Sumardagurinn fyrsti (Fyrsti fimmtudagur eftir 18. apríl)
Sumardagurinn fyrsti er fyrsti fimmtudagur eftir 18.apríl. Það er fyrsti dagur sumars að íslensku tímatali, og getur fallið á dagana 19. – 25. apríl. Þetta var opinber messudagur fram um miðja 18. öld. Á síðustu öld varð sumardaginn fyrsti, fastur hátíðisdagur skátahreyfingarinnar og hefur verið haldinn hatíðlegur með messu í ýmsum kirkjum landsins. Dagurinn hefur einnig verið fermingarmessudagur í mörgum sóknum landsins um langt árabil.
Litur: Grænn.
Kollekta:
Miskunnsami Guð og faðir, þú seður allt, sem lifir með blessun: Lát oss ætíð minnast forsjónar þinnar og þjóna þér í ábyrgð og trúmennsku. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Bæn dagsins:
Guð minn lát mig líkjast ljúfum sumardegi.
(Martin Lönnebo)
Lexía: Slm 104.1-16
Lofa þú Drottin, sála mín.
Drottinn, Guð minn, þú ert harla mikill.
Þú ert skrýddur dýrð og hátign,
sveipaður ljósi sem skikkju.
Þú þenur út himininn eins og tjalddúk,
reftir sal þinn ofar skýjum.
Þú gerir skýin að vagni þínum,
ferð um á vængjum vindsins.
Þú gerir vindana að sendiboðum þínum,
bálandi eld að þjónum þínum.
Þú grundvallar jörðina á undirstöðum hennar
svo að hún haggast eigi um aldur og ævi.
Frumdjúpið huldi hana eins og klæði,
vötnin náðu yfir fjöllin,
þau flýðu ógnun þína,
hrökkluðust undan þrumuraust þinni,
læddu yfir fjöll, steyptust niður í dali,
þangað sem þú hafðir ætlað þeim stað.
Þú settir vatninu mörk sem það má ekki fljóta yfir,
aldrei framar skal það hylja jörðina.
Þú lést lindir spretta upp í dölunum,
þær streyma milli fjallanna,
þær svala öllum dýrum merkurinnar,
villiasnarnir slökkva þar þorsta sinn.
Við þær búa fuglar himinsins,
kvaka milli laufgaðra greina.
Þú vökvar fjöllin frá hásal þínum
og af ávexti verka þinna mettast jörðin.
Þú lætur gras spretta handa fénaðinum
og jurtir sem maðurinn ræktar
svo að jörðin gefi af sér brauð
og vín sem gleður mannsins hjarta,
olíu sem lætur andlit hans ljóma
og brauð sem veitir honum þrótt.
Tré Drottins drekka nægju sína,
sedrustré Líbanons sem hann gróðursetti.
Þar gera fuglar sér hreiður
og storkar eiga sér bústað í krónum þeirra.
Pistill: Fil 4.4-9
Verið ávallt glöð í Drottni. Ég segi aftur: Verið glöð. Ljúflyndi ykkar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. Verið ekki hugsjúk um neitt heldur gerið í öllum hlutum óskir ykkar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu ykkar og hugsanir ykkar í Kristi Jesú. Að endingu, systkin, allt sem er satt, allt sem er göfugt, rétt og hreint, allt sem er elskuvert og gott afspurnar, hvað sem er dygð og hvað sem er lofsvert, hugfestið það.
Þið skuluð gera þetta, sem þið hafið bæði lært og numið, heyrt og séð til mín. Og Guð friðarins mun vera með ykkur.
Guðspjall: Lúk 17.11-19
Svo bar við á ferð Jesú til Jerúsalem að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu. Og er hann kom inn í þorp nokkurt mættu honum tíu líkþráir menn. Þeir stóðu álengdar, hófu upp raust sína og kölluðu: „Jesús, meistari, miskunna þú oss!“ Jesús sá þá og sagði við þá: „Farið og sýnið yður prestunum.“ Þeir héldu af stað og nú brá svo við að þeir urðu hreinir. En einn þeirra sneri aftur er hann sá að hann var heill orðinn og lofaði Guð hárri raustu. Hann féll fram að fótum Jesú og þakkaði honum. En hann var Samverji. Jesús sagði: „Urðu ekki allir tíu hreinir? Hvar eru hinir níu? Urðu engir til þess að snúa aftur að gefa Guði dýrðina nema þessi útlendingur?“ Síðan mælti Jesús við hann: „Statt upp og far leiðar þinnar. Trú þín hefur bjargað þér.“
Sálmur: 480
Dýrlegt kemur sumar með sól og blóm,
senn fer allt að vakna með lofsöngsróm,
vængjaþytur heyrist í himingeim,
hýrnar yfir landi’ af þeim fuglasveim.
Hærra’ og hærra stígur á himinból
hetja lífsins sterka – hin milda sól,
geislastraumum hellir á höf og fjöll,
hlær, svo roðna vellir og bráðnar mjöll.
Gróðurmagnað lífsaflið leysist skjótt,
læsir sig um fræin, er sváfu rótt,
vakna þau af blundi’ og sér bylta’ í mold,
blessa Guð um leið og þau rísa’ úr fold.
Guði’ sé lof er sumarið gefur blítt,
gefur líka’ í hjörtunum sumar nýtt,
taka’ að vaxa ávextir andans brátt,
eilíf þar sem náðin fær vöxt og mátt.
Blessuð sumardýrðin um láð og lá
lífsins færir boðskap oss himnum frá:
“Vakna þú, sem sefur, því sumar skjótt
sigrað kuldann hefur og vetrarnótt.”
Sb. 1945 – Friðrik Friðriksson