1. sunnudagur í aðventu – Drottinn kemur
1. sunnudagur í aðventu – Drottinn kemurLitur: Hvítur.
Dýrðarsöngur/lofgjörð eru sungin.
Vers vikunnar:
„Sjá, konungur þinn kemur til þín.“ (Sak 9.9)
Kollekta:
Við biðjum þig, Drottinn: Kom í krafti þínum og veit okkur vernd, að við leysumst úr þeim háska sem yfir okkur vofir vegna synda okkar og frelsumst fyrir hjálpræði þitt, því að þú lifir og ríkir með Guði föður í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð: B
Lexía: Jer 33.14 -16
Þeir dagar koma, segir Drottinn, þegar ég læt hið góða fyrirheit rætast sem ég gaf Ísraelsmönnum og Júdamönnum. Á þeim dögum og þeim tíma mun ég láta réttlátan kvist vaxa af ætt Davíðs. Hann mun framfylgja rétti og réttlæti í landinu. Á þeim dögum mun Júda bjargað og Jerúsalem verða óhult. Þetta nafn verður henni gefið: Drottinn er réttlæti vort.
Pistill: Opb 3.20-22
Ég stend við dyrnar og kný á. Ef einhver heyrir raust mína og lýkur upp dyrunum mun ég fara inn til hans og neyta kvöldverðar með honum og hann með mér. Þann er sigrar mun ég láta sitja hjá mér í hásæti mínu eins og ég sjálfur sigraði og settist hjá föður mínum í hásæti hans.
Hver sem eyra hefur hann heyri hvað andinn segir söfnuðunum.
Guðspjall: Lúk 4.16-21
Jesús kom til Nasaret, þar sem hann var alinn upp, og fór að vanda sínum á hvíldardegi í samkunduna og stóð upp til að lesa. Var honum fengin bók Jesaja spámanns. Hann lauk upp bókinni og fann staðinn þar sem ritað er:
Andi Drottins er yfir mér
af því að hann hefur smurt mig.
Hann hefur sent mig til að flytja fátækum gleðilegan boðskap,
boða bandingjum lausn
og blindum sýn,
láta þjáða lausa
og kunngjöra náðarár Drottins.
Síðan lukti Jesús aftur bókinni, fékk hana þjóninum og settist niður en augu allra í samkundunni hvíldu á honum. Hann tók þá að tala til þeirra: „Í dag hefur ræst þessi ritning í áheyrn yðar.“