2. sunnudagur í níuviknaföstu (sexagesima) – Biblíudagurinn
2. sunnudagur í níuviknaföstu (sexagesima) – BiblíudagurinnMargskonar akurlendi/ Hið lifandi orð
Vers vikunnar:
„Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar“ (Heb 3.15)
Kollekta:
Drottinn Jesús Kristur, þú sem ert orð lífsins. Þú gjörðist hold á jörðu og kunngjörðir okkur leyndardóma Guðs ríkis: Gef okkur náð til að trúa með fögnuði og treysta því, sem Heilög ritning boðar okkur til hjálpræðis, því að þú lifir og ríkir með Guði föður í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð: B
Lexía: Jes 40.6-8
Einhver segir: „Kalla þú,“
og ég spyr: „Hvað á ég að kalla?“
„Allt hold er gras
og allur yndisleikur þess sem blóm vallarins.
Grasið visnar, blómin fölna
þegar Drottinn andar á þau.
Sannlega eru mennirnir gras.
Grasið visnar, blómin fölna
en orð Guðs vors varir að eilífu.“
Pistill: Heb 4.12-13
Því að orð Guðs er lifandi og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði og smýgur inn í innstu fylgsni sálar og anda, liðamóta og mergjar, það dæmir hugsanir og hugrenningar hjartans. Enginn skapaður hlutur er Guði hulinn, allt er bert og öndvert augum hans. Honum eigum við reikningsskil að gera.
Guðspjall: Mrk 4.26-32
Þá sagði Jesús: „Svo er Guðs ríki sem maður sái sæði í jörð. Hann sefur síðan og vakir, nætur og daga, en sæðið grær og vex, hann veit ekki með hverjum hætti. Sjálfkrafa ber jörðin ávöxt, fyrst stráið, þá axið og síðan fullvaxið hveiti í axinu. En þá er ávöxturinn er fullþroska lætur hann þegar bera út sigðina því að uppskeran er komin.“
Og Jesús sagði: „Við hvað eigum við að líkja Guðs ríki? Með hvaða dæmi eigum við að lýsa því? Líkt er það mustarðskorni. Þegar því er sáð í mold er það smærra hverju sáðkorni á jörðu. En eftir að því er sáð tekur það að spretta, það verður öllum jurtum meira og fær svo stórar greinar að fuglar himins geta hreiðrað sig í skugga þess.“