Nýársdagur – 1. janúar – Í Jesú nafni - Áttidagur jóla - Í nafni Drottins. Í Jesú nafni. Á Guðs vegi
Litur: Hvítur.
Vers vikunnar:
Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir. (Heb 13.8)
Bæn dagsins:
Jesús Kristur. Þar sem þú ert víkur óttinn og óvissan. Með þér viljum við byrja þetta nýja ár og taka á móti því sem það færir okkur af gleði og af sorgum. Lát hið nýja ár verða náðarár þar sem við lifum af gæsku þinni og gefum hana öðrum. Dýrð sé þér Drottinn. Amen.
Þriðja lestraröð
Lexía: 4Mós 6.22-27
Drottinn talaði til Móse og sagði:
„Ávarpaðu Aron og syni hans og segðu: Með þessum orðum skuluð þið blessa Ísraelsmenn:
Drottinn blessi þig og varðveiti þig,
Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þig og sé þér náðugur,
Drottinn upplyfti sínu augliti yfir þig og gefi þér frið.
Þannig skuluð þið leggja nafn mitt yfir Ísraelsmenn og ég mun blessa þá.“
Pistill: Post 10.42-43
Og hann bauð okkur að prédika fyrir alþjóð og vitna að hann er sá sem Guð hefur skipað dómara lifenda og dauðra. Honum bera allir spámennirnir vitni að sérhver sem trúir á hann fái vegna hans fyrirgefningu syndanna.“
Guðspjall: Jóh 2.23-25
Meðan hann var í Jerúsalem á páskahátíðinni fóru margir að trúa á hann því þeir sáu þau tákn sem hann gerði. En Jesús gaf þeim ekki trúnað sinn því hann þekkti alla. Hann þurfti þess ekki að neinn bæri öðrum manni vitni. Hann vissi sjálfur hvað í manni býr.
Sálmur 811
Ljóss barn, heims barn, fætt á jörð í smæð.
Glatt barn, Krists barn, tákn frá himnahæð.
Nú við nýtt ár ný renni tíð
er jólin vitja allra jafnt,
jafnt og sólin blíð.
Vegbarn, sært barn, þess er veröld ill,
meitt barn, beygt barn, enginn vita vill.
Ný við nýtt ár ný upp renni tíð
er jólin vitja allra jafnt,
jafnt og sólin blíð.
Gleymt barn, stórt barn, sérhver minning sár.
Hryggt barn, týnt barn, sögu segja tár.
Nú við nýtt ár ný upp renni tíð
er jólin vitja allra jafnt,
jafnt og sólin blíð.
Spar-barn, spillt barn, á allt, meir vill fá,
spakt barn, tælt barn, veit ei hvað hér má.
Nú við nýtt ár ný upp renni tíð
er jólin vitja allra jafnt,
jafnt og sólin blíð.
Væntir-lífs barn, tákn um ást og von.
Guðs barn, manns barn, Guðs hinn góði son.
Nú við nýtt ár ný upp renni tíð
er jólin vitja allra jafnt,
jafnt og sólin blíð.
Shirley Erena Murray - Kristján Valur Ingólfsson