2. sunnudagur eftir páska (Misericordias domini) Góði hirðirinn
Litur: Hvítur.
Vers vikunnar:
Jesús sagði: „Ég er góði hirðirinn. Mínir sauðir heyra raust mína og ég þekki þá og þeir fylgja mér. Ég gef þeim eilíft líf og þeir skulu aldrei að eilífu glatast.“ (Jóh 10.11a, 27-28a)
Kollekta:
Almáttugi Guð sem fyrir lægingu sonar þíns hefur reist upp hinn fallna heim: Veit öllum sem á þig trúa ævarandi gleði svo að þau sem þú hefur hrifið úr háska eilífs dauða njóti af náð þinni eilífs fagnaðar. Fyrir son þinn Jesú Krist bróður okkar og Drottin sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Lexía: Esk 34.11-16, 31
Því að svo segir Drottinn Guð: Nú ætla ég sjálfur að leita sauða minna og líta eftir þeim. Eins og hirðir lítur eftir hjörð sinni þegar hún er á dreif í kringum hann mun ég fylgjast með mínu fé. Ég mun bjarga sauðum mínum frá öllum þeim stöðum sem þeir dreifðust til á hinum dimma og drungalega degi. Ég mun leiða þá burt frá þjóðunum, safna þeim saman úr löndunum og leiða þá heim til síns eigin lands. Ég mun halda þeim í haga á fjöllum Ísraels, í daladrögum og á hverju byggðu bóli í landinu. Ég mun sjálfur halda þeim til beitar í góðu haglendi, beitiland þeirra verður á háfjöllum Ísraels. Þar munu þeir leggjast og ganga í frjósömu haglendi á fjöllum Ísraels. Ég mun sjálfur halda fé mínu til beitar og sjá því fyrir hvíldarstað, segir Drottinn Guð. Ég mun leita þess sem villist og sækja hið hrakta, binda um hið limlesta og styrkja hið veikburða. Ég mun gæta hins feita og þróttmikla og halda því í haga eins og rétt er.
Þið eruð hjörð mín sem ég held í haga. Ég er Guð ykkar, segir Drottinn Guð.
Pistill: 1Pét 2.21-25
Þetta er köllun ykkar. Því að Kristur leið einnig fyrir ykkur og lét ykkur eftir fyrirmynd til þess að þið skylduð feta í fótspor hans. „Hann drýgði ekki synd og svik voru ekki fundin í munni hans.“ Hann svaraði ekki með illmælum er honum var illmælt og hótaði eigi er hann leið, heldur fól það honum á vald sem dæmir réttvíslega. Hann bar sjálfur syndir okkar á líkama sínum upp á tréð, til þess að við skyldum deyja frá syndunum og lifa réttlætinu. Fyrir hans benjar eruð þið læknuð. Þið voruð sem villuráfandi sauðir en nú hafið þið snúið ykkur til hans sem er hirðir og biskup sálna ykkar.
Guðspjall: Jóh 10.11-16
Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina. Sá sem er leigður og hvorki er hirðir né á sauðina, hann flýr og yfirgefur sauðina þegar hann sér úlfinn koma og úlfurinn hremmir þá og tvístrar þeim. Enda gætir hann sauðanna aðeins fyrir borgun og er ekkert annt um þá. Ég er góði hirðirinn og þekki mína og mínir þekkja mig eins og faðirinn þekkir mig og ég þekki föðurinn. Ég legg líf mitt í sölurnar fyrir sauðina. Ég á líka aðra sauði sem eru ekki úr þessu sauðabyrgi. Þá ber mér einnig að leiða, þeir munu heyra raust mína. Og það verður ein hjörð, einn hirðir.
Sálmur: 156
1 Ég á mér hirði hér á jörð
sem hefur gát mér á,
hann blessar mig og býður nægð,
mig bresta ekkert má.
2 Ef eigra ég um eyðisand
og enga leið ég finn
hann leiðir mig á græna grund
og greiðir feril minn.
3 Við vötnin hans ég næðis nýt
svo nærist sál og líf,
hans helga nafn mér vísar veg
og veitir skjól og hlíf.
4 Þótt fari ég um dimman dal
er Drottinn samt mér hjá,
ég trúi' á hann og ekkert illt
mér ótta vekur þá.
5 Ég styðjast vil við staf þinn, Guð,
mig styrkir sproti þinn,
í hverri neyð þú býr mér borð
og bikar fyllir minn.
6 Já, fylgja mun mér gæfa Guðs
sem gengur mér við hlið
og alla daga ævinnar
ég á hans náð og frið.
Svavar A. Jónsson