinu sátu störðu á hann og sáu að ásjóna hans var sem
engils ásjóna.
En hann horfði til himins, fullur af heilögum anda og leit dýrð Guðs og Jesú standa til hægri
handar Guði og sagði: „Ég sé himnana opna og Mannssoninn standa til hægri handar Guði.“
Þá æptu þeir hástöfum, héldu fyrir eyrun og réðust að honum, allir sem einn maður. Þeir
hröktu hann út úr borginni og tóku að grýta hann. En vottarnir lögðu yfirhafnir sínar að fótum
ungum manni er Sál hét. Þannig grýttu þeir Stefán. En hann ákallaði Drottin og sagði:
„Drottinn Jesús, meðtak þú anda minn.“ Síðan féll hann á kné og hrópaði hárri röddu:
„Drottinn, lát þá ekki gjalda þessarar syndar.“ Þegar hann hafði þetta mælt sofnaði hann.
Sál lét sér vel líka líflát hans.
Guðspjall: Matt 23.34-39
Þess vegna sendi ég til yðar spámenn, spekinga og fræðimenn. Suma þeirra munuð þér lífláta
og krossfesta, aðra húðstrýkja í samkundum yðar og ofsækja borg úr borg. Þannig kemur yfir
yður allt saklaust blóð sem úthellt hefur verið á jörðinni, frá blóði Abels hins réttláta til blóðs
Sakaría Barakíasonar sem þér drápuð milli musterisins og altarisins. Sannlega segi ég yður:
Allt mun þetta lenda á þessari kynslóð.
Jerúsalem, Jerúsalem! Þú sem líflætur spámennina og grýtir þá sem sendir eru til þín! Hversu
oft vildi ég safna börnum þínum, eins og hænan safnar ungum sínum undir vængi sér, og þér
vilduð eigi? Guð mun yfirgefa musteri yðar og það verður lagt í rúst. Ég segi yður: Héðan af
munuð þér eigi sjá mig fyrr en þér segið: Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins.“
Sálmur Sb 203
1 Fyrir þá alla' er fá nú hvíld hjá þér
en forðum trúarstyrkir börðust hér
þér vegsemd, Jesú, þökk og heiður ber.
Hallelúja, hallelúja.
2 Þú varst þeim sjálfur varnarskjólið traust,
á voðans stund þeir heyrðu þína raust
og geisli frá þér gegnum sortann braust.
Hallelúja, hallelúja.
3 Ó, mættum vér gegn heimi heyja stríð
sem helgir vottar þínir fyrr og síð
og öðlast krónu lífs er lýkur hríð.
Hallelúja, hallelúja.
4 Ó, helga sveit. Þér háu dýrðarmenn,
þér hljótið hvíld, vér berjast þurfum enn,
í Guði eitt vér erum þó í senn.
Hallelúja, hallelúja.
5 Þótt hugdirfð bregðist, hjartans kólni glóð,
ó, heyr! Í fjarska óma sigurljóð
sem hjörtun styrkja, hressa dapran móð.
Hallelúja, hallelúja.
6 Í vestri kvöldsins bjarmi boðar frið
og brátt fær hvíld hið þreytta, trúa lið
og Paradísar heilagt opnast hlið.
Hallelúja, hallelúja.
7 En sjá – þó aftur dýrri dagur skín
er Drottinn kallar trúu börnin sín
til lífs í sælu sem ei framar dvín.
Hallelúja, hallelúja.
8 Af sæ og landi, suðri´ og norðri frá
í sigurgöngu mæst er himnum á
og sungið föður, syni´ og anda þá:
Hallelúja, hallelúja.
T William W. How 1864 – Valdemar V. Snævarr, 1954 – Sb. 1972