Fullveldisdagurinn 1. desember
Kollekta:Almáttugi Guð, sem hefur gefið oss land, þar sem vér höfum frelsi til að játa þitt heilaga nafn, tilbiðja þig og þjóna þér og leita ríkis þíns: Vér biðjum þig að kenna oss að meta þessa gjöf, varðveita hana og ávaxta til eilífra heilla fyrir oss og niðja vora. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð: B
Lexía: Jer 32.38-41
Þeir skulu vera mín þjóð og ég skal vera þeirra Guð. Ég mun gefa þeim eitt hjarta og eina breytni svo að þeir sýni mér lotningu alla tíð, þeim sjálfum til heilla og sonum þeirra eftir þá. Ég geri við þá ævarandi sáttmála um að ég snúi mér ekki frá þeim heldur reynist þeim vel. Ég legg guðsótta í hjarta þeirra svo að þeir víki aldrei frá mér. Ég gleðst yfir þeim og reynist þeim vel og gróðurset þá í þessu landi í trúfesti, af heilum hug og öllum mætti.
Pistill: 1Tím 2.1-4
Fyrst af öllu hvet ég til að biðja og ákalla Guð og bera fram fyrirbænir og þakkir fyrir alla menn. Biðjið fyrir konungum og öllum þeim sem hátt eru settir til þess að við fáum lifað friðsamlegu og rólegu lífi í guðsótta og siðprýði. Þetta er gott og þóknanlegt Guði, frelsara vorum, sem vill að allir menn verði hólpnir og komist til þekkingar á sannleikanum.
Guðspjall: Matt 7.7-12
Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. Því að hver sá öðlast sem biður, sá finnur sem leitar, og fyrir þeim sem á knýr mun upp lokið verða. Eða hver er sá maður meðal yðar sem gefur barni sínu stein er það biður um brauð? Eða höggorm þegar það biður um fisk? Fyrst þér sem eruð vond hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðir yðar á himnum gefa þeim góðar gjafir sem biðja hann? Allt sem þér viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera. Því að þetta er lögmálið og spámennirnir.
Sálmur: 529
Eilíf miskunn, að þér taktu
ísaláð, vort fósturland,
yfir því um aldir vaktu,
öllu hrind, sem býr því grand.
Styð og vernda landsins lýð,
lát þú blítt á hverri tíð
honum mót til heilla skína
helga kærleiksgeisla þína.
Ljósið þinna lífsins orða
lát oss aldrei hverfa frá,
vantrú oss og villu forða,
vegum sannleiks halt oss á.
Drottinn, gef um aldir æ
Íslands hverri sveit og bæ
hnossið það, sem heill er þjóða:
Hreina trú og siði góða.
Helgi Hálfdánarson