4. sunnudagur í föstu (Laetare) - Brauð lífsins / Fyrir ykkur
Litur: Fjólublár.
Vers vikunnar:
Ég er hið lifandi brauð sem steig niður af himni. Hver sem etur af þessu brauði mun lifa að eilífu. Og brauðið er líkami minn sem ég gef heiminum til lífs.“ (Jóh 6.51)
Bæn dagsins:
Drottinn Guð, gleðjast skulu þau öll í þér, sem tilheyra þér. Gef þú okkur saðningu með brauði lífsins, svo að við lifum í krafti sonar þíns og mætum hvert öðru í kærleika. Þess biðjum við í nafni Jesú Krists. Amen.
Þriðja lestraröð
Lexía: 2Kon 4.42-44
Einu sinni kom maður frá Baal Salísa og færði guðsmanninum tuttugu byggbrauð, frumgróðabrauð. Dálítið af nýju korni hafði hann einnig í poka sínum. Elísa sagði: „Gefðu fólkinu þetta.“ „Hvernig get ég gefið þetta hundrað mönnum?“ svaraði þjónn hans. En hann sagði: „Gefðu fólkinu þetta að eta því að svo segir Drottinn: Þeir munu eta og leifa.“ Síðan bar hann þetta fyrir þá og þeir átu og leifðu eins og Drottinn hafði sagt.
Pistill: Post 27.33-36
Undir dögun hvatti Páll alla til að neyta matar og sagði: „Þið hafið nú þraukað hálfan mánuð fastandi og matarlausir. Það er nú mitt ráð að þið matist. Þess þurfið þið ef þið ætlið að bjargast. En enginn ykkar mun einu hári týna af höfði sér.“ Að svo mæltu tók hann brauð gerði Guði þakkir í allra augsýn, braut það og tók að eta. Urðu nú allir hressari og fóru líka að matast.
Guðspjall: Jóh 6.52-58
Nú deildu Gyðingar hver við annan og sögðu: „Hvernig getur þessi maður gefið okkur líkama sinn að eta?“
Þá sagði Jesús við þá: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef þér etið ekki hold Mannssonarins og drekkið blóð hans þá er ekki líf í yður. Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt hefur eilíft líf og ég reisi hann upp á efsta degi. Hold mitt er sönn fæða og blóð mitt er sannur drykkur. Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt er í mér og ég í honum. Eins og hinn lifandi faðir sendi mig og veitir mér líf, svo mun ég láta þann lifa sem mig etur. Þetta er það brauð sem niður steig af himni. Það er ekki eins og brauðið sem feðurnir átu enda dóu þeir. Sá sem etur þetta brauð mun lifa að eilífu.“
Sálmur 814
Brauð til saðnings svöngum gefa
sól og mold og haf af náð.
Svo sem alvalds elskan býður,
orðið frá hans vörum líður,
fylla undrin lög og láð.
Brauð af himni, saðning sanna,
son Guðs, Jesús Kristur, er.
Himnum frá hann fór að leita
föllnum að og þeim að veita
líkn og eilíft líf með sér.
Brauð á helgu borði þínu
blessar, Jesús, návist þín
þar sem systkin saman finna
svölun guðdómslinda þinna,
líf, sem aldrei deyr né dvín.
Brauð þitt viltu veröld gefa,
vilt oss senda með þinn auð
handa þeim sem hungur líða
hjálp að veita, með þér stríða
móti heimsins myrku nauð.
Brauð, sem endist öllum snauðum,
er það til? Því svarar þú:
Miðlið, jafnið mínum auði,
misréttið er allra dauði,
verið mínum vilja trú.
Per Lönning - Sigurbjörn Einarsson